LOKSINS NÝJAR MYND (albúm júní og júlí) þann 11. des
Við erum systkinin Hrafnhildur 5 ára og Guðmundur Týr 1 árs :)


Albúmið er læst en lykilorðið er millinafnið hans pabba einnig er hægt að senda tölvupóst á helgarun80@gmail.com


Hrafnhildur fæddist á Landspítalanum 7. apríl 2004 klukkan 13:06. Þegar hún fæddist var hún 3010gr (12 merkur) og 48cm. Hún átti að fæðast 1. maí en ákvað að kíkja í heiminn aðeins fyrr, mömmu og pabba til mikillar gleði :) Allt gekk vel og var hún það fallegasta sem mamma og pabbi höfðu séð (og er það enn). Hrafnhildur var með smá dökk brúnt hár og blá augu. Puttarnir hennar voru mjög langir og neglurnar langar og fallegar (á eflaust eftir að vera mikið öfunduð af þeim þegar hún eldist...). Tásurnar voru einnig langar og sést vel á þeim að hún er dóttir pabba síns :)
Hrafnhildur er svo heppin að eiga ömmur og afa úti á landi og er hún búin að vera á faraldsfæti frá því hún fæddist. Finnst svaka gaman að vera í bíl en mesta stuðið er þó að fara í flugvél...

Guðmundur Týr fæddist á Landspítalanum 13. mars 2008 klukkan 21:23. Þegar hann fæddist var hann 4500gr (18 merkur) og 54cm, töluvert stærri en stóra systir. Hann lét bíða eftir sér í 5 daga en allt gekk vel. Ótrúlega fallegur og sætur stór strákur og erum við öll rígmontin með hann. Litli kúturinn var með töluvert dökkt hár og dökkblá augu þegar hann fæddist. Guðmundur litli er skírður í höfuðið á afa sínum og langafa og svo fékk hann millinafnið Týr því það er svo töff, og það getur enginn neitað því að hann er mikill töffari!




Þú ert gestur nr. 36489