Ég heiti Marína Björk Halldórsdóttir


Um mig:


Hæhæ! Ég heiti Marína Björk og ég fæddist 4. desember 2003 kl: 17:27. Ég var 3760gr. og 52cm og alveg rosalega falleg lítil dama. Ég var með dökkt hár og dökk augu. Núna er ég með stór, falleg, blá augu og skollitað hár með rauðum blæ. Ég átti að koma í heiminn 22. nóvember en ég lét sko bíða eftir mér, mamma var líka orðin frekar þreytt!



Í dag er ég rúmlega þriggja ára gömul og ég verð bara fallegri og fallegri með hverjum degi sem líður. Og ég elska Sollu stirðu híhí

Mamma mín heitir Svana Björk Jónsdóttir og er nemi í Kennaraháskóla Íslands og pabbi minn heitir Halldór Andri Bjarnason og er grafískur hönnuður. Og núna er ég búin að eignast lítinn bróður hjá pabba mínum. Hann heitir Nikulás Nói og hann er sko rosalega sætur.

Mamma er búin að læsa albúminu mínu, en verið óhrædd að senda mömmu póst og biðja um lykilorðið



Ég brosi af því að ég er mamma þín, ég hlæ vegna þess að það er ekkert sem þú getur gert við því






Annað:



ÁÐUR EN ÉG VARÐ MAMMA


Áður en ég varð mamma borðaði ég

matinn á meðan hann var heitur, gekk

í hreinum fötum og gat spjallað í

rólegheitunum í símann.

Áður en ég varð mamma gat ég

farið seint í háttinn, sofið út um

helgar, greitt mér daglega og gengið

um íbúðina án þess að stíga á leikföng.

Áður en ég varð mamma velti ég

því aldrei fyrir mér hvort

pottaplönturnar á heimilinu

væru eitraðar.

Áður en ég varð mamma hafði

enginn kúkað, pissað eða ælt á mig.

Áður en ég varð mamma hugsaði ég

skýrt, hafði fullkomið vald yfir

líkama mínum og tilfinningum

og svaf alla nóttina.

Áður en ég varð mamma hafði ég

aldrei haldið grátandi barni föstu til

þess að læknir gæti sprautað það

eða tekið úr því blóðprufu.

Áður en ég varð mamma hafði ég

aldrei brostið í grát við að horfa í

tárvot augu og þekkti ekki þá

hamingjuflóðbylgju sem getur

sprottið af einu litlu brosi.

Áður en ég varð mamma sat ég

aldrei langt fram á nótt og horfði á

barn sofa eða hélt á sofandi barni

vegna þess að ég tímdi ekki að leggja

það frá mér.

Áður en ég varð mamma vissi ég

ekki hvað ein lítil vera getur haft

mikil áhrif á líf manns og hversu

óendanlega sárt það er að geta ekki

kippt öllum vandamálum í lag.

Áður en ég varð mamma vissi ég

ekki að ég gæti elskað svona heitt og

hversu dásamlegt móðurhlutverkið væri.

Áður en ég varð mamma þekkti ég

ekki þetta einstaka samband móður

við barn sitt og gleðina sem fylgir

því að gefa svöngu barni brjóst.

Áður en ég varð mamma vaknaði ég

ekki tíu sinnum á nóttu til þess að

aðgæta hvort allt væri ekki

örugglega í lagi.

Áður en ég varð mamma hafði ég

ekki kynnst hlýjunni, kærleikanum,

sársaukanum og ævintýrinu sem fylgir

því að eiga barn



Gömul þjóðsaga

Segir frá barni sem var við það að fæðast.Barnið snýr sér að Guði og segir:

Mér er sagt að ég verði sendur á jörðina á morgun,en hvernig get ég lifað eins lítill og ósjálfbjarga sem ég er?

Ég hef valið engil fyrir þig úr hópi engla og hann bíður eftir þér.Þessi engill mun sjá um þig.

En segðu mér,hérna á himnum geri ég ekkert annað en að syngja og brosa og það er nóg til þess að vera hamingjusamur?

Engillinn þinn kemur til með að syngja fyrir þig,hann brosir til þín alla daga og þú verður umlukinn ást hans og þannig verður þú hamingjusamur.

En hvernig get ég skilið þegar fólkið talar við mig þar sem ég þekki ekki tungumálið sem mennirnir tala?

Engillinn þinn segir falleg orð við þig,fallegustu orð sem þú hefur nokkurn tímann heyrt og með mikilli þolinmæði og kærleik kennir hann þér að tala.

En hvað geri ég ef ég vil tala við þig?

Þá setur engillinn þinn hendurnar þínar saman og kennir þér að biðja.

Ég hef heyrt að á jörðinni séu til vondir menn.Hver getur varið mig?

Engillinn þinn mun verja þig,þó svo það kosti hann lífið.

En ég verð alltaf sorgmæddur því ég sé þig ekki oftar?

Engillinn þinn á eftir að segja þér frá mér og vísa þér veginn í áttina til mín,en þó mun ég alltaf vera við hlið þér.

Á þessu andartaki færðist ró yfir himininn og guðdómlegar raddir heyrðust og barnið sagði:

Kæri Herra,þar sem ég er að fara segðu mér,hvað heitir engillinn minn?

Nafn hans skiptir ekki máli,þú kallar hann

bara ,,mömmu"




Hvað er kærleikur???

Kærleikur er, hvert góðverk sem þú vinnur.
Kærleikur,er hvert bros sem þú gefur.
Kærleikur,er að faðma þann sem grætur.
Kærleikur,er að hugga þann sem syrgir.
Kærleikur,er að gefa þeim sem þarfnast.
Kærleikur,er umhyggja fyrir öllu sem lifir.
Kærleikur,er að biðja fyrir öllum,góðum sem slæmum.
Kærleikur, er að lifa sáttur við sjálfan sig og aðra.
Kærleikur, er að dæma ekki.
Kærleikur, er ljósið sem býr í hjarta þínu.



DÓTTIR MÍN


Elsku yndislega dóttir mín.

Ég veit að ég á ekki alltaf auðvelt með að tjá tilfinningar mínar.

En nú langar mig til að segja þér hvað ég elska þig mikið.

Mig langar til að segja þér hug minn.

Ég veit ekki hvar ég væri ef ég hefði ekki fengið þig inn í líf mitt.

Þú ert mér allt.

Þú ert súrefnið mitt, andardrátturinn minn og löngun mín til að lifa.

Hamingjan mín hófst með komu þinni í þennan heim.

Í dag horfi ég á þig og er hissa á því hvað þú ert raunveruleg.

Ég er svo ótrúlega heppin að hafa fengið þig inn í líf mitt, og að fá að hafa þig mér við hlið í gegnum lífið.

Þú ert gullið mitt, fjársjóðurinn minn.

Ég hef reynt að læra sem mest af þér í gegnum tíðina.

Ég reyni að meta þig að verðleikum.

Þú hefur kennt mér svo margt um lífið, sem ég annars hefði farið á mis við.

Hvar væri ég án þín?

Ég elska þig elsku dóttir mín, nú og að eilífu.





Ekki spilla mér. Ég veit vel að ég á ekki að fá allt sem ég bið um. Ég er bara að prófa þig.

Ekki gefa mér loforð sem þú getur ekki haldið. Ég yrði fyrir svo miklum vonbrigðum.

Ekki hika við að vera ákveðin við mig, ég kýs það frekar. Það veitir mér öryggi.

Ekki láta mig finnast ég smærri en ég er. Þá hegða ég mér kjánalega til að sýna hvað ég er stór.

ekki gera of mikið úr óþekktinni í mér. Ég nota hana stundum til að ná athygli þinni.

Ekki þrasa. Þá læt ég bara sem ég heyri ekki neitt.

Ekki gleyma að án mikillar ástar og skilnings þrífst ég ekki, En það veistu nú þegar, er það ekki?





RÉTTINDI MÍN

Öll börn eru mikilvæg og líka ég.
Öll börn eiga rétt á sínu eigin nafni.
Ég á rétt á að vera með bæði mömmu og pabba.
Enginn má slá mig eða stríða mér.
Ég á rétt á að mér líði vel.
Ég á rétt á að fá hjálp þegar mér líður illa.
Ég á rétt á að segja hvað mér finnst.
Ég á rétt á að leika mér.
Ég á rétt á að fá að læra ótal margt í leikskólanum og í skólanum.
Þú og ég og öll önnur börn eiga rétt á að fá að lifa við öryggi.



MAMMA ER:

Móðir, kona, verndari, læknir, töframaður, kokkur

spæjari, skipuleggjandi, sálgreinir bókhaldari, þjálfari

skurðlæknir, skemmtikraftur, sáttasemjari, leikfélagi, þvottakona

hugvitskona, einkaþjálfari, lífnautskona, kennari, ástmey, fyrirmynd

ást hennar er skilyrðislaus.





BOGMAÐURINN
22. nóvember - 21. desember

Lítill fjörkálfur hefur litið dagsins ljós. Bogmannsbarnið er að öllu jöfnu glaðlegt og jákvætt og þægilegt í návist. Það þarf mikla hreyfingu og líklegt er að það fari snemma að ganga og skoða heiminn því bogmaðurinn er merki ferðalaga og strax í bernsku birtist þörfin fyrir ævintýraferðir af ýmsu tagi. Litlu bogmannskrílin þurfa að hafa gott pláss til að hreyfa sig en ef þau fá ekki útrás fyrir orku sína verða þau eirðarlaus og uppstökk. Bogmenn hafa yfirleitt yndi af íþróttum og hið dæmigerða bogmannsbarn er iðulega á kafi í alls konar íþróttaiðkunum. Listin að ala upp bogmann er fólgin í því að finna jafnvægi á milli frelsisþarfar annars vegar og ábyrgðarkennar og aga hins vegar. Foreldrar ættu að veita honum aðhald og venja hann á að ljúka því sem hann er að fást við áður en hann byrjar á nýju verki. Hann á það til að vera mjög fljótfær og nokkuð kærulaus og því þarf að hjálpa honum að þroska með sér dómgreind og skynsemi. Bogmannsbarnið verður mikið á ferðinni og um leið og það fer að komast sjálft ferða sinna leggur það í ferðalag um nágrennið og síðan lengra þannig að það getur verið erfitt að hafa stöðugt augun á þessu barni. Góða ferð.




EINKARÉTTUR SMÁBARNA


?Ef mér finnst það flott, þá á ég það?

?Ef ég held á því, þá á ég það?

?Ef ég næ því frá þér, þá á ég það?

?Ef ég var með það rétt áðan, þá á ég það?

?Ef ég á það, má það á engan hátt líta út fyrir að vera þitt?

?Ef ég er að byggja eitthvað, þá á ég alla kubbana?

?Ef það líkist dótinu mínu, þá á ég það?


*********************************************






Þú ert gestur nr. 25967