Velkomin(n) á heimasíðuna mína
Ég heiti Guðmundur Bjarni


Um mig:
Ákváðum að læsa síðunni, lykilorðið er gælunafnið á eldri bróður mömmu fyrir þá sem vita það, annars bara að senda póst.

Ég fæddist þann 11.11.2003, klukkan 20:52. Var rúmar 18 merkur og 53 cm. Hárið á mér við fæðingu var dökkt en það er farið að lýsast og augun eru dökkblá. Ég er algjör broskarl, vakna brosandi og sofna brosandi.

Mamma mín heitir Karen og pabbi minn Binni. Þau eru ofsalega stolt af því að hafa eignast mig og segja að ég sé sólargeislinn í lífi þeirra.



Sporðdrekinn
24. október - 21. nóvember

Þegar barn í sporðdrekamerkinu lítur dagsins ljós beinast öll augu að því. Og barnið heldur þeirri athygli í langan tíma því það þarf mikla athygli. Foreldrar mega búast við því að heyja valdabaráttu við litla sporðdrekann því hann ætlast oftar en ekki til þess að pabbi og mamma séu boðin og búin þegar hann þarfnast einhvers (ekki 5 mínútum síðar). Þetta er kraftmikið barn og foreldrar þurfa að vera á verði því þau eru snillingar í að fá fólk til að snúast í kringum sig og nota til þess alls kyns kænskubrögð. Uppeldi sporðdrekans getur skipst í tvö horn því þó hann sé ráðríkur, skapstór og þrjóskur getur hann einnig verið blíður og elskulegur. Það borgar sig ekki að skipa honum fyrir eða ætla að ráðskast með hann. Þó slíkar uppeldisaðferðir séu óhentugar fyrir öll börn geta afleiðingarnar orðið sérstaklega slæmar þegar sporðdrekinn á í hlut. Hann getur lokað á umhverfið, dregið sig inn í skel og orðið stífur og jafnvel árásargjarn. Foreldrar þurfa að fylgjast með tilhneigingu litla drekans til að byrgja inni reiði. Best er að fá hann til að opna sig með því að tala við hann í ró og næði. Sporðdrekar eru mjög næmir á umhverfi sitt og því er mikilvægt að umgangast þá með varúð og hreinskilni. Sporðdrekanum er illa við yfirborðsmennsku og fals og missir auðveldlega álit á þeim sem ekki koma heiðarlega fram við hann.


ÁÐUR EN ÉG VARÐ MAMMA

Áður en ég varð mamma borðaði ég matinn á meðan hann var heitur, gekk í hreinum fötum og gat spjallað í rólegheitunum í símann.

Áður en ég varð mamma gat ég farið seint í háttinn, sofið út um helgar, greitt mér daglega og gengið um íbúðina án þess að stíga á leikföng.

Áður en ég varð mamma velti ég því aldrei fyrir mér hvort pottaplönturnar á heimilinu væru eitraðar.

Áður en ég varð mamma hafði enginn kúkað, pissað eða ælt á mig.

Áður en ég varð mamma hugsaði ég skýrt, hafði fullkomið vald yfir líkama mínum og tilfinningum og svaf alla nóttina.

Áður en ég varð mamma hafði ég aldrei haldið grátandi barni föstu til þess að læknir gæti sprautað það eða tekið úr því blóðprufu.

Áður en ég varð mamma hafði ég aldrei brostið í grát við að horfa í tárvot augu og þekkti ekki þá hamingjuflóðbylgju sem getur sprottð af einu litlu brosi.

Áður en ég varð mamma sat ég aldrei langt fram á nótt og horfði á barn sofa eða hélt á sofandi barni vegna þess að ég tímdi ekki að leggja það frá mér.

Áður en ég varð mamma vissi ég ekki hvað ein lítil vera getur haft mikil áhrif á líf manns og hversu óendanlega sárt það er að geta ekki kippt öllum vandamálum í lag.

Áður en ég varð mamma vissi ég ekki að ég gæti elskað svona heitt og hversu dásamlegt móðurhlutverkið væri.

Áður en ég varð mamma þekkti ég ekki þetta einstaka samband móður við barn sitt og gleðina sem fylgir því að gefa svöngu barni brjóst.

Áður en ég varð mamma vaknaði ég ekki tíu sinnum á nóttu til þess að aðgæta hvort allt væri ekki örugglega í lagi.

Áður en ég varð mamma hafði ég ekki kynnst hlýjunni, kærleikanum, sársaukanum og ævintýrinu sem fylgir því að eiga barn




Annað:
Hérna koma svo síður vina minna og ættingja:

Aron Daði Ásbjörnsson

Emilía Sif

Kjartan Gauti Gíslason

Breki Freyr Gíslason

Freyr Hreinsson

Ylfa Claxton

Esther Elma Arnardóttir

Ísak Logi Einarsson

Eyþór Andri Arnarsson

Ragnheiður dóttir Ólafar

Hrafn og Böðvar

Þú ert gestur nr. 35988