Við erum Andrea, Bjarki og Arnór Steinsen Arnarsbörn
Það er komið lykilorð á myndirnar okkar.. .. millinafnið hennar mömmu.. ..


Um mig:
Andrea (Hnoðrinn):
Ég, litla prinsessan kom í heiminn 3 dögum eftir settan tím eða þann 9. júní klukkan 01:47 og var ég 13 merkur og 50cm. Ég var ekki lengi að þessu því við vorum mætt uppá spítala rétt fyrir miðnætti með níu í útvíkkun. Ég var um 45 mínútur að koma mér í heiminn með smá hjálp frá múttu. Ég mætti á svæðið öskrandi, því mér finnst að maður þurfi að æfa lungun endrum og eins :o)

Ég fæddist með dökkt hár og alveg svört augu, eru núna reyndar orðin nokkurn veginn blá. Annað augað er reyndar 1/3 hluti brúnt, en það er bara cool :o) ... Ég var öll voða fín og flott og flestum finnst ég alveg eins og pabbi minn bara fíngerðari og myndarlegri sem betur fer.

Bjarki (Lillimon):
Ég, litli prinsinn kom í heiminn á réttum tíma eða þann 22. desember klukkan 06:58 og var ég 12,5 mörk og 50cm. Ég var m.a.s. fljótari en hún systir mín að koma mér í heiminn. Lögðum af stað uppá spítala 06:28 komin með 10 í útvíkkun. Tók mig um 10-15 mínútur að koma mér í heiminn.. .. Ég mætti líka öskrandi á svæðið og var öskrandi bara fyrsta korterið í lífinu.. :o)

Ég fæddist með dökkt hár (nokkur strá) og alveg svört augu, en nú eru þau orðin heiðblá. Ég var mjög sléttur og fínn, nema hvað húðin á höndunum var 10 númerum of stór :o) ég er víst tvífari systur minnar, og mútta skilur ekkert í því hvernig hægt er að eiga alveg eins börn, bara eitt bleikt og eitt blátt :o)

Arnór (Hnoðrimon):
Ég, litli prins númer 2 kom í heiminn 4 dögum eftir settan tíma eða þann 7. mars klukkan 10:38 og var ég 14 merkur og 50 cm. Ég var alveg eins og systkini mín, ótrúlega fljótur að koma mér í heiminn. Mættum uppá spítala klukkan 10:00 með 9-10 í útvíkkun, tók mig eins og brósa kannsi 10 -15 mínútur að koma mér í heiminn. Ég mætti líka öskrandi á svæðið og öskraði fyrstu mínútuna.

Ég er eins og brósi með hárið.. pínulítið hár og alveg svört augu, en mömmu og pabba fannst ég alveg eins og Andrea þegar ég fæddist, sem þýðir að ég er alveg eins og pabbi minn, ekki slæmt :o)

Við systkinin erum einu börn foreldra okkar og fyrstu þrjú barnabörnin í föðurættinni en í móðurætt erum við 9 (10), 10 (11) og 13 (14).

Andrea:
Nafnið mitt er dregið af gríska nafninu Andréas og merkir nafnið HUGREKKI.
Andrea er lífsglöð, og einlæg kona. Fjölskyldan er henni mjög mikilvæg og vinir hennar geta alltaf treyst á hana (stóð allavegana á lyklakippunni minni :o)

Bjarki:
Nafnið mitt er dregið af nafninu Björk. Nafnið merkir upphaflega litli björninn. Bjarki er gæddur einstökum gáfum. Hann er mjög bókhneigður og listfengur og hæfileikar hans munu nýtast honum vel á lífsleiðinni.

Lilypie - Personal pictureLilypie

Lilypie - Personal pictureLilypie Kids Birthday tickers

Lilypie - Personal pictureLilypie First Birthday tickers

TVÍBURAR - STJÖRNUMERKI ANDREU
Óþolinmótt eftir að hefja leikinn er líklegt að tvíburabarnið hafi sparkað duglega í móðurkviði. Tvíburabörn eru líkleg til að byrja snemma að tala og þau segja sína skoðun frá byrjun. Þau eru mjög forvitin í eðli sínu og þurfa því alltaf að hafa eitthvað fyrir stafni. Þau eiga mjög erfitt með að sitja kyrr og eiga mjög erfitt með að þegja. Athyglin beinist stöðugt að nýjum viðfangsefnum en áhuginn hverfur oft mjög fljótt. Tvíburarnir þurfa mikla örvun og hyggilegt er að leikföng þeirra séu margvísleg og vitsmunalega þroskandi, svo sem púsluspil og þrautir af ýmsu tagi. Því fyrr sem tvíburabarnið kemst í hóp annarra barna því betra því tvíburarnir elska félagslíf enda hafa þeir mikla samskiptahæfileika. Líf og fjör er tvíburum að skapi. Yfirleitt er tvíburinn bráðþroska vitsmunalega og því nauðsynlegt að sinna þessum þætti í uppeldinu með því að reyna að svara t.d. spurningum hans (þær eru reyndar oft ansi margar) og ræða við hann. Litlir tvíburar eru oft stríðnir og hrekkjóttir en það ber ekki að taka of alvarlega því yfirleitt er meiningin ekki slæm. Hann grípur oft til prakkarastrika til að hrista upp í umhverfinu því hann hefur ríka þörf fyrir tilbreytingu.

STEINGEIT - STJÖRNUMERKI BJARKA
Steingeitin er alvarlegasta stjörnumerkið og oft er sagt að hún fæðist gömul og verði yngri eftir því sem árin færist yfir. Steingeitin er vel skipulögð og er ung að árum farin að taka þátt í rekstri heimilisins. Hún á stundum erfitt með að hafa gaman af lífinu og ekki er ólíklegt að barnið þitt velji frekar að raða fötunum sínum í skápinn en að fara út að leika. Mikilvægt er að foreldrar kenni börnum sínum að það er í lagi að slaka á og leika sér og að fullkomnun er ekki einungis ómöguleg heldur einnig mjög ópraktísk. Steingeitin er haldin fullkomnunaráráttu og óttast fátt meira en að missa sjálfsstjórn og þar með tök á tilverunni. Hún verður mjög óörugg ef hún hefur ekki gamalgrónar reglur og hefðir til að styðjast við og ef þær eru ekki til staðar er hún fljót að búa til reglur sjálf. Börn í steingeitinni eru mjög athugul, skynsöm og metnaðargjörn og dæmigerðar geitur vita allra merkja fyrst hvað þær ætla sér í lífinu. Mikilvægt er að kenna steingeitinni að tjá tilfinningar sínar, slaka á og sjá bjartari hliðar tilverunnar og ekki síst að ýta undir skopskyn hennar.

FISKARNIR - STJÖRNUMERKI ARNÓRS
Hið dæmigerða fiskabarn er yfirleitt hæfileikaríkt og vel gefið en viðkvæmt og ekki ólíklegt að það missi stjórn á tilfinningum sínum og bresti í grát af engri sjáanlegri ástæðu. Fiskar eru gjarnir á að fórna sér fyrir aðra. Mikilvægt er að fara varlega að fiskunum og varast að særa tilfinningar þeirra með vanhugsuðum orðum. Fiskar eru mjög skapandi og þeir geta skapað sinn eigin heim þar sem þeir finna til öryggis þegar hinn harði heimur reynist þeim ofviða þá flýja þeir inn í sinn eigin. Því er mikilvægt að hvetja litla fiskinn til að koma út úr skel sinni og takast á við lífið, hvetja hann til að segja skoðun sína hreint út. Foreldrar ættu einnig að hlúa að listrænum hæfileikum barnsins ef þeir koma fram. Fiskurinn er í eðli sínu vingjarnlegur og skilningsríkur en jafnframt umburðarlyndur. Hann á t.d. erfitt með að trúa nokkru misjöfnu um aðra og er því alltaf jákvæður í fyrstu gagnvart ókunnugum.






Þú ert gestur nr. 47019