ég heiti Kristbjörg Unnur og er 7 ára eyjapæja, og ég á lítinn bróður sem heitir Elvar Breki :)


Um mig:


Hæ,hæ!! Ég heiti Kristbjörg Unnur Friðbergsdóttir. Ég fæddist á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja þann 15. janúar 2004, (afmælisdegi pabba míns), kl 20:55. Þegar ég fæddist var ég 15 merkur (3834 gr), og 52 sm. Ég var með mikið dökkt hár og voða mannaleg, slétt og fín. Fæðingin gekk bara vel fyrir sig mamma missti vatnið kl 09:00 að morgni og ég var fædd kl 20:55 að kvöldi, það er nú ekki mjög langur tími... Ljósmóðirin mín heitir Guðný Bjarnadóttir og hún er alveg algjör engill!! Foreldrar mínir eru Símonía Helgadóttir ('81) og Friðberg E. Sigurðsson ('80) og eru bæði fædd og uppalin í Vestmannaeyjum þar sem við búum. Amma og afi í móðurætt heita Marta Karlsdóttir og Helgi Sigurlásson og í föðurætt heita Kristbjörg Unnur Grettisdóttir og Sigurður Gísli Þórarinsson. Þau búa öll hjá mér í Eyjum og svo á eg eina sæta langömmu sem heitir Fanney Egilsdóttir og á heima í Kópavogi. Endilega kíkið á myndirnar mínar og skrifið í gestabókina því mér finnst svo gaman að sjá hverjir kíkja á mig!!





Kristbjörg Merkir: Nafn þetta er samsett af forliðnum "Krist" sem er komið af gríska orðinu "Khristós" sem merkir hinn smurði, - kristur og viðliðnum "björg" sem merkir hjálp.

Unnur Merkir: Nafn þetta hefur bæði verið tengt við orðið "unnur" í merkingunni alda, - bára og einnig hefur það verið tengt við sögnina "unna"´sem merkir að elska, - þykja vænt um.









Hún er dökkhærð og lagleg
hún er ljúf eins og vor,
stráir ástríku yndi
við hvert einasta spor.
Hún er elskuð af öllum
og í athöfnum dygg.
Hún er sólskinsbarn síglatt
hún er saklaus og trygg.







Leiddu mína litlu hendi
Ljúfi faðir þér ég sendi
Bæn frá mínu brjósti sjáðu
Blíði Jesú að mér gáðu
Þú ert gestur nr. 86538