Velkomin á heimasíðuna okkar
Við erum systkinin Aþena ósk og Aron Ingi:)


Aþena ósk og Aron Ingi


Hæ ég heiti Aþena Ósk og fæddist 12 ágúst 2003 á sjúkrahúsi Suðurnesja kl: 10:16, vóg 4330gr og var 52,5 cm. Ljósmóðirinn sem tók á móti mér heitir Margrét Knútsdóttir og svo var nemi sem heitir Lykke Poulsen hún er frá Danmörku. Meðgangan gekk eins og í sögu allt var svo frábært og gaman en svo í endirinn varð eitthvað smá vesen, því viku áður en ég fæddist þá missti mamma vatnið en aldrei kom ég og fylgst var með mér marga daga og beðið með eftirvæntingu en svo kom í ljós að það var ytri belgurinn sem sprakk svo ég var enn í maganum viku eftir þá fór loksins hinn belgurinn. mamma fór upp á sjúkrahús kl: 3:15. ég kom svo í heiminn kl: 10:16 þá fór ég beint í hita kassa því þeir héldu að það væri ekki nægilegt súrefni í blóðinu og komu 5 læknar að skoða mig en ég var svo sterk að allt gekk vel að lokum mamma gat bara strax farið á fætur var bara voða spræk:) Ég var með svart hár og voðalega dökk augu eins og pabbi:)

Hæ ég heiti Aron Ingi og fæddist 31 Október 2010 á sjúkrahúsinu í Molde (Noregi) kl: 10:55, vóg 4270 gr og var 53 cm. Ljósmóðirinn sem tók á móti mér heitir Ingu Annlauey Eiden og barnalæknirinn heitir Torbjörg. Meðganagan gekk rosa vel og átti ég að koma í heiminn 26 október en lét aðeins bíða eftir mér og ákvað að koma 31 október. mamma og pabbi fóru úpp á sjúkrahús klukkan 09:45 og þá var mamma búin að missa vatnið og aðeins klukkutima seinna eða 10:55 var ég komin i heiminn semsagt þá kom ég í heimin með miklum látum :)
mamma gat bara strax farið á fætur var bara voða spræk:) Ég var með svart hár og voðalega dökk augu eins og pabbi:)

Mamma okkar heitir Hjördís Emilsdóttir Og Pabbi heitir Jóhann Ingi Reynisson og við búum í Noregi.








Blessað litla barn - sem áður varst aðeins von,
fjarlægur draumur.
Nú ertu til, raunverulegt. þú breytir öllu því sem áður var.
Svo undur smátt, eins og stjörnuryk.
Hugur sem spannar himingeyma.
Ást sem geymir hjörtu okkar um alla eilífð.



MAMMA ER KONAN.....

sem kemur manni í heiminn með mikilli fyrirhöfn,
fæðir mann og klæðir og veitir manni alla þá hlýju
og ástúð sem lítið barn þarf á að halda.
Þegar maður eldist og ætti kanski að geta hugsað
meira um sig sjálfur, til dæmis að vera í hreinum
fötum og laga til í herberginu sínu, leyfir mamma
manni það ekki því hún er svo vön að hugsa svo vel
um barnið sitt. Mamma er alltaf til staðar með
útrétta hjálparhönd þegar á þarf að halda,
þerrar tárin þegar það er leiðinlegt og gleðst
með manni þegar það er gaman að vera til.

MAMMA ER BESTA KONA Í HEIMI!!!




PABBI ER MAÐURINN.....

sem verður svo montinn þegar maður fæðist
það mætti halda að það hefði ekki fæðst barn áður.
En það tekur hann bara nokkra dagaað komast
niður á jörðina aftur.
Honum finnst skrítið að lítið barn geti ekki
sofið alla nóttina og kúkað í klósettiðeins og annað fólk.
Samt veit hann allt!! svo þegar maður verður
aðeins eldri og það er hægt að fara að leika
við mann og kenna manni ýmislegt finnst honum rosa gaman.
pabbi er alltaf til staðar með styrka hönd þegar á þarf að halda.

PABBI ER BESTI MAÐUR Í HEIMI!!!

Vinir Mínir


Einar Aron


Vala Marie


María Draumey Kjærnested


Kamilla Rún


Gabríella Kamí og Anika Rós


Eyþór Ingi, Eva Lind og Andri Steinn


Arnar Steinn


Ester Gyða og Vala Marie


Jóhann Kári og Birkir

Hulda María


Rúnar Leó





ELSKU MAMMA OG PABBI

Ég er með svo litlar hendur
Ég ætlaði ekki að hella niður mjólkinni

Fæturnir á mér eru svo stuttir
Farðu hægar svo ég geti fylgt þér eftir

Ekki slá á hendurnar á mér
Ég snerti eitthvað fallegt
Ég skil það ekki

Horfðu á mig þegar ég tala við þig
Þá veit ég að þú ert að hlusta

Ég hef viðkvæmar tilfiningar
Ekki vera alltaf að skamma mig

Leyfðu mér að gera mistök
Án þess að mér finnist ég vitlaus

Ekki búast við að myndin sem ég teikna
Eða rúmið sem ég bý um verði fullkomið
Elskaðu mig fyrir að reyna

Mundu að ég er barn, ekki fullorðin vera
Stundum skil ég ekki hvað þú segir

Ég elska þig svo mikið
Elskaðu mig bara fyrir að vera ég
Ekki fyrir eitthvað sem ég geri



Vinnan býður á meðan þú sýnir barninu regbogan, en regnboginn mun ekki býða eftir að þú ert búin að vinna.



BANGSAR

Allir vita það fullvel að bangsinn heyrir ekki, en samt hafa mörg börn alla tíð sagt honum leyndarmál sín.

Allir vita að bangsinn getur ekki talað, en þó hefur hann huggað ótal börn.

Það er erfitt að segja nákvæmlega til um í hverju töfrar hans felast en sá sem hefur horft framan í bangsa getur borið um glettnislegan glampann í augum hans.

Bangsinn, lítill og loðinn, sendur af stað út í heim til að kenna fólki að faðmast.

Bangsar fá sér blund en þeir sofa aldrei í alvöru því þeir eru of önnum kafnir við að vernda börnin.

Bangsar þurfa ekki að vera nýjir eða fallegir - bara að vera til.

Bangsar svíkja mann aldrei.

Bangsi stendur alltaf með þér.

Bangsi er faðmlag með fjórar loppur.

Bangsar eru eins og yfirgefnir vinir sem bíða eftir að vera bjargað.



Kærleikur er að lifa sáttur við sjálfan sig og aðra



Hún er dökkhærð og lagleg
hún er ljúf eins og vor
stráir ástríku yndi
við hvert einasta spor.
Hún er elskuð af öllum,
og athöfnum dygg.
Hún er sólskinsbarn síglatt
hún er saklaus og trygg.

takk fyrir komuna
og endilega kvittið í gestabókina



Þú ert gestur nr. 24773