Hæ hæ og verið öll velkomin! Við erum bræðurnir Róbert Örn og Guðmundur Ernir


Um mig:
Róbert Örn fæddist í Reykjavík 22 janúar 2004. Hann var 4135 gr og 53 cm. Róbert er á leiksólanum Pálmholti sem er besti leiksóli í heimi að hans mati:).

Guðmundur Ernir fæddist á Akureyri 18 október 2008. Hann var 3220 gr og 48 cm, algjör stubbur. Gummi var akureyringur númer 17.500.

Við búum öll saman á Akureyri en stefnum á að flytja til Reykjavíkur sumarið 2009 þegar að mamma útskrifast.
Mamma okkar heitir Brynhildur (80) og er í Háskólanum á Akureyri og Pabbi okkar heitir Brynjar Örn (80) og er rafvirki og er í Háskólanum í Reykjavík í fjárnámi.

Þið verðið að vera duglegri að skrifa í gestabókina!!









Annað:
Um Stjörnumerkið mitt

Vatnsberabarnið fer fljótt sínar eigin leiðir hvort sem það er í fataburði, hugsun eða hegðun. Það er uppfinningasamt, frumlegt og fullorðinslegt og lærir snemma að tjá sig og skila heim fullorðinna. Litli vatnsberinn vill sjá um sig sjálfur og fara sínu fram og er oft á tíðum mjög dramatískur. Ef honum leiðist gæti hann átt það til að stofna til vandræða bara til að fá spennu og drama inn í líf sitt. Besta uppeldisaðferðin er fólgin í umræðu og skynsamlegum fortölum. Vatnsberinn er þrjóskur og lítið þýðir að skipa honum fyrir eða beygja hann til hlýðni með skömmum. Best er að koma fram við barnið sem vitsmunalegan jafningja því vatnsberinn er hugarorkumerki og því skipa umræður og skynsamlegar fortölur fyrsta sæti. Vatnsberabörnin geta sýnt ást og væntumþykju á frekar ópersónulegan hátt. Þau eru yfirleitt vingjarnleg og yfirveguð en ekki mjög tilfinningasöm og oft illa við mikið kjass.




Nafnið mitt merkir:
Nafn þetta er tökunafn úr þýsku þar sem það er sett saman af nafnorðinu "hröth" sem merkir hróður, - frægð og lýsingarorðinu "beraht" sem merkir bjartur, - skínandi.



Í dag...
ætla ég að brosa til þín þegar augu okkar mætast...
og hlæja þegar mig langar frekar til að gráta...
ætla ég að leyfa þér að vakna mjúklega, vafin inn í sængina þína og halda á þér í fanginu þar til að þú ert tilbúinn fyrir nýjann dag...
ætla ég að leyfa þér að velja hvaða föt þú ferð í, brosa og hrósa þér fyrir ,,fullkomna" litasamsetningu...
ætla ég að gleyma óhreina tauinu og fara frekar með þér út á leikvöll...
ætla ég að geyma óhreinu diskana í vaskinum og hjálpa þér að púsla nýja púsluspilið þitt...
ætla ég að slökkva á símanum og tölvunni og fara með þér út og blása sápukúlur...
ætla ég að bjóða þér upp á ís í innkaupaferðinni í stað þess að byrsta mig um leið og þú ferð að suða um hann...
ætla ég ekki að hafa áhyggjur af því hvað þú ætlar að verða þegar þú verður stór...
ætla ég ekki að hafa bakþanka um allar ákvarðanir sem ég tek í uppeldinu og fyrir þína hönd...
ætla ég að leyfa þér að baka með mér bollur og ekki hnoða þær allar aftur þegar þú sérð ekki til...


Í kvöld...
ætla ég að halda á þér í fanginu og segja þér frá deginum þegar þú fæddist og hvers vegna mér þykir svona vænt um þig...
ætla ég að leyfa þér að busla og skvetta í baðinu og ekki verða reið út af vatninu á gólfinu...
ætla ég að leyfa þér að vaka lengi og skoða stjörnurnar á himninum...
ætla ég að kúra hjá þér eins lengi og þú vilt, þó að ég missi þá af uppáhaldsþættinum mínum...
ætla ég að dást að þér og vera þakklát fyrir að eiga gersemi eins og þig...
ég er svo heppin að eiga þig og bið ekki um neitt... nema annan dag með þér...


Til þín
Áður en þú varst til þráðum við þig.
Áður en þú komst í heiminn elskuðum við þig.
Áður en þú hafðir lifað eina stund hefðum við fúslega dáið fyrir þig.
Þú ert kraftaverk lífsins
Takk fyrir að vera til
Mamma og Pabbi
Þú ert gestur nr. 44721