Velkomin !!! (Lykilorðið er seinna nafnið hennar Júlíu)
Við heitum Júlía og Ída ...og erum algerar sætumýslur :o)


Um mig:
Ég, frk. Júlía kom í heiminn þann 24. maí 2004, 15 merkur og 53 cm.
Mamma okkar heitir Gunnhildur Sara ('78) og pabbi minn heitir Júlíus ('75)

Ída litla systir fæddist 26. maí 2008. 16 merkur og 51 cm.
Pabbi hennar heitir Lasse ('73) frá Danmörku




Annað:
***Að eignast barn gerir það að verkum, að eilífu gengur hjarta þitt utan líkama þíns***

Yndislega stúlkan mín. Hún sefur og brosir og hlær,
andlitið svo fullt af forvitni og töfrum að mér finnst
heimurinn hafa verið skapaður henni til heiðurs.

Ég elskaði þig frá fyrstu stundu er ég sá framan í þig.
En hvernig átti mig að renna grun í allar þær furður
Sem leyndust í þessum reifastrang?
Þú ert yndið mitt alla daga og um alla tíð.

Dóttir okkar hafði sofnað fast
Með aðra örsmáa hendina
Út undan sængurfötunum.
Í henni hélt hún
Hjarta mínu.


ÁÐUR EN ÉG VARÐ MAMMA

Áður en ég varð mamma borðaði ég
matinn á meðan hann var heitur, gekk
í hreinum fötum og gat spjallað í
rólegheitunum í símann.

Áður en ég varð mamma gat ég
farið seint í háttinn, sofið út um
helgar, greitt mér daglega og gengið
um íbúðina án þess að stíga á leikföng.

Áður en ég varð mamma velti ég
því aldrei fyrir mér hvort
pottaplönturnar á heimilinu
væru eitraðar.

Áður en ég varð mamma hafði
enginn kúkað, pissað eða ælt á mig.

Áður en ég varð mamma hugsaði ég
skýrt, hafði fullkomið vald yfir
líkama mínum og tilfinningum
og svaf alla nóttina.

Áður en ég varð mamma hafði ég
aldrei haldið grátandi barni föstu til
þess að læknir gæti sprautað það
eða tekið úr því blóðprufu.

Áður en ég varð mamma hafði ég
aldrei brostið í grát við að horfa í
tárvot augu og þekkti ekki þá
hamingjuflóðbylgju sem getur
sprottið af einu litlu brosi.

Áður en ég varð mamma sat ég
aldrei langt fram á nótt og horfði á
barn sofa eða hélt á sofandi barni
vegna þess að ég tímdi ekki að leggja
það frá mér.

Áður en ég varð mamma vissi ég
ekki hvað ein lítil vera getur haft
mikil áhrif á líf manns og hversu
óendanlega sárt það er að geta ekki
kippt öllum vandamálum í lag.

Áður en ég varð mamma vissi ég
ekki að ég gæti elskað svona heitt og
hversu dásamlegt móðurhlutverkið væri.

Áður en ég varð mamma þekkti ég
ekki þetta einstaka samband móður
við barn sitt og gleðina sem fylgir
því að gefa svöngu barni brjóst.

Áður en ég varð mamma vaknaði ég
ekki tíu sinnum á nóttu til þess að
aðgæta hvort allt væri ekki
örugglega í lagi.

Áður en ég varð mamma hafði ég
ekki kynnst hlýjunni, kærleikanum,
sársaukanum og ævintýrinu sem fylgir
því að eiga barn.






FALLEG SAGA :O)


Gömul þjóðsaga segir frá barni sem var við það að fæðast.Barnið snýr sér að Guði og segir:

Mér er sagt að ég verði sendur á jörðina á morgun,en hvernig get ég lifað eins lítill og ósjálfbjarga sem ég er?

Ég hef valið engil fyrir þig úr hópi engla og hann bíður eftir þér.Þessi engill mun sjá um þig.

En segðu mér,hérna á himnum geri ég ekkert annað en að syngja og brosa og það er nóg til þess að vera hamingjusamur?

Engillinn þinn kemur til með að syngja fyrir þig,hann brosir til þín alla daga og þú verður umlukinn ást hans og þannig verður þú hamingjusamur.

En hvernig get ég skilið þegar fólkið talar við mig þar sem ég þekki ekki tungumálið sem mennirnir tala?

Engillinn þinn segir falleg orð við þig,fallegustu orð sem þú hefur nokkurn tímann heyrt og með mikilli þolinmæði og kærleik kennir hann þér að tala.

En hvað geri ég ef ég vil tala við þig?

Þá setur engillinn þinn hendurnar þínar saman og kennir þér að biðja.

Ég hef heyrt að á jörðinni séu til vondir menn.Hver getur varið mig?

Engillinn þinn mun verja þig,þó svo það kosti hann lífið.

En ég verð alltaf sorgmæddur því ég sé þig ekki oftar?

Engillinn þinn á eftir að segja þér frá mér og vísa þér veginn í áttina til mín,en þó mun ég alltaf vera við hlið þér.

Á þessu andartaki færðist ró yfir himininn og guðdómlegar raddir heyrðust og barnið sagði:

Kæri Herra,þar sem ég er að fara segðu mér,hvað heitir engillinn minn?

Nafn hans skiptir ekki máli,þú kallar hann

bara ,,mömmu"







Þú ert gestur nr. 55146