Vefdagbók
Myndaalbúm
Kveðjur frá gestum
Gullkorn
Dagbók barnsins
Freyja
Freyja
Jólin 2010
Sölvi var hrifinn af jólatrénu og skoðaði það annars lagið. Smám saman, eftir því sem leið á jólin, fór hann að þora að skoða jólaskrautið nánar. Að lokum var hann farinn að reyna að ná kúlunum af trénu. Það endaði með því 7. janúar 2011 að hann togaði tréð yfir sig með tilheyrandi látum, brotnum kúlum o.fl. Hann sakaði ekkert en var svolítið brugðið. Góður endir á jólunum og vonandi verður þetta til þess að hann látið tréð í friði næstu jól.
0 | 7.1.2011 21:55:25 #
Pabbastrákur
Sölvi 15 mánaða þrammar um allt (tók fyrstu sporin í lok nóv 2010) og kallar hátt og skýrt "babbi, bappi, pabbi...." - pabbinn í miklu uppáhaldi
0 | 7.1.2011 21:53:34 #
Hjartnæm ástarjátning
Mamma Freyju var að tjá henni ást sína og þá svaraði Freyja: ,,Ég elska þig mamma og ég elska pabba, við erum ein fölskylda. Ödl með gleðaugu"
0 | 7.1.2011 21:52:25 #
Var að skoða allar nýju og flottu myndirnar sem komu loksins. Líf og fjör hjá ykkur úti og inni.
Jói Afi | 0 | 9.7.2010 11:20:07 #
Alltaf gaman að skoða myndir af þessum yndislegu systkynum! :) Kær kveðja, Elín Ósk frænka
Elín Ósk frænka | 0 | 25.3.2010 23:18:01 #
Var gestur númer 44144, engin smá traffík hjá ykkur. Stóribróðir er ekkert orðin smá STÓR ! Kem að kíkja á ykkur bráðum. Kveðja til mömmu og pabba.
Jói Afi | 0 | 15.1.2010 09:00:50 #
Æðislegar myndirnar úr myndatökunni!! Gaman að sjá systkinin flottu. Hlökkum til að hittast fljótlega. Kv. Nanna og Daníel Ingi.
Nanna Sigurdardottir | 0 | 22.12.2009 23:40:28 #