Velkomin á stóru strákasíðuna okkar,
![]() |
| Við eru Hellustrákarnir og heitum Gunnlaugur Rafn, Þröstur og Örn |
|
|
Um mig:
LEYNIORÐIÐ ER GÆLUNAFN AFA Á DALVÍK
Gulli Rafn fæddist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri miðvikudaginn 8. janúar 2003 kl. 19:48. Hann var mjög þreyttur og slæptur þegar hann kom í heiminn, þannig að Gulli Rafn fór á vökudeild í eina viku á meðan hann var að jafna sig. Gulli Rafn var 13 merkur og 53 cm.
Mið bróðirinn heitir Þröstur. Hann fæddist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 3. mars 2005 kl. 12:28. Hann var tekinn með bráðakeisaraskurði. Þröstur var 15 merkur og 54 cm.
Allraminnsti bróðirinn heitir Örn. Hann fæddist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 18. október síðastliðinn kl. 9:06. Hann var tekinn með keisaraskurði 4 dögum fyrir áætlaða fæðingu þar sem hann sat eins og kóngur. Örn var 15 og hálf mörk og 54 cm.
Mamma heitir Eyrún Rafnsdóttir og pabbi heitir Ingvar Örn Sigurbjörnsson. Við eigum heima á Hellu sem er á Árskógsströnd í Dalvíkurbyggð.
|
|
|
|
Annað:
Nafnið Gunnlaugur er myndað af forliðnum "Gunn" sem merkir orrusta og viðliðnum "laugur" sem merkir tær, eða hreinn. Rafn merkir Hrafn. Nafnið Þröstur er fuglsheitið Þröstur Nafnið Örn er fuglsheitið Örn
Drengir eru breytilegir að stærð, þyngd og lit. Þeir eru alls staðar - uppi á öllu og niðri í öllu, klifrandi, hlaupandi og stökkvandi. Mæður elska þá, eldri systur og bræður umbera þá, fullorðnir virða þá ekki viðlits, og Drottinn verndar þá. Drengur er Sannleikur með óhreinindi í andlitinu, Viska með tuggugúmmí í hárinu og Von framtíðarinnar með ánamaðk í vasanum. Drengur hefur matarlyst eins og hestur, meltingu eins og sverðagleypir, orku eins og vasaatómsprengja, rödd eins og einræðisherra. Hann er gæddur forvitni kattarins, ímyndunarafli skáldsins, feimni fjólunnar, viðbragðsflýti veiðibogans, funa flugeldsins, og þegar hann býr eitthvað til, hefur hann fimm þumalfingur á hvorri hendi. Hann kann vel að meta rjómaís, hnífa, sagir, myndabækur, skóga, vatn (í sínu náttúrulega umhverfi), stór dýr, pabba, bíla, laugardagsmorgna og brunabíla. Hann er lítið fyrir sunnudagaskóla, barnaskóla, myndalausar bækur, spilatíma, hálsbindi, rakara, stelpur, frakka, fullorðna eða háttatíma. Enginn er eins árrisull, og enginn eins síðbúinn til matar og hann. Enginn nema hann getur troðið í einn vasa ryðguðum hníf, hálfétnu epli, þriggja feta snærisspotta, þremur blossateinum, tuttuguogfimmeyringi, vatnsbyssu, og dularfullu áhaldi, sem enginn þekkir nema hann. Drengur er sannkölluð töfravera - þú getur lokað hann úti úr vinnustofunni þinni, en þú getur ekki lokað hann út úr hjarta þínu. Þú getur fengið hann burtu úr skrifstofunni þinn, en þú getur ekki fengið hann burtu úr huga þér. Það er eins gott að gefast upp strax - hann er fangavörður þinn, húsbóndi og herra - freknóttur ólátabelgur. En þegar þú kemur heim á kvöldin með allar borgir vona þinna og drauma hrundar, getur hann reist þær aftur með tveim töfraorðum - Óskar Óðinn Kristbjörg Anna Sunna Líf og Sandra Dís Matthías Logi Emil frændi Hjalti Trostan Adam Elí
Áður en þú varst til þráðum við þig. Áður en þú komst í heiminn elskuðum við þig. Áður en þú hafðir lifað eina stund hefðum við fúslega dáið fyrir þig. Þú ert kraftaverk lífsins Takk fyrir að vera til
Bara í dag.... -ætla ég að brosa til þín þegar augu okkar mætast og hlæja þegar mig langar frekar að gráta... -ætla ég að leyfa mér að vakna mjúklega, vafinn inn í sængina þína, og halda á þér í fanginu þar til þú ert tilbúinn fyrir nýjan dag... -ætla ég að leyfa þér að velja hvaða föt þú ferð í, brosa og hrósa þér fyrir "fullkomna" litasamsetningu... -ætla ég að gleyma óhreina tauinu og fara frekar með þér út á leikvöll... -ætla ég að geyma óhreinu diskana í vaskinum og hjálpa þér að leysa nýja púsluspilið þitt... -ætla ég að slökkva á símanum og tölvunni og fara með þér út að blása sápukúlur... -ætla ég að bjóða þér upp á ís í innkaupaferðinni, í stað þess að byrsta mig um leið og þú ferð að suða um hann... -ætla ég ekki að hafa áhyggjur af því hvað þú ætlar að vera þegar þú verður stór... -ætla ég ekki að hafa bakþanka um allar ákvarðanir sem ég tek í uppeldinu og fyrir þína hönd... -ætla ég að leyfa þér að baka með mér bollur og ekki hnoða þær allar aftur þegar þú sérð ekki til...
Bara í kvöld.... -ætla ég að halda á þér í fanginu og segja þér frá deginum þegar þú fæddist og hvers vegna mér þykir svona vænt um þig... -ætla ég að leyfa þér að busla og skvetta í baðinu og ekki verða reið út af vatninu á gólfinu... -ætla ég að leyfa þér að vaka lengi og skoða stjörnurnar á himninum... -ætla ég að kúra hjá þér eins lengi og þú vilt, þó að ég missi þá af uppáhaldsþættinum mínum... -ætla ég að dást að þér og vera þakklát fyrir að eiga gersemi eins og þig
Sem kemur manni í heiminn með mikilli fyrirhöfn fæðir mann og klæðir og veitir alla þá hlýju og ástúð sem lítið barn þarf á að halda. Mamma er alltaf til staðar með útrétta hjálparhönd þegar á þarf að halda. Þerrar tárin þegar það er leiðinlegt og gleðst með manni þegar það er gaman að vera til. Mamma er besta kona í heimi.
Hvaða maður sem er getur orðið faðir. Það þarf einstakan mann til að vera pabbi
Sem verður svo montinn þegar maður fæðist að það mætti halda það hafi ekki fæðst barn áður en það tekur hann bara nokkra daga að komast niður á jörðina aftur. Honum finnst skrítið að lítið barn skuli ekki getað sofið alla nóttina og kúkað í klósett eins og annað fólk. Samt veit hann allt !! Svo þegar maður verður aðeins eldri og þá er hægt að fara að leika við mann og kenna manni ýmislegt þá finnst honum rosa gaman. Pabbi er alltaf til staðar með styrka hönd þegar á þarf að halda. Pabbi er besti maður í heimi
ÞÚ ERT LÍKLEGA MÓÐIR ...ef þú felur þig inni á baðherbergi til að geta verið ein smástund. ...ef þú hefur verið í trimmgalla alla helgina. ...ef fæturnir á þér festast í klístrinu á eldhúsgólfinu ...og þér er alveg sama. ...ef það er líklegra að þú verðir fyrir eldingu en að þú fáir ótruflaðan 8 tíma svefn. ...ef þú hefur aðeins tíma til að raka annan fótlegginn í einu. ...ef þín skilgreining á góðum degi er að halda fötunum frá sulli og óhreinindum. ...ef þú þværð barninu í framan með munnvatnsbleyttum þumalfingrinum. ...ef þú gerir ósjálfrátt tvöfaldan hnút á allt sem þú hnýtir. ...ef þér finnst góð lyktin af soðnum gulrótum með eplamauki. ...ef þú ert farin að kaupa morgunkorn með sykurpúðum. ...ef þér tekst að setja ólíkar tegundir matvæla á disk, án þess að nokkrar þeirra snertist. ...ef þú vonar að tómatsósa sé grænmeti, af því að það er það eina sem barnið borðar. ...ef þú byrjar alltaf á að skera matinn þinn í litla bita og leyfir öðrum að borða af disknum þínum. ...ef þú segir setningar eins og: "ekki setja pastað í nefið á þér...!"" ...ef þú telur skrautsykursmolana á hverjum kökubita svo allir fái jafnt. ...ef þú velur veitingastaði eftir gæðum barnamatseðilsins og dótinu sem fylgir með. ...ef þú ferð á fætur kl 5:30 á hverjum degi, hefur ekki tíma til að borða (hvað þá að drekka eða fara á klósettið) og samt tekst þér að þyngjast um 5 kíló! ...ef símtölin þín eru sífellt slitin í sundur af setningum eins og: "Ekki skrifa á vegginn!" "Ekki nota köttinn fyrir fjall!" "Nei, skrifborðið á ekki að vera í sófanum!" "Hættu að toga í hárið á systur þinni" "Bíddu aðeins á meðan ég næ í þráðlausa símann, ég þarf að skipta á barninu/gefa barninu að borða/ finna barnið!!" ...ef þú nærð að hlaupa í gegnum alla íbúðina (og um leið setja barnið í stólinn sinn, hoppa yfir tvö öryggishlið, velta þremur taukörfum, hrasa um leikfang, hundinn og bolta á ganginum) og svara símanum áður en kviknar á símsvaranum. Um leið hefur þú öðlast réttindi til þáttöku í fjölþraut og átt góða möguleika á að vinna gullið! ..ef þú hefur litlar áhyggjur af bauki og bramli, en fyllist skelfingu ef allt er hljótt. ...ef þú heyrir rödd móður þinnar þegar þú segir: "Nei, ekki þegar þú ert í sparifötunum!" ...ef þú ert hætt að gagnrýna uppeldi móður þinnar á þér og syskinum þínum. ...ef þú ert farin að raula Disney-lög yfir uppvaskinu. ...ef þú færð barnapíu til að komast loksins út með manninum þínum og eyðir svo hálfu kvöldinu í að athuga hvernig gengur heima. ...ef þú segir á hverjum degi: "Ég er ekki rétta manneskjan í þetta starf" en myndir samt ekki vilja skipta um hlutverk við nokkurn annan!
|
| Þú ert gestur nr. 32766 |