Við erum systurnar Viktoría Diljá og Natalía Rós


Um mig:
Viktoría Diljá er 5 ára prinsessa sem kom í heiminn 4 júlí 2004
Natalía Rós er 1 árs prinsessa fædd 19 ágúst 2008
Foreldrar okkar
eru Halldór Rafn Hannesson og er 30 ára
og Þórdís Rúriksdóttir og er 28 ára
Og eru þau auðvitað yfir sig ástfangin af okkur systrunum.









Nafnið mitt!!

Viktoría

Nafn þetta er komið úr latínu og er leitt af orðinu "victoria" sem merkir sigur.
Viktoría er því hin sigursæla.


Diljá

Nafn þetta er upprunnið úr grískri goðafræði en "Delia" var annað nafn gyðjunnar Artemisar.
Artemis á að hafa tekið þetta nafn frá sínum fæðingarstað sem var eyjan Delos.








Börn í krabbamerkinu eru oft mjög viðkvæm og foreldrar mega búast við að mörg tár muni falla í bernsku. Þau hafa því ríka þörf fyrir hlýju og snertingu auk þess sem öryggi skiptir þau gríðarlega miklu máli. Líf þeirra þarf að vera í föstum skorðum og umhverfið gott. Foreldrar barna í krabbamerkinu ættu ekki að rífast mikið í þeirra návist því þau taka allt mjög nærri sér og eru oft lengi að ná sér á strik eftir áföll. Krabbar byrgja oft tilfinningarnar inni og því er mikilvægt að tala við þau um tilfinningar. Dæmigert krabbabarn man alla tíð eftir því þegar það týndist í Hagkaup í tvær mínútur og tekur því sem höfnun. Krabbinn er oft mislyndur og misjafn í skapi, ýmist hress og jákvæður eða þungur og dregur sig inn í skel. Hann er oft rólegur og hlédrægur en getur gosið upp annað slagið vegna þess hve viðkvæmur hann er. Það þarf að umgangast hann af nærgætni og það er ekki sama hvað sagt er við hann og hvernig. Hann tekur margt nærri sér og er móðgunargjarn. Hann er gjarn á að geyma gremjuna innra með sér og láta á engu bera á yfirborðinu. Foreldrar þurfa því að hvetja litla krabbann til að segja frá því sem honum mislíkar. Mestu skiptir að skapa krabbanum öruggt heimilislíf, veita honum hlýju og gefa honum kost á að tjá tilfinningar sínar, t.d. með því að leyfa honum að eiga gæludýr.




Smellið á myndirnar þá opnast heimasíðan þeirra :D




Andrea Vínkona mín


Aníta Líf Vínkona mín



Thómas Hugi frændi




Sunna Dís Vínkona mín


src="http://s3.frontur.com/img/54821/20090503154539_11.jpg"alt=""/ border=0>
Vinkonur okkar systra Sunna og Tinna



Litlu tvíburafrændur mínir Kolbeinn Hrafn og Þorsteinn Úlfur.



Alexander vinur minn


Arnór Snær vinur minn


Hjörtur Emir frændi minn



Aron Leó vinur minn


Arnheiður Gyða Vínkona mín



Íris Helena litla frænka













ELSKU MAMMA OG PABBI...


Ég er með svo litlar hendur,ég ætlaði ekki að hella niður mjólkinni.

Fæturnir á mér eru svo stuttir,farðu hægar svo ég geti fylgt þér.

Ekki slá á hendurnar mínar þegar ég snerti eitthvað fallegt,ég skil það ekki.

Horfðu á mig þegar ég er að tala við þig,þá veit ég að þú ert að hlusta.

Ég hef viðkvæmar tilfinningar,ekki vera alltaf að skamma mig.

Leyfðu mér að gera eitthvað vitlaust án þess að þér finnist ég vitlaus.

Ekki búast við því að myndin sem ég teikna eða rúmið sem ég bý um sé fullkomið.

Elskaðu mig bara fyrir að reyna.





Boðorðin 10

1. Meta skaltu börn þín eins og þau eru ekki eins og þú vilt hafa þau.

2. Líta skaltu á sérhvert barn sem sjálfstæðan einstakling en ekki sem ?krakkann".

3. Þú skalt sinna þér vel en ekki lifa lífinu í gegnum börnin þín.

4. Taka skaltu vel eftir öllu sem vel er gert, hvort sem það er stórt eða smátt og viðurkendu það.

5. Láttu börnum þínum í té óyggjandi upplýsingar af fremsta megni og treystu þeim til að vega þær og meta og draga af þeim eigin ályktanir.

6. Þú skalt ekki láta börn þín nota þig eða misnota því að slíkt skaðar þau.

7. Þú skalt fela börnum þínum ábyrgð hvenær sem færi gefst svo sjálfstæði verði þeim ekki um megn, því börn eru skammtímalán.

8. Gera skaltu börnum þínum ljóst að þú elskar þau án skilyrða, hvort sem ákvarðanir þeirra falla þér í geð eða ekki.

9. Gefðu börnum þínum ráðrúm til að gera sér grein fyrir afleiðingum gjörða sinna í stað þess að halda yfir þeim hlífskildi endalaust, eins og þú hefur tilhneigingu til

10. Þú skalt gleðjast innilega þegar forsjár þinnar er ekki lengur þörf því þá og aðeins þá hefurðu haft árangur sem erfiði.