Jæja, núna er litla systir komin í heiminn. Hún fæddist 26. maí kl. 9.55. Það tók mömmu 4 tíma að koma henni í heiminn, vatnið fór kl. rúmlega 5 um nóttina og við vorum komin uppá spítala kl. 6. Allt gekk rosa vel og litla sponsið var 51 cm. og 16 merkur (4.035 kg.) Við vorum svo öll komin heim í Unufellið um kl. 19 um kvöldið. Júlía Sara í skýjunum yfir litla barninu sínu og er endalaust dugleg við að hjálpa til :o)
Ég set inn fleiri myndir mjög fljótlega
Noh, núna er litlan mín að verða fjögurra ára á morgun !!! Við héldum æðislega afmælisveislu í Veröldinni okkar um þarsíðustu helgi, því litla systir á að fæðast rétt í kringum afmælisdaginn minn. Mamma vildi hafa veisluna fyrir þann tíma svo hún fengi örugglega að vera með í partýinu, en ekki uppá spítala... Við buðum öllum stelpunum á deildinni minni á leikskólanum og svo auðvitað henni Sigríði Björgu minni. Mér fannst rosa gaman og mamma var líka ánægð með daginn. Amma bakaði Barbie-köku daginn áður og svo kom pabbi með aðra slíka í veisluna.
Ég er rosa spennt að verða stóra systir og alveg furðu þolinmóð að bíða eftir litla skottinu. Mamma heldur að ég fái smá sjokk því ég held alltaf að hún sé svo pínulítil, vill ekki trúa því að hún sé orðin jafn stór og Jútta, dúkkan mín :o) enda þó ég sé alla daga að fá lánuð föt frá litlu sys og máta á dúkkurnar.
Ég er bara hálfan daginn í leikskólanum þessa dagana, við mamma vöknum bara þegar okkur hentar, alveg einsog prinsessurnar sem við erum ;o) Svo röltum við í leikskólann í hádeginu, fínt að labba saman núna þegar mamma rétt mjakast úr sporunum, hehe, þá förum við jafnhratt. Þetta er ofboðslega notarlegt og æðislegur tími fyrir okkur saman. Mamma hélt að litlan yrði löngu komin en hefði aldrei viljað skipta á því og þessum tíma með elsku stóru stelpunni sinni :o)
Við látum vita hérna þegar bumbuskottið lætur loksins sjá sig, búumst alveg við því að bíða eftir henni þó hún eigi að koma um helgina. Notum tímann bara vel þangað til :o)
Kærlig hils,
Júlía 4ra ára prinsessa
Jæja pæja !!!
Við erum að fara aftur, já AFTUR til Danmerkur við skvísurnar :o) vííííí !!! Legoland, Tívolí og ströndin verða heimsótt ásamt Löveparken og fleira skemmtilegt fyrir 3ja ára ;o) Júlía hlakkar rosa mikið til að hitta Lottu sína aftur, er búin að sakna fólksins á Torvegade...
Við förum snemma snemma í fyrramálið og mamma er byrjuð að fara með flughræðslumöntruna sína :o/
Verð dugleg að taka myndir og vonandi kaupi ég nýja og þægilegri myndavél barasta.
Vi ses senere - har det godt alle sammen :o)
Flökku-Sörurnar
Pallurinn okkar er kominn í gagnið og alveg SVAKAlega flottur auðvitað :o) Júlía er úti alla daga fram á kvöld að leika við Emmu vinkonu og krakkana í hverfinu. Þetta er orðin alger félagsmiðstöð hérna úti en það er líka alveg frábært! Núna eru bara 3 leikskóladagar eftir og þá erum við mæðgur komnar í 2ja vikna frí!!! Jibbý!!! Svo verður Júlla dúll í fríi í 2 vikur í viðbót með ömmu Gústu og Dísu sinni. Við mæðgur ætlum til Danmerkur á sunnudaginn að heimsækja pabba Júlla og förum svo áfram til Ástu frænku. Við verðum þar úti allt fríið okkar :o) Júlía hlakkar ótrúlega til, er voða montin með vegabréfið sitt og ætlar sko í STÓRA tívolíið og dýragarðin þar sem eru ljón!!! Litla skvís er farin að sakna pabba doldið mikið, það verður gaman að hitta hann :o) Svo eru Heiðmundur og Eydís frænka (Ástubörn) að koma í heimsókn á morgun, ég hef ekki séð þau í laaaaaaaangan tíma, Mummi bara orðinn unglingur!!! Litla barnið, sem mér finnst svo stutt síðan ég var að skipta á!!! Þau verða í 2 daga, svo eru það írskir dagar á Skaganum á fös.-lau. og svo afmæli hjá Emmu á sunnudaginn og svo bara vúúúúú!!! í flugvélina :o) Við fljúgum á miðnætti, það verður eitthvað ævintýri hjá skottulottu að vera á ferðinni svona um nótt :o/ En hún er svoddan nátthrafn einsog mamma ;o) Jæja, frk. Flughræðsla vonar að ferðin gangi vel :o/ allaveganna er mikill spenningur hér á bæ :o)
Farvel imellem alle venner og lad solen skinne i jeres have og hjerne ;o)
Kys og knuds
Til hamingju með afmælið elsku hjartans ástargullið mitt !
Mér finnst svo stutt síðan ég var að reyna að kreista þig út í þennan heim, en það eru komin heil 3 ár síðan !!! Bestu ár lífs míns og allt þér að þakka ástin mín :o) Ég veit ekki hvar ég væri án þín, þú ert mér allt og meira en það... Vonandi áttu frábæran dag í leikskólanum þínum með kórónuna, í kúrekastígvélunum og með afmælisísinn.
Svo höldum við svaka ammlispartý um helgina !!! Jei !!! ;o)
Elska þig meira en allt !
Mamma mús
Yndislegasta músin mín...
Hún segir alltaf reglulega uppúr þurru: "mamma, þú ert svo góð við mig" brosir útað eyrum og knúsar mig! Mér finnst svo endalaust vænt um það :o) Það sýnir að hún er greinilega að velta þessari væntumþykju fyrir sér ;o)
Reyndar notar hún þetta líka stundum áður en hún þarf að biðja mig um eitthvað, hehe ;o)
Ég er að fara út til USA á föstudaginn með ma, pa, bró og fl. í fjölsk. og ég kvíði svo ENDALAUST fyrir að vera án hennar í 2 HEILAR VIKUR !!! :O( grát og grát og grát !!! Ég var frá henni í viku í fyrrasumar og það var friggin' ERFITT !!! Veit ekki hvort ég mun halda geðheilsunni :o( En það verður víst að koma í ljós...
En allaveganna er hún Júlía Sara alveg yndisleg og frábær og fyndin og góð og blíð og hlý og gáfuð og klár og dugleg og og og... þið vitið reyndar allt um það sem þekkið hana ;o) Vildi bara minna á það - hehe
Bless í bili (vonandi, ef ég kemst heil heim... :o/ *flughræðsla dauðans!!!*
Yfir-Saran
Hver á ömmu sem fer með manni að renna á snjóþotu?????
ÉÉÉÉÉÉÉÉÉG
Fórum áðan mæðgurnar 3 og mikið svakalega var gaman!!!! :o)
Júlía ELSKAR að dansa!!! Um leið og hún heyrir einhverja tónlist þá er komið dill ! ;o) og þvílíku sporin, ég held ég þurfi að senda hana í dansskóla bara strax! hehe
Hún er píííííínu hrædd við jólasveinana en er samt svaka spennt. Bara bezt að fara ekkert of nálægt ;o) Held að sú hræðsla hverfi þegar Jóli fer að gefa henni í skólinn í des. ;o)
Ég var hjá pabba í sveitinni (Bifröst) alla helgina og fannst rosa gaman. "Músin dáin" !!! var það fyrsta sem hún sagði mér þegar hún kom inn úr dyrunum. Hún hafði þá séð dána mús :o( "Hún var ekki sofandi"!!! bætti hún við...
Hún er farin að segja "ég elska þig" uppúr þurru og bræðir mömmuhjarta í klessu!!! :o) :o) :o)
Alltaf yndislegust og beztust :o)
Við vöknuðum snemma einn morguninn. Litla mús var varla vöknuð þegar hún skreið uppí fangið á mér með lokuð augun... "Ég Á þig mamma... þú ert best... ég ELSKA þig..." HVERSU betur er hægt að byrja daginn??? Þetta var í fyrsta skipti sem hún sagði "elska" við höfum alltaf sagt "æ lov jú". Skrítið hvað svona litlir hlutir geta gert mann hamingjusaman :o) ég er ennþá með hlýtt í hjartanu :o)
Ég elska þig líka, útaf lífinu elsku hjartað mitt...
Hæ, ég er duglega stelpan! :o)
Mamma er að merkja öll útifötin mín með flottum borðum með nafninu mínu og hjarta fyrir framan það. Júlíu finnst það svaka flott og biður alltaf um að fá að sjá miðann áður en hún fer í úlpuna :o) Hún lærði stafinn sinn, minn og ömmu s.s. J, S og G í vor og er ótrúlega dugleg að þekkja þá og kann að skrifa stafinn S :o) En svo í morgun þá benti hún á S-ið á miðanum og sagði: "mamma, þetta Sollu Stirðu stafur!" Vá hvað mamman var ztolt!!! :o) Hún á samt ekki lagt að sækja þetta því bæði mamma hennar og Daði bróðir lærðu að lesa 4ra ára :o) Duglegust!!!
Kv. Ztolta mamman ;o)
P.S. Lagalisti síðustu daga: Mánudagur, þriðjudagur + Janúar, febrúar...
Mín er sko hætt með bleyju takk fyrir!!! Er reyndar með bleyju á nóttinni en allan daginn er hún bleyjulaus skottan :o) Ótrúlega dugleg stelpa. Meiraðsegja finnst henni óþægilegt að pissa í bleyjuna eftir að hún er komin uppí rúm.
Hún er orðin svoooo mikil skvísa!!! Segir djók, OK og ómægod í gríð og erg :o) Mömmu finnst það svooo fyndið :o)
Hún er farin að syngja á fullu og það er svo obboðslega sætt :o) Stundum kann hún textann ekki alveg og það er ennþá sætara :o)
Algengustu lögin:
Afmælissöngurinn sunginn oft á dag. Oftast "hann á ammæl'ún Þúúúúú"
5 litlir apar (kom herra kókóbíll...) hehe
Dansi, dansi dúkkan mín (svo er hún með enga skó, á hnénu lítið ó-ó-ó) hehe
Kalli Nói = Gamli Nói
Meistari Jakob
Brunabílalagið = mamma kann það ekki :o/ (babú babú, brunabíllinn flautar - hvert er hann að faaaara...) mamma kann ekki meir - hehe
Svo eru allskonar lög sem bara Júlía kann, eða býr til :o)
Oh, mamma er svo stolt af litlu músinni sinni :o) Skvísan fór sko bleyjulaus í leikskólann í morgun, í nýju, fínu Barbie-nærbuxunum sínum :o) Vá, mömmu finnst ég orðin svo stór og dugleg!!! :o)
Vá, það er komið hálft ár síðan mamma skrifaði hér síðast!!!
Ég er allaveganna orðin ótrúlega stór og klár :o) Ég kunni að telja uppá 10 áður en ég varð 2ja ára. Ég geri mitt í koppinn ef ég er bleyjulaus. Ég syng með leikskólalögunum og kann fullt af táknmáli. Ég er núna á "ha" tímabilinu og "ka gerðist" ógó sætt :o) Ef mamma meiðir sig, þarf ég að hugga hana og segi "fyrirgefðu" (þó það sé ekkert mér að kenna....) Ég uni mér vel á leikskólanum og er löngu hætt að kvarta þegar mamma fer með mig á morgnana. Stundum vill ég ekki einusinni koma heim! Ég tala nottla á fullu og er mikið farin að spá í hlutunum og er dugleg að spyrja hvað allt heitir. Mér finnst ótrúlega gaman í sundi og skottast útum allt með handakútana mína. Mér finnst mjög gaman að fara til ömmu Gunnu og spyr oft eftir leikskólann: "hitta ömmu Gunnu?" Hún er nú að fara að flytja í næstu götu eftir nokkrar vikur þannig að það verður ekki mikið vandamál ;o) Leikritið um Benedikt Búálf er í uppáhaldi, svo og Söngvaborg og Stubbarnir (já ennþá!!!) Tóti tannálfur er flottastur í búálfaleikritinu og ég á græna skotthúfu sem ég kalla Tótahúfuna. Hún er sko flottust! ;o)
Svo varð ég 2ja ára 24. maí :o) Það kom fullt af fólki í ammlið mitt og ég fékk margar flottar gjafir. Fékk rennibraut frá mömmu sem er mjööööög vinsæl og það þarf alltaf að taka nokkra rúnta í henni á dag. Svo fékk ég Ingu Rós frá Svövu, hún er alveg uppáhalds núna, lítil dúkka með grænt hár.
Ég fer til pabba aðrahvora helgi og við gerum alltaf eitthvað skemmtilegt saman. Ég er soldið úrill stundum þegar ég kem heim frá honum, en mamma er að vona að það sé bara eitthvað tímabil. Það er svo erfitt að vera lítil og skilja ekki alveg...
Ég og pabbi förum í sumarfrí 2 vikur í júlí og svo förum við mamma saman í aðrar 2 vikur þar á eftir. Þá skal sko vera gaman! :o)
Bið að heilsa öllum í bili sem eru að fylgjast með mér. Lofa að halda áfram að vera svona sæt ;o)
Kv. Júja