|
|
![]() ![]() ![]() ![]()
Ég heiti Þorsteinn Ari Jónsson. Ég fæddist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 2. janúar 2004 kl. 14:25 og var ég fyrsta barnið á Norðurlandi. Við fæðingu var ég 4435 gr. og 55 cm. Ég er á leikskólanum Tröllaborgum og heitir deildin mín Lækur, ég byrjaði þar í vor og gæti ekki verið ánægðari :) Litli bróðir minn hann Birkir Orri fæddist 14.12.2007 á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri kl. 16:13. Hann var 16 merkur (4.000 gr) og 54 cm. Stór og flottur strákur eins og stóri bróðir. Ég er rosalega góður við hann og finnst hann algjört æði. Mamma okkar heitir Þóra Guðrún Þorsteinsdóttir ('81) og er frá Grenivík og pabbi okkar heitir Jón Þór Jónsson ('79) og er frá Ólafsvík. Þau gætu ekki verið stoltari af flottu strákunum sínum:) Síðan mín er læst en ekki hika við að biðja um lykilorðið.
![]()
Steingeitin er alvarlegasta stjörnumerkið og oft er sagt að hún fæðist gömul og verði yngri eftir því sem árin færist yfir. Steingeitin er vel skipulögð og er ung að árum farin að taka þátt í rekstri heimilisins. Hún á stundum erfitt með að hafa gaman af lífinu og ekki er ólíklegt að barnið þitt velji frekar að raða fötunum sínum í skápinn en að fara út að leika. Mikilvægt er að foreldrar kenni börnum sínum að það er í lagi að slaka á og leika sér og að fullkomnun er ekki einungis ómöguleg heldur einnig mjög ópraktísk. Steingeitin er haldin fullkomnunaráráttu og óttast fátt meira en að missa sjálfsstjórn og þar með tök á tilverunni. Hún verður mjög óörugg ef hún hefur ekki gamalgrónar reglur og hefðir til að styðjast við og ef þær eru ekki til staðar er hún fljót að búa til reglur sjálf. Börn í steingeitinni eru mjög athugul, skynsöm og metnaðargjörn og dæmigerðar geitur vita allra merkja fyrst hvað þær ætla sér í lífinu. Mikilvægt er að kenna steingeitinni að tjá tilfinningar sínar, slaka á og sjá bjartari hliðar tilverunnar og ekki síst að ýta undir skopskyn hennar.
Lítill fjörkálfur hefur litið dagsins ljós. Bogmannsbarnið er að öllu jöfnu glaðlegt og jákvætt og þægilegt í návist. Það þarf mikla hreyfingu og líklegt er að það fari snemma að ganga og skoða heiminn því bogmaðurinn er merki ferðalaga og strax í bernsku birtist þörfin fyrir ævintýraferðir af ýmsu tagi. Litlu bogmannskrílin þurfa að hafa gott pláss til að hreyfa sig en ef þau fá ekki útrás fyrir orku sína verða þau eirðarlaus og uppstökk. Bogmenn hafa yfirleitt yndi af íþróttum og hið dæmigerða bogmannsbarn er iðulega á kafi í alls konar íþróttaiðkunum. Listin að ala upp bogmann er fólgin í því að finna jafnvægi á milli frelsisþarfar annars vegar og ábyrgðarkennar og aga hins vegar. Foreldrar ættu að veita honum aðhald og venja hann á að ljúka því sem hann er að fást við áður en hann byrjar á nýju verki. Hann á það til að vera mjög fljótfær og nokkuð kærulaus og því þarf að hjálpa honum að þroska með sér dómgreind og skynsemi. Bogmannsbarnið verður mikið á ferðinni og um leið og það fer að komast sjálft ferða sinna leggur það í ferðalag um nágrennið og síðan lengra þannig að það getur verið erfitt að hafa stöðugt augun á þessu barni. Góða ferð. |
|
Alexandra Ösp Harpa Lind, Anna María og Snúður Böðvar Ingi Arnar Þór Aron Ásgeir Bjarki Snær og Alexandra Ösp Eiríkur og Ingþór Örn Gylfi Rúnar og Brynhildur Freyja Júlíus Patrik og Hilmir Örn Mikael Máni, Kristján Breki og Alexander Jan Anton Ingi Sindri Snær og Arnar Valur Salka Sóley og Erla Sigríður Steinþór Snær og Björn Diljan Sara Líf Aþena Sól
Þessa vísu orti langafi minn og gaf mömmu þegar hún átti afmæli. Minning um árið er indæl og hrein, sem aldrei gleymist, vil ég meina. Af þér fæddirðu yngissvein yndislegan Steina. Takk langafi, þetta er rosa flott vísa!!! Svo fékk ég þessa vísu þegar ég var skírður. Hún er líka frá langafa Þórhalli. Að verði líf hans bjart og blítt um brautir gæfu hann megi fara af alúð geymi afanafnið sitt um þetta bið ég fyrir Þorstein Ara.
|
| Þú ert gestur nr. 34585 |