![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() |
|
Jæja ég er komin í heiminn, ég fæddist 13.júní 2004 ég var 15 merkur og 50 cm og náttúrulega algjört krútt. Mamma mín heitir Þórunn Elfa Ævarsdóttir ('78)og pabbi minn Björn Sigurðsson ('74) við búum á Skagaströnd og höfum það mjög gott þar:-) Ég á einn stóran bróðir sem heitir Sigurður Aron hann á heimasíðu hérna líka endilega kíkjið á hana líka það er nefninlega ljótt að skilja útundan ;-) ELSKU MAMMA OG PABBI Ég er með svo litlar hendur Ég ætlaði ekki að hella niður mjólkinni Fæturnir á mér eru svo stuttir Farðu hægar svo ég geti fylgt þér eftir Ekki slá á hendurnar á mér þegar Ég snerti eitthvað fallegt Ég skil það ekki Horfðu á mig þegar ég tala við þig Þá veit ég að þú ert að hlusta Ég hef viðkvæmar tilfinningar Ekki vera alltaf að skamma mig Leyfðu mér að gera mistök Án þess að mér finnist ég vitlaus Ekki búast við því að myndin sem ég teikna Eða rúmið sem ég bý um verði fullkomið Elskaðu mig fyrir að reyna Mundu að ég er barn, ekki fullorðin vera Stundum skil ég ekki það sem þú segir Ég elska þig svo mikið Elskaðu mig bara fyrir að vera ég Ekki fyrir eitthvað sem ég geri. |
|
|
|
|
| Þú ert gestur nr. 13851 |