Dagmar Lilja & Elín Ósk
Elín Ósk 3 ára :)


Systurnar
Ég, Dagmar Lilja kom í heiminn 24. nóvember 2003, og er því 6 ára gömul. Ég fæddist í Reykjavík, var heilir 17 merkur og 54 cm. Nú er ég orðin stóra systir og er alltaf að knúsa litlu systur mína. Mér þykir skemmtilegast að dansa og syngja, og mamma & pabbi eru nokkuð viss um að ég sé efni í leikkonu, því ég er víst mjög dramatísk. Nú er ég í 1.NS í Grunnskóla Hornafjarðar og er mjög ánægð með skólann minn :-)

Litla systir mín heitir Elín Ósk, fæddist 4. janúar 2007 líka í Reykjavík og er því 3 ára gömul. Hún var aðeins minni en ég, eða 4040 gr og 52 cm. Við fengum svakalega góðar móttökur hjá Tobbu ömmusystur og ofurljósu, en hún tók á móti okkur báðum.
Mamma okkar heitir Íris og pabbi Óskar og eru þau voða montin að eiga svona fínar & sætar stelpur.





*Systurnar & stjörnumerkin*
Bogmannsbarnið Dagmar Lilja
22. nóvember - 21. desember

Lítill fjörkálfur hefur litið dagsins ljós. Bogmannsbarnið er að öllu jöfnu glaðlegt og jákvætt og þægilegt í návist. Það þarf mikla hreyfingu og líklegt er að það fari snemma að ganga og skoða heiminn því bogmaðurinn er merki ferðalaga og strax í bernsku birtist þörfin fyrir ævintýraferðir af ýmsu tagi. Litlu bogmannskrílin þurfa að hafa gott pláss til að hreyfa sig en ef þau fá ekki útrás fyrir orku sína verða þau eirðarlaus og uppstökk. Bogmenn hafa yfirleitt yndi af íþróttum og hið dæmigerða bogmannsbarn er iðulega á kafi í alls konar íþróttaiðkunum. Listin að ala upp bogmann er fólgin í því að finna jafnvægi á milli frelsisþarfar annars vegar og ábyrgðarkenndar og aga hins vegar. Foreldrar ættu að veita honum aðhald og venja hann á að ljúka því sem hann er að fást við áður en hann byrjar á nýju verki. Hann á það til að vera mjög fljótfær og nokkuð kærulaus og því þarf að hjálpa honum að þroska með sér dómgreind og skynsemi. Bogmannsbarnið verður mikið á ferðinni og um leið og það fer að komast sjálft ferða sinna leggur það í ferðalag um nágrennið og síðan lengra þannig að það getur verið erfitt að hafa stöðugt augun á þessu barni. Góða ferð.

Steingeitin Elín Ósk
22. desember - 19. janúar


Steingeitin er alvarlegasta stjörnumerkið og oft er sagt að hún fæðist gömul og verði yngri eftir því sem árin færist yfir. Steingeitin er vel skipulögð og er ung að árum farin að taka þátt í rekstri heimilisins. Hún á stundum erfitt með að hafa gaman af lífinu og ekki er ólíklegt að barnið þitt velji frekar að raða fötunum sínum í skápinn en að fara út að leika. Mikilvægt er að foreldrar kenni börnum sínum að það er í lagi að slaka á og leika sér og að fullkomnun er ekki einungis ómöguleg heldur einnig mjög ópraktísk. Steingeitin er haldin fullkomnunaráráttu og óttast fátt meira en að missa sjálfsstjórn og þar með tök á tilverunni. Hún verður mjög óörugg ef hún hefur ekki gamalgrónar reglur og hefðir til að styðjast við og ef þær eru ekki til staðar er hún fljót að búa til reglur sjálf. Börn í steingeitinni eru mjög athugul, skynsöm og metnaðargjörn og dæmigerðar geitur vita allra merkja fyrst hvað þær ætla sér í lífinu. Mikilvægt er að kenna steingeitinni að tjá tilfinningar sínar, slaka á og sjá bjartari hliðar tilverunnar og ekki síst að ýta undir skopskyn hennar.