Jólin 2010
Sölvi var hrifinn af jólatrénu og skoðaði það annars lagið. Smám saman, eftir því sem leið á jólin, fór hann að þora að skoða jólaskrautið nánar. Að lokum var hann farinn að reyna að ná kúlunum af trénu. Það endaði með því 7. janúar 2011 að hann togaði tréð yfir sig með tilheyrandi látum, brotnum kúlum o.fl. Hann sakaði ekkert en var svolítið brugðið. Góður endir á jólunum og vonandi verður þetta til þess að hann látið tréð í friði næstu jól.
Pabbastrákur
Sölvi 15 mánaða þrammar um allt (tók fyrstu sporin í lok nóv 2010) og kallar hátt og skýrt "babbi, bappi, pabbi...." - pabbinn í miklu uppáhaldi
Hjartnæm ástarjátning
Mamma Freyju var að tjá henni ást sína og þá svaraði Freyja: ,,Ég elska þig mamma og ég elska pabba, við erum ein fölskylda. Ödl með gleðaugu"
Aftur hringir Freyja sjálf!
21. september 2005 um kl. 18:30 brunaði móðir Freyju eftir Hafnarfjarðarveginum á leiðinni heim til Freyju sinnar. Þá hringir síminn og hún sér að það er Kiddi. Þegar hún svarar er það Freyja sem blaðrar kotroskin hinum megin á línunni og þýddi ekkert að segja ,,leyfðu mömmu nú að tala við pabba" þar sem mamman hélt að sjálfsögðu að pabbinn hefði slegið inn númerið og rétt dömunni símann. En Freyja blaðraði bara út í eitt og skellti síðan á. Síðar kom í ljós að Freyja hafði stolist í símann og ákveðið að hringja aðeins í mömmu sína og spjalla við hana. Hún er nú meiri símadaman hún Freyja.
Freyja fleygði dótinu sínu í ruslið 4. mars 2005
Freyja fékk púsl í afmælisgjöf og finnst mjög gaman að þvælast með það út um allt og setja það ofan í hluti, hún er líka farin að arka inn í eldhús og kíkja í skápana. Freyja arkaði með púsl inn í eldhús, réðst á einn skápinn sem vildi svo til að var ruslaskápurinn og setti púslið ofan í fína pokann sem hékk á hurðinni.
Síminn hringir tvisvar hjá ömmu Lovísu og þegar hún svarar er búið að skella á. Á númerbirtinum sér hún símanúmerið heima hjá Freyju
Freyja var að leika sér með heimasímann 16. janúar 2005 og ýtti á réttu takkana til að hringja í ömmu sína - kannski ætlaði hún að segja henni að hún vildi fara að hitta hana.