| Verið hjartanlega velkomin á síðuna okkar |
| Við erum systkinin Aníta Rut (7 1/2 ára), Bjarni Leó (3 1/2 ára) og Óskar Andri (1 äars). Við búum í Svíþjóð með foreldrum okkar.
www.barnagaman.is (www.barnagaman.is) - Endilega að kíkja á síðuna okkar |
|
|
Um okkur:
Þann 21. október 2003 kl.16:32 kom Aníta Rut í heiminn. Ég vildi láta bíða eftir mér og gera alla svolítið spennta í kringum mig svo ég var ekkert að flýta mér að koma í heiminn (15 daga frammyfir). Ég var 13 merkur og 51 cm, með mikið og dökkt hár(sítt að aftan) og dökk augu. Mamma mín (Silja Dögg) stóð sig mjög vel í fæðingunni og er hún algjör hetja og var pabbi (Sigurður Freyr) viðstaddur. Við fjölskyldan gistum svo eina nótt í Hreiðrinu og vorum farin heim sólarhring eftir að ég fæddist.
Þann 25. október 2007 kl.03.26 kom Bjarni Leó í heiminn, afmælisdag pabba. Mamma og pabbi fóru upp á fæðingadeild kl.22.30 og 4 tímum seinna var hann komin í heiminn. Allt gekk rosalega vel og ljósmæðurnar æðislegar, draumfæðing. Hann var 13,5 merkur og 51 cm, með dökkt hár og dökk augu. Við gistum eina nótt á sjúkrahóteli (patient hotel) á sjúkrahúsinu í Lundi.
|
|
|
|
Annað:
Vogin
Er félagslynd og hugmyndarík. Hún er jákvæð og vingjarnleg og iðulega kurteis, ljúf og þægileg í umgengni, enda leggur hún áherslu á samvinnu. Hún er oft ágætur diplómat eða sáttasemjari. Vogin vill vega og meta og sjá fleiri en eina hlið á hverju máli. Hún er því oft sanngjörn og víðsýn, en er stundum lengi að taka ákvörðun og á því til að vera óákveðin. Þegar hún er hins vegar búin að ákveða sig er hún föst fyrir og ósveigjanleg. Sumar Vogir eru ráðríkar, en nota þá bros og rökræðu til að sannfæra aðra um réttmæti skoðana sinna (hin ljúfa frekja). Vogin er oft listræn eða leggur a.m.k. áherslu á að hafa fegurð í umhverfi sínu. Henni fellur illa við grófleika og ósamræmi. Einkennandi fyrir vogina er sterk réttlætiskennd og það er helst að hún reiðist þegar hún sér aðra beitta órétti. Hún stendur því oft framarlega í baráttu fyrir réttlætismálum. Voginni fellur best að fást við huglæga vinnu og hefur hæfileika til að taka frumkvæði á félagslegum sviðum og láta samvinnu ganga vel. Boðorðin 10 fyrir foreldra: 1. Meta skaltu börn þín eins og þau eru ekki eins og þú vilt hafa þau. 2. Líta skaltu á sérhvert barn sem sjálfstæðan einstakling en ekki sem ?krakkann". 3. Þú skalt sinna þér vel en ekki lifa lífinu í gegnum börnin þín. 4. Taka skaltu vel eftir öllu sem vel er gert, hvort sem það er stórt eða smátt og viðurkendu það. 5. Láttu börnum þínum í té óyggjandi upplýsingar af fremsta megni og treystu þeim til að vega þær og meta og draga af þeim eigin ályktanir. 6. Þú skalt ekki láta börn þín nota þig eða misnota því að slíkt skaðar þau. 7. Þú skalt fela börnum þínum ábyrgð hvenær sem færi gefst svo sjálfstæði verði þeim ekki um megn, því börn eru skammtímalán. 8. Gera skaltu börnum þínum ljóst að þú elskar þau án skilyrða, hvort sem ákvarðanir þeirra falla þér í geð eða ekki. 9. Gefðu börnum þínum ráðrúm til að gera sér grein fyrir afleiðingum gjörða sinna í stað þess að halda yfir þeim hlífskildi endalaust, eins og þú hefur tilhneigingu til 10. Þú skalt gleðjast innilega þegar forsjár þinnar er ekki lengur þörf því þá og aðeins þá hefurðu haft árangur sem erfiði. |
| Þú ert gestur nr. 30999 |