Hæhæ og veriði velkominn á heimasíðuna mína! :)
Ég heiti Hafþór Máni en fékk viðurnefnið "Litli laumufarþeginn" því það vissi engin (ekki einu sinni mamma) af mér fyrr en ég var búin að vera 17 vikur í mallanum á mömmu! Það fór svo lítið fyrir mér! híhí ;)


Um mig:
Ég kom í heiminn þann 7. september 2003 klukkan 11:20. Ég var 54 cm og 3370 gr. tæp 13 1/2 merkur. Hárið á mér var dökkbrúnt og ég var með sítt að aftan! ;) og augun á mér voru dökkblá. Ég fæddist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Neskaupsstað.
Mamma fékk fyrsta verkin klukkan 2 að nóttu og ég kom í heiminn 9 tímum og 20 mín. síðar. Ekki lengi að þessu! ;) og það gekk allt bara mjög vel! Amma (mamma mömmu) var viðstödd fæðinguna og tók á móti mér og pabbi var frammi og leist ekkert á lætin! ;)
Fyrstu gestirnir komu sama dag og ég fæddist og það voru Ísey og Summi og svo daginn eftir kom Eygló frænka og svo loks þriðja daginn þá kom Malla frænka og keyrði okkur heim til Fáskrúðsfjarðar.
Pabbi minn heitir Brynjar Þór Ingjaldsson (1983) og mamma heitir Sandra Hrönn Hafþórsdóttir (1985).
Ég á 1 ömmu (Marta), 1 afa (Hafþór), 2 langömmur (Sigga og Gugga), 1 langafa (Ægir), 2 langalangömmur (Malla og Bögga) og 1 langalangafa (Kiddi) í mömmuætt og 1 ömmu (Krístín), 1 afa (Ingjaldur), 1 langömmu (Jónína) og 1 langafa (Guðmundur) í pabba ætt!

Heimasíðan mín er ekki alveg tilbúin en vonandi verður mamma dugleg að klára hana... =)




Annað:
Hérna er smá fróðleikur um stjörnumerkið mitt! ;)

Eftirtektarsemi

Að öllu jöfnu er litla Meyjan auðveld viðureignar. Hún er samviskusamt, duglegt og hlýðið barn. Hún hlustar á uppalendur sína, er eftirtektarsöm og fljót að læra. Meyjan er íhaldssöm og lítið gefin fyrir að gera uppreisn gegn foreldravaldi eða skólakerfi. Þetta getur þó breyst eitthvað ef t.d. Mars eða Úranus er sterkur í korti hennar.

Skynsemi

Skynsemi Meyjunnar kemur fljótt fram í bernsku. Ef foreldrar hennar eru kærulausir eða óhagsýnir má búast við að barnið fari fljótlega að siða þá til og hafa vit fyrir þeim. Öll dagleg umgengni mótast einnig af þessari skynsemi, af því að hún er aðgætin og nákvæm hvað varðar áhugasvið sitt.

Áhyggjur

Það sem helst getur háð litlu Meyjunni er alvörugefni sem leiðir af sér áhyggjur og taugaspenna. Til dæmis tekur hún smávægilegt mótlæti nærri sér. Meyjan er einnig vandvirk í eðli sínu og hefur sterka fullkomnunarþörf, sem veldur því að hún á til að gera sér verk erfið, kvíða fyrir framtíðarverkefnum og hafa áhyggjur af því að það sem hún er búin að gera sé ekki nógu gott. Foreldrar Meyjunnar þurfa að draga fram hið jákvæða, hvetja barnið til að sjá bjartari hliðar tilverunnar og læra að trúa á eigin getu og segja því að fullkomnun sé ekki alltaf nauðsynleg. Það getur einnig verið gott að ýta svolítið undir skopskyn Meyjunnar.

Taugakerfið

Það gleymist oft þegar fjallað er um Meyjuna að Merkúr sem stjórnar hugsun og taugakerfi er pláneta Meyjunnar. Hið jákvæða við þetta er að hún er oft vel gefin og staðreyndin er sú að margar Meyjar leggja fyrir sig fræðistörf, rannsóknir, tungumál og bókmenntir á fullorðinsárum. Það varasama er að taugakerfið er viðkvæmt og því getur það gerst að Meyjan er óróleg, stressuð og taugaveikluð, og þá fer allt skipulag úr böndunum. Það er því mikilvægt að foreldrar Meyjunnar fylgist vel með þessu og hugi sérstaklega vel að mataræði og athöfnum sem eru styrkjandi fyrir taugarnar, forðist sykurát og gæti þess að litla Meyjan fái næga hvíld þegar þannig stendur á.

Samviskusemi

Meyjunni gengur yfirleitt vel í skóla og hún á sjaldan í vandræðum á því sviði. Hún er forvitin, hefur rökfasta og skipulagða hugsun og er fljót að hagnýta sér það sem hún lærir. Hún er einnig samviskusöm og sinnir því náminu yfirleitt vel, þó að á því séu að sjálfsögðu undantekningar.

Festa

Þar sem Meyjan vill hafa reglu á umhverfi sínu og allt í föstum skorðum getur óregla eða skipulagsleysi foreldra ruglað hana í ríminu. Því er mikilvægt að foreldrar séu sjálfum sér samkvæmir í hegðun gagnvart henni. Ef foreldrar skilja eða ef hún þarf að skipta um skóla þarf að sýna henni sérstaka nærgætni og hjálpa henni að koma á nýju og öruggu kerfi. Meyjan þarf einnig að geta haft leikföngin sín á vísum stað. Öryggi skiptir hana miklu, félagslegt, heimilislegt og tilfinningalegt.
Þú ert gestur nr. 9343