Velkomin á heimasíðunna mína. Welcome to my website. My mom will keep my site updated in Icelandic and if my daddy has time, he will keep it updated in English. A few translations to navigate my site... album=picture album, gestabók=guestbook (nafn=name, netfang=email address, heimasíðan þín=your website, skilaboð=message), forsíða=home page, skráð=date and time, umræða=chatroom, vefdagbók=my journal or diary.
Ég heiti / my name is Embla Ray. Ég er orðin stóra systir. Ellert Clark bróðir minn fæddist 14 sept 2006. Ekkert tannlaus lengur. n.t.v (12. jan 2005) Ég er sko heldur ekkert skríðandi krúsí dúlla lengur. (31. jan 2005) Það kom önnur tönn Híhí! n.t.h (24. feb. 2005) síðan kom bara enn önnur u.t.v (20. mars 2005), u.t.h (21. mars 2005), fyrsti jaxlinn u.t.v (6.apríl 2005)


Um mig:
Ég fæddist þann 16 nóv 2003,kl 11.31. Ég var 3510 gr eða 14 merkur og 51.5 cm.
Ég fékk fyrstu tönnina 12 janúar 2005. Pabbi fann hana þegar hann kom heim úr vinnunni. Ég var líka næstum því búin með tannadeyfipilluboxið svo það gat ekki annað verið en hún færi að koma.
31. janúar fór ég með dúkkukerruna mína út að labba í fyrsta skiptið.




Annað:
Til Emblu Ray
Áður en þú varst til, þráðum við þig. Áður en þú komst í heiminn, elskuðum við þig. Áður en þú hafðir lifað eina stund, hefðum við fúslega dáið fyrir þig. Þú ert karftaverk lífsins. Takk fyrir að vera til !



Hér kemur smá um það sem fylgir Nóvember mánuði



Litur nóvember er gulur

Blóm nóvember er gullfífill

Fæðingarsteinninn er tópas

Stjörnumerkið mitt og Önnu Móðu og Tinnu Móðu.


SPORÐDREKINN

24. október - 21. nóvember



Þegar barn í sporðdrekamerkinu lítur dagsins ljós beinast öll augu að því. Og barnið heldur þeirri athygli í langan tíma því það þarf mikla athygli. Foreldrar mega búast við því að heyja valdabaráttu við litla sporðdrekann því hann ætlast oftar en ekki til þess að pabbi og mamma séu boðin og búin þegar hann þarfnast einhvers (ekki 5 mínútum síðar). Þetta er kraftmikið barn og foreldrar þurfa að vera á verði því þau eru snillingar í að fá fólk til að snúast í kringum sig og nota til þess alls kyns kænskubrögð. Uppeldi sporðdrekans getur skipst í tvö horn því þó hann sé ráðríkur, skapstór og þrjóskur getur hann einnig verið blíður og elskulegur. Það borgar sig ekki að skipa honum fyrir eða ætla að ráðskast með hann. Þó slíkar uppeldisaðferðir séu óhentugar fyrir öll börn geta afleiðingarnar orðið sérstaklega slæmar þegar sporðdrekinn á í hlut. Hann getur lokað á umhverfið, dregið sig inn í skel og orðið stífur og jafnvel árásargjarn. Foreldrar þurfa að fylgjast með tilhneigingu litla drekans til að byrgja inni reiði. Best er að fá hann til að opna sig með því að tala við hann í ró og næði. Sporðdrekar eru mjög næmir á umhverfi sitt og því er mikilvægt að umgangast þá með varúð og hreinskilni. Sporðdrekanum er illa við yfirborðsmennsku og fals og missir auðveldlega álit á þeim sem ekki koma heiðarlega fram við hann.

Þú ert gestur nr. 22941