Við heitum Viktor Máni, Lára Kristín og Natan Kári


Um mig:




Ég Viktor Máni er fæddur á Landspítalanum í Reykjavík 15.06.99 Ég var tekinn með keisaraskurði því ég var svo óþekkur "vildi bara sitja" Ég kom í heiminn eftir að hafa verið 37 vikur í mallanum, en þó vó ég 3620 gr og var 51 cm. Ég var með svart hár og svört augu.
Ég Lára Kristín er líka fædd á Landspítalanum í Reykjavík þann 13.12.00 og líka með keisaraskurði, því ég var líka svo óþekk "vildi bara sitja" Mér fynnst voða gaman að keppa við bróður minn og ákvað að gera betur en hann og kom í heimin eftir 34 vikur í mallanum, ég vó 2500 gr og var 44 cm. Ég var með rautt hár og svört augu.
Við eigum heima í Danmörku í litlum bæ sem heitir Gedved. Pabbi okkar var að læra að verða tölvutæknifræðingur og er að bæta við sig mastersgráðu núna og mamma er að læra að verða hjúkrunarfræðingur.
Á meðan að mamma og pabbi eru í skólanum erum við stórubörnin í skóla og Natan hjá dagmömmu, okkur fynnst það vera rosalega gaman.
Mamma okkar heitir Elísabet fædd 80 og pabbi okkar heitir Jens fæddur 79. Við eigum líka lítinn bróðir hann Natan Kára sem við biðum svo lengi eftir að fá út úr mallanum á mömmu. Við erum rosalega góð við hann og svo stolt af honum. Það stendur aðeins um hann hér neðar á síðunni. Hann er líka kominn með sér síðu á hans nafni
Við eigum líka hana Heklu hún er hvíti hundurinn okkar. Hún er voðalega sæt og skemmtileg.







Annað:
Ég heiti Natan Kári og er litli bróðirinn. Ég fæddist á Kolding sygehus í danmörku þann 20.02.04. Ég var tekinn með keisaraskurði eftir að hafa verið 36 vikur í mallanum á mömmu minni og eftir heiðarlegar tilraunir til að koma fyrr eða frá viku 34. En ég á svo duglega mömmu að hún gerði allt (sem sagt ekki neitt annað en að lesa í sjúkrahúsrúmi) til að halda mér þarna inni eins lengi og hún gat. Við vorum svo heppin að vera inni á spítalanum því ég nauðsýnlega þurfti að komast út og var mömmu rúllað inn á skurðstofu beinustu leið í bráðakeisara, auminga pabbi missti af því að vera með okkur þegar ég kom í heiminn en kom hann þó fljótlega til okkar. Ég vó 3085 gr og var 51 cm. Ég var með dökkt hár og svört augu en núna orðinn rauðhærður eins og pabbi minn og Lára stóra systir mín. Ef þið viljið vita meira um mig eða skoða fleiri myndir af mér þá á ég mína eigin heimasíðu og hún er að sjálfsögðu undir mínu nafni. Þið getið klikkað á linkin hér fyrir neðan og þannig komist þið beint inná síðuna mína.


klikkið hér til að komast á Natans Kára síðu.




Við erum ALLTAF svona góð við hvort annað, kyssumst bara og rífumst ALDREI





Natan Kári ofursæti bróðir okkar.


Síðan hans Fúsa stóra frænda okkar.


Vigdís Lilja og Bertel Snær vinir okkar.


Ingibjörg Embla kærastan hans Natans Kára.


Gísli Már frændi okkar.


Emilía Björg frænka okkar.


Sigrún og Kristinn Óskar frændsystkini okkar.


Prinsessan hún Elín Eir vinkona okkar.


Harpa María sæta vinkona okkar.


Íris Ósk stóra systir Hörpu.


Sæti prakkarinn hann Stefán Örn vinur okkar.


Telma Sif bestasta vinkona hennar Láru í heiminum.


Fannar Þór frændi okkar.


Jónas Eyjólfur frændi okkar.


Oliver Breki litli frændi okkar.


Aron Elí frændi okkar.


Kamilla Dís, litla frænka okkar.


Lúcas Nökkvi, litli frændi okkar.









Þú ert gestur nr. 14711