Hæ,hæ og vertu velkomin!!! |
| Ég heiti Gunnar Bjarki Helgason |
|
|
Um mig:
Ég fæddist þann 26. júní 2003, 13 dögum eftir áætlaðan fæðingardag samkvæmt sónar. Nei, mér lá ekki mikið á þar sem ég hafði það bara svo gott í bumbunni hennar mömmu. Mamma var líka bara nokkuð róleg þar sem ég var nú líka hjá henni en það var mikið farið að bíða alls staðar í kringum mig.
Ég var rúmlega 14 merkur og 54 cm langur. Fæðingarsagan frekar löng, þar sem ég var eiginlega á báðum áttum um það að koma. Ljósan Kolla fann meira að segja eitt sinn þegar hún var að athuga útvíkkunina að ég hristi bara höfuðið. En þá vissi hún ekki að ég hristi höfuðið yfir þessum æsingi í henni mömmu. Allt í einu lá henni svo á í að koma mér í heiminn og ég var ekki alveg tilbúinn, naflastrengurinn var nefnilega smá fyrir mér og ég átti eftir að laga það mál áður en áfram yrði haldið. En þegar ég fæddist var naflastrengurinn nefnilega tvívafinn um búkinn á mér en hefur líklega verið um hálsinn á mér þarna þegar ég hristi höfuðið. Ég kom öskrandi í heiminn, öllum til mikillar gleði, og skoraði 9 og 10 á Apkar prófinu. Ljósan sagði: ,,Heilbrigð móðir og heilbrigt barn -og því sakaði tvívafningurinn ekki þar sem naflastrengurinn er svo langur og góður þannig hann herti ekkert að honum". Þess vegna hef ég getað hrist hann af mér þarna þegar hann var tvívafinn um hálsinn á mér. Pabbi klippti á naflastrenginn og Anna Lára ömmusystir mín vigtaði mig og mældi. Mamma og pabbi eru henni og ljósmæðrunum óendanlega þakklát fyrir hjálpina við að koma mér í heiminn. Mömmu fannst eiginlega bara eins og Anna Lára ömmusystir hefði ýtt mér út úr bumbunni þarna í lokin. Takk, takk. Ég kom í heiminn klukkan 19:23 og um klukkan 21:00 voru afi og amma á Selfossi og föðursystur mínar, þær Halla Karen og Ása Hlín mættar á svæðið til að skoða mig...og þeim fannst ég fallegastur. Það fannst mömmu minni og pabba líka og pabba varð að orði að hann hefði bara ekki trúað því að hann gæti þetta. Búið til svona fallegan strák. Ég er frumburður foreldra minna, Helga Rafns og Ingibjargar Fanneyjar. Þau hlökkuðu mikið til að sjá mig og samt varð ánægjan framar öllum vonum þegar þau loks sáu mig. Þannig ég hef svo sannarlega náð að heilla þau algerlega upp úr skónum. Já ég er rólyndismaður sem lét bíða eftir sér en líka mjög glaðvær. Barnalæknirinn Sveinn, sem skoðaði mig sólarhringsgamlan sagði þetta um mig: ,,Yfirvegaður drengur" þar sem ég öskraði ekkert á hann. Ég kann nú að vera kurteis og öskra ekki mikið á fólk!!! ;) Mín helstu áhugamál eru fólk, fólk, fólk. Ég elska ný andlit sem brosa til mín og svara oftast með brosi. Hláturinn er líka aldrei langt undan. Ég er hálfur selfyssingur og hálfur skagfirðingur og hefði helst viljað að Skagafjörðurinn og Selfoss væri á sama landshluta. En ég er nokkuð duglegur að ferðast. Nóg um mig í bili ;) og endilega kvittið í gestabókina :) Ykkar Gunnar Bjarki. |
|
|
|
Annað:
Við mamma erum saman heima á daginn þar sem mamma er í fjarnámi, ætlar að verða leikskólakennari. Pabbi vinnur við að búa til lífræna íslenska jógúrt hjá biobú. Sú hollasta á Íslandi. Hún kemur frá Dalalífsbænum í Kjós. Ég hef þó ekki séð myndina ;)
Litla systir mín www.biobu.is Viktoría Ósk frænka mín
Alexander Ari Björn Emilía frænka Óðinn Rafn Sigurður Elvar
Júníbörn 2003 Börn fædd 2003
Ágætis HTML leiðbeiningar Nokkuð mögnuð hreyfimyndasíða Hreyfimyndasíða Hreyfimyndasíða Disneybörnin Stórmyndasíða Fleiri flottar myndir Supersætar myndir Flottar myndir Hjálparsíða Ísabellu Barnahornið
|
| Þú ert gestur nr. 24278 |