| Ég heiti Hafdís Sól og er jólabarn foreldra minna. Ég kom í heiminn 20. desember kl. 02.35 og var búin að stríða mömmu og pabba alla vikuna. Setti allt af stað en svo nennti ég þessu ekki lengur og stoppaði allt saman. En eftir 5 daga var þetta orðið fínt og þá kíkti ég út. Ummm...sé nú ekki eftir því. Ég heiti Elma Hrönn og er Þorrabarn foreldra minna. Ég fæddist þann 22. febrúar kl. 12:00 eftir bara tveggja og hálfstíma puð. Ég fæddist með hvelli og er algjör hvellur með stór og mikil lungu. Mamma er Sigrún Haraldsdóttir, fjölmiðlafræðingur og myndasmiður og pabbi er Jóhann Emil Elíasson, íþróttafræðingur og þjálfari. |
|
|
Um mig:
Hæ, ég heiti Hafdís Sól og ég fæddist á Heilbrigðisstofun Suðurnesja, eins og Benedikt Orri frændi minn og Eyrún Alda vinkona mín. Ég hélt að ég væri ofsalega stór en svo var ég bara 14 merkur og 51 cm. Það er líka allt í lagi að vera svona lítil fyrst. Ég er með smá hár en litirnir eru svo fjölbreytilegir. Ég er með ljóst hár, dökkt hár og svolítið af rauðu hári en vonandi verð ég með svona mikið og þykkt hár eins og foreldrarnir. Augnliturinn var blár þegar ég fæddist eins og hjá mömmu og pabba. Hins vegar eru eyrun ennþá voða viðkvæm og er ég vona að eyrun mín verði ekki eins og á Hobbita....hiihiiihhiii....neinei, smá grín. Úff, hvað á ég að segja frá meiru....já, ég góð stelpa.
Hæ, ég heiti Elma Hrönn og er litla systir hennar Hafdísar. Vá, hvað þetta er flottur heimur...svolítið ógnvekjandi til þess að byrja með!! Ég fæddist á Hreiðrinu á LSH og var 53 cm á lengd og 3925 gr. þegar ég fæddist og fer stækkandi gott fólk. Ég er aðeins meira ákveðnari en stóra systir þannig að varið ykkur á tveimur rauðhærðum (vonandi) og bláeygðum stúlkum í framtíðinni. HAFDÍS SÓL Hún er engillinn sem gerði ást okkar að fjölskyldu ELMA HRÖNN Hún er litla gyðjan sem að stækkaði fjölskylduna |
|
|
|
Annað:
Svo er mamma í bumbuklúbb þar sem við hittum aðrar nýbakaðar mæður og krúttlur eins og mig svona aðra hverja viku. Það er rosa fjör hjá okkur, þessi mynd var tekið af okkur þar og svo erum við einnig með heimasíður. Þið verðið bara að kíkja á þetta :O)
Jólabörnin ad skoda siduna mina |
| Þú ert gestur nr. 39368 |