Þú ert rosalega flottur strákur og algjör töffari! Ég hef nú aldrei hitt þig en ég er gömul vinkona mömmu þinnar. Ég bið kærlega að heilsa henni, gaman að heyra frá henni eftir svona langan tíma. Bestu kveðjur, ÓskÓsk Guðmundsdóttir | 0 | 3.4.2006 15:55:06 #
-
Hæ Dagur Ættarðu ekki að far að koma í sveitina. áfram LiverpoolJóhannes Geir|22.3.2006 18:41:15
-
Hæ flotti! Bara að kvitta. Mamma þín komin í verkfall með að færa inn á síðuna. Þú getur kannski bara farið að skrifa sjálfur, þar sem þú ert orðin skólastrákur.Hermína|19.3.2006 21:05:25
Hæ töffari. Bara rétta að kíkja á síðuna þína og ákvað að kvitta. Bið að heilsa múttu þinni :) kv HófýHólmfríður Birna Guðmundsdóttir | 0 | 22.2.2006 23:16:57 #
Sæll Dagur Smári! Það var sko ekkert smá gaman að heimsækja ykkur mömmu þína í gær. Og ekkert leiðinlegt að fá bara popp og ís í kvöldmat, sumir voru frekar ánægðir með það!!! Takk fyrir okkur og við kíkjum sem fyrst aftur og þið eruð líka velkomin til okkar. Kær Kveðja Tristan Reyr og Bogga!Bogga og Tristan Reyr!!! | 0 | 13.12.2005 14:56:32 #
Halló Dagur Smári ! Þú ert langflottastur. Vikar og Gunnar frændur þínir hér í Noregi eru ánægðir með að sjá að þú heldur með Liverpool. Gaman að fá að sjá myndirnar af þér.Hermína | 0 | 16.9.2005 16:11:15 #
::FYRSTU SKÓLADAGARNIR::
Núna er fyrsta skólavikan búin. Fyrsti skóladagurinn var þó smá undarlegur. Mér fannst alveg gaman í skólanum, nema sundið. Það var bara verið að sýna okkur allt, og svo þurftum við að standa í RÖÐ. Næsta dag fengum við að leira stafi, það var nú skemmtilegt. Í dag fór ég svo í fyrsta gítartímann. Í kvöld, eða morgun, fæ ég svo gítar. Ég hlakka svoooo til, amma og afi eru svo góð að gefa mér hann í afmælisgjöf, þau eru sko góóóóóð. Jæja, ég er smá óþolinmóður núna. Er hjá mömmu í vinnunni og það er ekkert spes, engir traktorar, gröfur eða neitt til að leika sér í.
Heyrumst,
Kv. Dagur Smári skólatöffari
Úfff...það er langt síðan ég lét síðast frétta af mér. Ummm....við skulum nú
sjá. Síðan síðast er ég hættur í leikskólanum, búinn að fara til Danmerkur,
búinn að eiga afmæli og fuuuuuuult fleira. Danmerkurferðin var dásamleg. Ég
fór í tívolí, kíkti líka í dýragarð, fór í skemmtigarð og á ströndina. Afmælið
var svo vitanlega haldið hátíðlega 16. júlí. Afmæliskakan var auðvitað
traktorskaka, það komu fullt af gestum, og ég fékk fullt af pökkum. Síðan er
ég bara búinn að vera að leika mér fullt við Ísarr, vinna með pabba, fara í
sveitina og þetta venjulega.
Í síðustu viku fórum við mamma og keyptum skólatösku með stjörnu, kúrekamöppu
(af því að það er stjarna á henni), Batman pennaveski, brúsa og nestisbox. Á
föstudaginn fór hún Rakel mín með mig í Kaupfélagið og keypti rosalega flottan
íþróttagalla á mig....sem hæfir svona skólastrák eins og mér. Svo gisti ég hjá
pabba í gær, og við bræðurnir og pabbi vorum með strákapartý. Við borðuðum
FULLT af nammi, gosi og snakki, og fórum ábyggilega manna síðastir að sofa hér
í héraði. Í næstu viku verðum við mamma í fríi saman, og líka Auðbjörg og Jón.
Við ætlum nú aðallega að hafa það náðugt, en þó stendur jafnvel til að við
skellum okkur til Reykjavíkur. Svo eftir rúma viku byrjar bara skólinn,
tónlistarskólinn, sundið og það allt saman. Váááá hvað ég er að verða stór
hehe.....
Þangað til næst....
-
til hamingju mmeð afmælið félagi :) þinn vinur Maríus AlvinMaríus Alvin|16.7.2005 11:14:21
-
Elsku Dagur Smári, Innilega til hamingju með daginn. Hafðu það nú gott í dag. Kveðja frá Þrúðvangi;O)Erla Björg Kristinsdóttir|16.7.2005 10:39:26
HALLÓ
Jæja. Það er náttúrulega aaaaalt of seint síðan skrifaðar hafa verið af mér fréttir. Það hefur svakalega mikið drifið á daga mína síðan síðast. Ég er alveg svakalega duglegur í tónlistarskólanum, en satt best að segja verð ég nú feginn að hætta að æfa á þessa blessaða blokkflautu. Hún er hreinlega ekki nógu töffaraleg. Eftir miklar samningaviðræður hef ég fengið mínu framgengt, og það verður sko kassagítar næsta haust. Íhaaaaa....ég færist alltaf skrefi nær rafmagnsgítarnum. Hehe...lífið er skemmtilegt. Ég er líka byrjaður á sundæfingum, það er rosa skemmtilegt. Kannski er skemmtilegast við það að þá slepp ég fyrr heim úr leikskólanum 3 daga í viku....en ekki segja :) Hvað um það, haldiði svo ekki að ég hafi keppt í mínu fyrsta sundmóti um helgina. Það var náttúrulega tær snilld. Ég synti alveg úr djúpu og yfir í grunnulaugina, og naut aðstoðar korks. En yfir komst ég ó já....Mér fannst þetta alveg ægilega skemmtilegt, brosti mínu blíðasta, enda átti ég fuuuuuult af aðdáendum; mamma, pabbi, Rakel og litli brósi, Eygló, Stína, Nóni og auðvitað amma líka. Ég var sko flottastur, það fannst þeim að minnsta kosti. Svooooo fékk ég m.a.s. pening fyrir þátttökuna, ég var sko rogginn með hann...
Jamm...svo erumÉG, Stína og Nóni búin að kaupa okkur jörð. Ogggg duduruuuuuu....þangað koma sko rollur í haust. Ég er nokkuð viss um að ég fæ eina....verð að vera duglegur að safna mér fyrir einni rolluskjátu svo ég eignist nú lömb og svona.
Jæja, það er vafalítið hellingur sem ritarinn er að gleyma. En það verður bara sagt frá því síðar.
Þangað til næst....:)
-
Hæ Dagur Smári til hamingju með síðuna.Bestu kveðjur Kristín KarenKristín Karen|24.2.2005 19:30:33
-
Rosalega varð ég glöð þegar ég datt inn á síðu hjá fallegasta barninu á barnaland.is, elsku gullið mitt Guð veri með þér alltaf, skilaðu rosalega góðri kveðjur til mömmu þinnar, pabba þíns Rakelar og Karenar Ástu. Æ hvað ég sakna þess að sjá ekki fallegu augun og bjarta brosið. Elska þig alltaf, þín GunnammaGunnamma|18.2.2005 22:33:40
-
hæhæ og gaman að sjá hvað þú ert orðin stór og flottur strákur. Ég bið kærlega að heilsa mömmu þinni og líka pabba þínum. Kær kveðja Anna Lára og Júlía ÓskAnna Lára|0|12.2.2005 22:57:50
Jahjérnahjér. Það er bara komið nýtt ár. Ég fékk helling af jólagjöfum og bara allt sem ég hafði óskað mér. Hlaupahjól og rafmagnsgítar og maaaaaaargt maaaaargt fleira. Annars hefur heilmikið gerst undanfarið. Haldiði ekki að hann brósi minn sé byrjaður á leikskólanum. Ó já….það er tær snilld. Núna sé ég hann á hverjum degi J … auðvitað verður maður að sýna honum hvernig maður hagar sér á leikskólanum. Það er til ein svaka góð mynd af okkur bræðrum uppi á leikskóla þar sem ég er að drösla honum eitthvað um á náttfatadeginum hehehe. Jamm og svo er ég byrjaður í tónlistarskólanum. Mér finnst þetta alveg ágætt þó að helst af öllu vilji ég byrja á rafmagnsgítar. Svona er þetta samt…fyrst blokkflauta….kannski piano næst…..kassagítar og svo rafmagnsgítar (skrítið….ekki rafmagnsgítar fyrr en búið að prufa ÖLL önnur hljóðfæri). Og síðast en alls ekki síst þá er ég á leiðinni í skólaheimsókn á morgun. Ég er orðinn svoooo stór. Næst verður það svo gistingin í Dæli og bara púfff…..stóri skólinn. Mikið líður tíminn nú hratt…
Jæja, bless í bili J
Sæll vertu Dagur Smári og gleðileg jól ! Hún mamma varð nú ekki lítið glöð þegar hún komst að því í jólakortinu að þú ættir heimasíðu. Og enn glaðari varð hún að vita að hún ætti sér félaga í því að "veraekkiaðstandasigíaðuppfæra" bransanum :-) Ég trúi nú ekki öðru en að hún mamma þín hafi orðið við öllum þínum óskum og gefið þér mótorhjól og tiheyrandi, annað væri bara ekki henni líkt ;-) Mér líst vel á að þú ætlir að verða rokkari á gítar, við stofnum kannski bara hljómsveit því að ég á þessar líka fínu trommur. Við gætum hist á miðri leið til að æfa, og haft æfingar í Miðgarði. En ég vona nú bara að ég fái að hitta þig sem fyrst - held við yrðum góð saman, því ég er svona strákavinastelpa. Segðu mömmu nú að fara að breGGða undir sig betri fætinum og renna við á Akureyri. Biðjum að heilsa í bæinn, Salka og StínaKristín Guðmundsdóttir | 0 | 29.12.2004 11:16:59 #
JÓLA JÓLA
Halló. Af mér er allt gott að frétta og lífið gengur sinn vanagang. Ég pæli mikið í lífinu og tilverunni og hef margt að segja eins og gerist og gengur hjá 5 ára púka eins og mér. Það er svaka gaman í leikskólanum, en mér finnst samt ljúft þegar það koma helgar ;) Ekki smá svo gleyma að það eru að koma jól. Mömmu finnst ég nú samt ótrúlega rólegur yfir því. Hef þó ákveðnar skoðanir á því hvað mig langar í jólagjöf. Hlutir eins og hlaupajól, rafmagnsgítar, traktor með skóflu og alvöru dótamótorhjól eru þar efstir á lista. Mamma ætlar að taka sér frí á milli hátíðanna svo við getum haft það notalegt. Það verður ágætt að komast í smá auka frí frá leikskólanum og svo kem ég tvíefldur til baka....fóstrunum vafalítið til mikillar gleði og ánægju hehe. Eftir áramót byrja ég líka í tónlistarskólanum. Þrátt fyrir að ég vilji byrja á rafmagnsgítar, verður fyrsta hljóðfærið mitt samt blokkflauta. Ég ætla að sjá hvernig gengur, en áður en langt um líður verð ég samt ábyggilega búinn að sannfæra mína nánustu um að rafmagnsgítar sé málið ;)
Bless í bili.....heimspekingurinn
-
Hæ sæti ;) Ég er vinkona hans pabba thíns og Rakelar. Var bara adeins ad kíkja á thig og vildi kvitta. Rosa flott sída og thú verdur bara sætari og sætari! Áfram Liverpool! Kvedja, Þóra og fjolsk.Þóra Huld Magnúsdóttir|0|29.10.2004 08:14:28
-
hæ frændi :) við erum nú ágætir saman með þessa bíla og tækjadellu :) mamma heldur að ég hafi smitast eitthvað frá þér sko :) hlakka til að hitta þig í leikskólanum en ég er búinn að vera í fríi sko :) þinn litli vinur Maríus AlvinMaríus Alvin|0|17.10.2004 12:35:31





