Velkominn á heimasíðuna mína :-)
Ég heiti Alexander Máni

Hæ Ég heiti Alexander Máni Haraldsson :o) Ég fæddist á sjúkrahúsinu á selfossi aðfaranótt 24 mars kl 03:44. Ég var 3800 grömm og 54,5 cm. Ég var með mikið svart hár og og dökk, dökk, dökk blá augu en núna eru þau orðin brún eins og á honum pabba :o)
Mamma mín heitir Kolbrún Eva Viktorsdóttir(83) og Pabbi minn heitir Haraldur Gunnar Ásmundsson.(79) Ég á tvö systkini, Einn bróðir sem heitir Aron Ágúst Birkirsson og eina systur sem heitir Tara Mist Haraldsdóttir. Þau eru bæði fædd árið 2000 :o)

Bara í kvöld....
-ætla ég að halda á þér í fanginu og segja þér frá deginum þegar þú fæddist og hvers vegna mér þykir svona vænt um þig...
-ætla ég að leyfa þér að busla og skvetta í baðinu og ekki verða reið út af vatninu á gólfinu...
-ætla ég að leyfa þér að vaka lengi og skoða stjörnurnar á himninum...
-ætla ég að kúra hjá þér eins lengi og þú vilt, þó að ég missi þá af uppáhaldsþættinum mínum...
-ætla ég að dást að þér og vera þakklát fyrir að eiga gersemi eins og þig.
kveðja mamma
ELSKU BARN.
Ást mín verður með þér
hvenær sem þú þarfnast hennar.
Ást mín verður með þér
þegar gleðin ber þig ofurliði.
Ást mín verður með þér
þegar erfileikarnir eru að buga þig .
Ást mín verður með þér
þegar þú óttast lífið .
Ást mín verður með þér
í dag og alla daga.
Nafnið mitt
Alexander
Nafn þetta er upprunnið úr grísku og er sett saman úr forliðnum "aléxein" sem merkir vernd, "anér" sem merkir ef og "andrós" sem merkir maður.
Alexander er því verndari.
Máni
Nafn þetta er fengið af nafnorðinu "máni" sem merkir tungl.





