![]() |
| Ég heiti Valur Áki. Ég á heima í Hafnarfirði með mömmu pabba og stóru systur Elísu Rún |
|
|
|
|
|
um mig
Ég fæddist á Landspítalanum þann 8 október 2003. Ég fæddist tæpum sex vikum fyrir tímann, ég reyndi að koma 12 vikum of snemma en það líkaði ekki læknunum svo mamma var lögð inn á spítala og náði að halda mér í sér í sex vikur en þá fékk ég nóg og ákvað að koma í heiminn. Mamma var sett af stað en ekkert gekk, svo eftir 12 tíma var ég var tekinn með bráðakeisara. Ég var 46cm og 2316 gr við fæðingu. Ég þurfti að vera á vökudeild í rúmar 3 vikur. Ég er mjög góður og fallegur strákur en mamma og pabbi eru samt að segja að ég sé smá frekur en ég segi að ég sé bara ákveðinn. Mamma mín heitir Ásdís Erla Valdórsdóttir og er fædd 1976, hún er frá Akureyri. Pabbi minn heitir Svanur Már Snorrason og er fæddur 1971, hann er úr Hafnarfirði. Ég á eina systir sem heitir Elísa Rún, hún er fædd 11. ágúst 1999.
Elísa stóra systir Valdór Liljendal og Arnar Liljendal frændur mínir Óli , Snorri og litla systir Kristjón Turoa frændi minn Eva María Bjarki Snær Bryndís, Sara og Karen Daníel Þór og Stefán Máni Fyrirburar
VOGIN 23. september - 23. október Börn í vogarmerkinu eru oft glaðleg og broshýr og eru oftar en ekki börnin sem fá bros frá hinum sem bíða á biðstofu læknisins. Þau eru sjarmerandi og heilla aðra upp úr skónum. Félagslyndi einkennir vogina frá fyrstu tíð og litla vogin elskar að hafa margt fólk í kringum sig. Vogarbarn sem þarf að búa við einangrun getur orðið geðstirt, innhverft og óöruggt en þegar allt leikur í lyndi er það opið og hresst. Vogin á mjög erfitt með að gera upp hug sinn og virðist oft hafa lítinn viljastyrk. Þess vegna er mikilvægt að foreldrar hjálpi voginni að rækta með sér sjálfstæði og ákveðni meðal annars með því að fela henni ákveðin verkefni sem reyna á ákvarðanatöku. Líklegt er að Vogin spyrji álits og því er hægt að svara með því að spyrja: ?Hvað finnst þér?? Síðan þarf að gefa henni næði til að vega og meta hlutina áður en hún tekur ákvörðun. Vogin er listræn í eðli sínu og mikilvægt að hlúa að þeim eiginleikum og skapa henni aðstöðu til að þroska listræna hæfileika sína.
Nafnið mitt Valur Fuglsheitið valur. Áki Nafn þetta er ýmist talið koma úr fornháþýsku og þá frá orðinu "ano" sem merkir forfaðir, eða þá frá gríska orðinu "agat" sem merkir saklaus.
Boðorðin 10- Fyrir foreldra 1. Meta skaltu börn þín eins og þau eru ekki eins og þú vilt hafa þau. 2. Líta skaltu á sérhvert barn sem sjálfstæðan einstakling en ekki sem ?krakkann". 3. Þú skalt sinna þér vel en ekki lifa lífinu í gegnum börnin þín. 4. Taka skaltu vel eftir öllu sem vel er gert, hvort sem það er stórt eða smátt og viðurkendu það. 5. Láttu börnum þínum í té óyggjandi upplýsingar af fremsta megni og treystu þeim til að vega þær og meta og draga af þeim eigin ályktanir. 6. Þú skalt ekki láta börn þín nota þig eða misnota því að slíkt skaðar þau. 7. Þú skalt fela börnum þínum ábyrgð hvenær sem færi gefst svo sjálfstæði verði þeim ekki um megn, því börn eru skammtímalán. 8. Gera skaltu börnum þínum ljóst að þú elskar þau án skilyrða, hvort sem ákvarðanir þeirra falla þér í geð eða ekki. 9. Gefðu börnum þínum ráðrúm til að gera sér grein fyrir afleiðingum gjörða sinna í stað þess að halda yfir þeim hlífskildi endalaust, eins og þú hefur tilhneigingu til 10. Þú skalt gleðjast innilega þegar forsjár þinnar er ekki lengur þörf því þá og aðeins þá hefurðu haft árangur sem erfiði.
Viltu senda mömmu póst. Senda póst! Viltu senda pabba Senda póst! |
| Þú ert gestur nr. 12168 |