Júní 2008
Ég held að Ída sé hrædd að láta skera sig...
Við vorum að fara að hitta prestinn daginn sem Ída var skírð og Júlía sagði þetta uppúr eins manns hljóði. Hún var voða hrædd um litlu systur og var viss um að hún myndi meiða sig þegar presturinn myndi SKERA hana ...en ekki skíra ;o) Hefur eitthvað misheyrt litla skinnið
Október 2007
Mamma, mig langar líka í flækjur !
Mamma hennar Emmu kom að sækja hana og sagði að það væru rækjur í matinn hjá þeim, Júlía vildi endilega fara með og fá líka að borða FLÆKJUR
Október 2007
Hey, er ég leir?
Ég var að nudda á henni fæturna og henni fannst ég hnoða eitthvað of mikið :o)
Október 2007
Nei, ég kann bara að rífa og opna!
Ég bað Júlíu að hjálpa mér að pakka inn afmælisgjöfinni hans afa...
Desember 2007
Ég fór í Kafnafjörð
Ég spurði hana hvað hún hafði gert með pabba í dag. "Ég fór bara í Kafnafjörð með pabba" Vildi svo ekkert hlusta á að þetta héti nú HAFNARfjörður, mamma var bara rugluð !
Janúar 2008
Þú mátt skipta á kúkableyjunum
Við vorum að tala um litla barnið í maganum á mömmu og Júlía sagði spennt: Hey mamma, ég get líka skipt um bleyju á litla barninu! "Já auðvitað" svaraði mamma. Eftir smá stund bætti hún þó við: En þú mátt alveg skipta á kúkableyjunum mamma...
Ágúst 2007
Æji mamma, typpid á mér !!!
Ef sokkabuxurnar eru of litlar og kofid eitthvad nedarlega ad mati prinsessu, tá urrar hún thetta á mømmu sína ;o)
19.09.07
Hugmynd!!!
Thegar hún er spennt fyrir einhverju eda var ad fatta eitthvad nýtt, thá hrópar hún: HUGMYND !!!
28.08.07
Ég ætla nú bara samt að segja slökkva...
Júlía var að baða Barbý í vaskinum og bað afa að "slökkva" á vatninu fyrir sig. Afi útskýrði fyrir skottu að þegar maður talaði um vatn þá segði maður "skrúfa fyrir" en ekki slökkva. Hún jánkaði því góðlátlega, en um leið og afi fór fram, heyrðist lágt inni á baðherbergi: "Ég ætla nú bara samt að segja slökkva..."
Ágúst 2007
Hey mamma, ég er Shrek!
Hún fann box með eyrnapinnum og spurði til hvers þetta væri. Ég sagði henni að þetta væri til að hreinsa eyrun. Litli vísindamaðurinn stakk pinnanum í eyrað og þar sat hann fastur. Hún setti annan í hitt eyrað, fór fram í spegil og kallaði: "hey mamma, ég er Shrek!!!"
Júlí 2007
Hey, konan er með buff !!!
Júlía og pabbi voru að labba í Danmörku og sáu múslimakonu í fullum klæðum ;o)
Júlí 2007
Hey mamma! Hættu þessu væli !!!
Ég var eitt kvöldið að nöldra í henni að fara nú að hátta sig...
Júlí 2007
Þegar pabbi var lítill, þá var ég alltaf að halda á honum...
Júní 2007
"Nei mamma!!! Þú ert óþekk!!! OG LÍTIL!!!"
Ég var að reyna að draga hana inn að lúlla úr útileikjunum með Emmu en eitthvað féll það ekki í kramið... hehe
Maí 2007
Jájá mamma mín, en hann er bara fastur...
Ég var að knúsa bumbuna hennar og sagði: "ég Á þessa bumbu! OG þennan nafla!" og potaði í hann. Júlía svaraði: "Jájá, mamma mín, þú mátt eiga hann - en hann er bara fastur..." - hallaði undir flatt og klappaði mér á höfuðið :o)
Maí 2007
Mamma, þegar þú varst lítil þá var ég alltaf að passa þig :o)
Hehe...
Maí 2007
Uss afi, ég er að tala !!!
Við sátum í bílnum og afi var að útskýra fyrir henni að litlu kindurnar væru lömb. Henni fannst það ekki rétt og mótmælti, afi hélt áfram að útskýra og mín varð bara reið og öskraði á hann :o)
Maí 2007
Ormurinn má ekki sleikja mig !!!
Við vorum úti í garði að stússast og nokkrir ánamaðkar birtust við moldarrótið hjá mömmu.
Allt í einu stóð sú stutta útí horni og gargaði "ormurinn má ekki bíta mig!!!" Ég sagði henni að ormar væru ekki með tennur og gætu því ekki bitið hana. Þá kom annað öskur stuttu seinna: "en ormurinn má ekki sleikja mig!!!"
Maí 2007
Viltu setja batterí í fótana !!!
Uppáhalds dúkkan hennar (hún Jútta, tuskudúkka :o) vildi ekki standa þrátt fyrir miklar tilfæringar og reiðiöskur.
Við höfðum stuttu áður sett batterí í litla dúkku sem getur skriðið og Júlíu fannst ansi súrt að mamma gæti ekki bara sett batterí í Júttu líka svo greyið gæti labbað...
Janúar 2007
Haaaa! Kúkafíl ??? (húkka bíl)
Við hlustum oft á Útvarp Latabæ í bílnum og ALLTAF þegar Súperman lagið kemur og gaurinn segir "húkka bíl!" þá hváir sú stutta alltaf :o) Finnst ekkert í lagi að segja kúkafíla inní miðju lagi, hehe
17.04.07
Sól, sól SKÍT á mig...
Neih, sól sól skít, neih - sól sól skít... neih, MAMMAAAAA, kanniggi þetta laaaaaag... Kenndu mér !
Mars 2007
Já, en ég er stundum líka stór !
Júlía mús var lasin og lá uppí sófa.
Hún var svo veikluleg undir sænginni að ég sagði við hana:
"æji, músin mín, stundum ertu svooo lítil"
Þá rétt náði sú lasna að segja:
"já, en stundum líka stór!"
12.03.07
Nei, Branko pissaði Á mig !!!
Júlía pissaði í rúmið um nóttina og varð frekar vandræðaleg um morguninn...
Ég spurði hana hvort hún hafi pissaði í rúmið okkar
"Nei, Branko pissaði á mig !!!"
=Branko litli úr leikskólanum átti þá að hafa komið um nóttina og pissað á hana!!!, hehe
05.03.07
Ég viliggi vera kálfur!!! (aka. álfur)
Júlía var með pæjuhúfu sem nær ekki alveg niður fyrir eyru.
Annað eyrað spratt útundan og mín varð alveg brjáluð!
Vildi sko ekki vera kálfur! (s.s. ÁLFUR) hehe
(þegar eyrun standa útundan húfunni, þá er litla skott ALVEG einsog lítill, sætur álfur :o)
20.02.07
Það má bara skjóta óþekka krakka!
Júlía: Pæng! (á mömmu með e-u röri sem líktist byssu...)
Mamma: Júlía, mín - það má ekki skjóta á fólk !
Júlía: Hehe, ég veit - bara á óþekka krakka! :o)
15.12.06
Hey mamma! Franskar!
Mamma var að þrífa og hún fann gúmmíHANSKANA mína :o)
Des. 2006
Núsgal segja, núsgal segja - hvernig gamlir kallar geeeera: Klak'í nefið klak'í nefið
Des. 2006
Mamma: Viltu Kókómjólk eða Svala?
Júlía: Bíddu ég ætla að telja...
Þá meinar hún, ég ætla að VELJA - hehe
Des. 2006
...við jólatréð í stofunni í gær, ég læddist létt á tá, ...með mjóa kló á tá, og mjúkan feld...
Blandar saman jólalaginu og Mikka Ref laginu :o)
Des. 2006
Andi stóra gutan átta, áttað færann tröllunum. Þá var illt í jólakirkju öllum jólavöllunum...
2. erindið í Jólasveinar einn og átta
Haust 2006
Ekki skamma mig!!! Ekki vera vond við mig mamma!!! Vertu góð!!!
Þessa romsu fær mamma þegar hún vogar sér að banna Júlíu eitthvað. Sérstaklega er þetta sniðugt þegar við erum útí búð og allir líta við :o/ til að líta augum þessa hræðilegu mömmu :o/
Jan. 2006
Hvar eru jólin??? Jólin farin???
spurði hún þegar hún fannn ekki jólatréð inni í stofu hjá ömmu
Des. 2006
Mamma, ég ætla að hvísla þér málaleynd...
Meinti sko leyndarmál :o)
01.11.06
"svo er hún með enga skó, á hnénu lítið ó-ó-ó..."
Úr laginu, "Dansi, dansi dúkkan mín" Er sko farin að semja texta strax ;o)
01.11.06
"...dí dí dílu ganga"
"dýr til hvílu ganga" = Dvel ég í draumahöll (Dýrin í Hálsaskógi)
19.10.06
"Nei, ég er frek!"
...hrópaði sú stutta þegar hún vildi ekki koma úr rennibrautinni í Ikea :o) Það er ágætt að viðurkenna það bara strax ;o)
30.09.06
Júlía og Addý að renna sér í rennibraut:
Júlía: Addý, ég ætla að grípa þig!
Addý: Ertiggað djóka Júlía??? Ég er of stór!!!
Júlía: Júts, hehe - é ebbarað djóka!!!
=Gelgjan strax byrjuð!!! :o)
18.09.06
Mamma, ég Á Siríði Bögg - hún er bróðir minn!
Sigríður Björg er lítil vinkona hennar :o)
17.09.06
"Alltílæ, alltílæ - ég er með bleyju!!!"
Júlía talaði uppúr svefni í nótt, hefur greinilega miklar áhyggjur af þessu bleyjuleysi ;o)
18.09.06
Ég var í Tívolí áðan mamma! :o)
Júlíu er byrjað að dreyma svo mikið og hún fattar ekki hvað það er :o) Tilkynnti mér í morgun að hún hefði verið í Tívolí áðan og langaði aftur og ég átti að koma með :o)
15.09.06
Ís til dæmis...
Júlía var hjá ömmu Gunnu: "Amma, ég er illt í maganuuuum. Ég held það að ég er svöng. Ég vil ís til dæmis" :o)
11.09.06 Mamma snúður!!!
Hún sá trúð í sjónvarpinu :o)
Ágúst 2006
Hálft kex = hálf sex
Júlía spurði hvað klukkan væri og mamma svaraði: "hálf sex". Þá fór hún til dúkku og sagði við hana, "klukkan er hálft kex" :o)
Ágúst 2006
Kona fékk engin blóm :o( = The Bachelor
Mamma var að horfa á The Bachelor og fattaði ekki að skvísí var að horfa líka. Hún vorkenndi svo greyið konunni sem fékk enga rós ;o)
Ágúst 2006
Kókóbíll = krókódíll
Sá krókódíl í sjónvarpinu :o) Ekki séns að láta hana segja þetta rétt :o)
Júlí 2006
"Hérna er rassinn minn, og kúúúúkurinn..."
Var að syngja lagið um líkamann, með Söngvaborg. Í Söngvaborg er sagt: "..hérna er rassinn minn, og BÚKURINN... :o)
Júlí 2006
Hey, kartafla!!! sagði hún og benti á fæðingarblettinn sinn :o)
Henni finnst orðið fæðingarblettur aðeins of erfitt, ákvað því bara að fæðingarblettirnir hennar tveir væru kartöflur :o)
Bílakúkur!!!
Það var fuglaskítur á bílrúðunni hennar meginn og hún hrópaði þetta þegar hún var sezt í stólinn sinn :o)
Jan. 2006
Gu'hrápir = Guð hjálpi þér
Þegar þarf að hjálpa Júlíu segir hún alltaf "mamma, gu'hrápir". Mamma skildi ekki alveg fyrst og leiðréttir hana alltaf "mamma hjálpa!". Svo hnerraði mamma um daginn og þá heyrðist í litlu skott "Gu'hrápir". Þá hélt hún að þetta þýddi það sama :o)
Jan. 2006
Mamma, attisu!!!
Ef mamma gerir eitthvað sem Júlíu mislíkar, hikar hún ekki við að skammast og segir "mamma, hættu þessu"!!! Sérstaklega er þetta notað ef mamma er að hjálpa við eitthvað sem hún getur sko alveg sjálf!