Vefdagbók
Myndaalbúm
Kveðjur frá gestum
Gullkorn
Dagbók barnsins
Sandra Björk
Sandra Björk
Gleðileg jól.. Söknum þín í tætlur... Vonandi skemmturu þér vel í kvöld og varst ánægð með gjöfina þína frá okkur :) Kveðja Íris,pabbi,Ingi og Ágúst
Íris,pabbi,Ingi og Ágúst | 0 | 24.12.2008 21:56:43 #
Hæ sandra til haingju með 12 ára afmælið kveðja Nína Lee
Nína Lee | 0 | 19.4.2008 12:01:27 #
  • Hæ hæ. Gleðilega páska elskan :) Hlökkum til að sjá þig næst. Kveðja
    Íris Júlía Ármannsd
    |
    0
    |
    23.3.2008 14:07:50
  • Hæ hæ var bara aðeins að kíkja Kv.Elínborg Ósk
    Elínborg Ósk
    |
    2.3.2008 12:51:02
Hæ hæ skvís.. Gleðileg jól.. Hlökkum til að sjá þig um áramótin.. Kveðja frá Borgarnesi
Íris Júlía Ármannsd | 0 | 24.12.2007 23:45:20 #

Hæ hæ.

Í gær þá kom Íris,Pabbi,Ingi og Ágúst að sækja mig. Við fórum í nokkrar búðir að versla. Hittum Sigurveig,Klöru og Ísabellu í einni versluninni. Spjölluðum smá stund við þau. Þegar við vorum búin að versla þá fórum við í heimsókn til Reynir og Hönnu. Við vorum komin svoldið seint heim um kvöldið. Við bárum upp dótið sem við versluðum og kíktum svo til ömmu og afa. Kysstum þau góða nótt og fórum svo fljótlega að sofa. Í dag þá fór ég,Ágúst og Ingi með Írisi að versla. Komum svo heim og fórum fljótlega eftir það með Ágúst út. Við fórum þar sem var leikskóli og leyfðum Ágústi að leika sér í sandkassanum. Þegar við komum heim þá fengum við okkur að borða og fórum svo að skoða eina sýninguna á landnámssetrið. Þetta var ágætt að skoða þetta og smá fróðandi. Fórum svo að fá okkur að borða.

Kveðja. Sandra

0 | 1.9.2007 19:49:56 #

Halló.

Ég kom á miðvikudaginn. Lára og Hafdís þurftu að fara til R.víkur og ákvöðu að taka mig með sér til Borgarnes. Ég stopp stutt núna. Ég fer aftur á morgun, enda langar mig að vera hjá afa á afmælisdeginum sínum. En hann á afmæli á þriðjudaginn.

Það er búið að vera nóg að gera hjá mér  um helgina. Það var ættarmót hjá afa ætt (afkomendur Guðmundar langalangafa og Ágústu langalangömmu). Það var haldið í Lyngbrekku. Þetta var mjög gaman. Við fórum að leiði þeirra Guðmundar og Ágústu og kíktum inní kirkjuna sem var þarna. Þetta var mjög falleg kirkja. Ég,pabbi,Íris og Ágúst fórum í Borgarnes til að versla og svoleiðis. Þegar við komum til baka þá var búið að grilla svo við komum bara beint í matinn. Þetta var bara ágætis ættarmót. Við fórum svo svoldið eftir matinn enda Ágúst orðinn frekar þreyttur. Þegar við komum heim þá kenndi pabbi mér og Inga að marinera kjöt. Hann grillaði það svo kvöldið eftir,

Í dag þá fór ég út að labba með Ágúst og Ingi fór hjólandi með okkur niður í bæ. Við keyptum okkur að drekka fyrir peninginn sem Íris lét okkur fá áður en við fórum út. Þegar við komum til baka þá fórum við á róló og þar fannst Ágústi mjög gaman. Enda leyfðum við honum að renna sér,róla og fara á vegasalt þar sem ég hélt í hann og Ingi vegaði við hann. Amma og afi komu til okkar í mat um kvöldið. Pabbi grillaði mjög gott kjöt. Írisfór sem með okkur Inga og Ágústi á rólóinn aftur til að taka myndir af okkur. Ágúst skemmti sér aftur vel en ekki eins mikið og í dag því þá var hann ný vaknaður og hress en í kvöld var hann orðinn frekar þreyttur. Pabbi og Íris fóru svo í sjoppu í kvöld,ég og Ingi pössuðum Ágúst á meðan. Þau komu heim með ís og nammi handa okkur. Þá gátum við notað dollurnar og skeiðarnar sem lýsa í myrkri, Íris keypti þær handa okkur um daginn og við vorum búin að bíða og bíða eftir því að geta notað þærSmile.

Kveðja Sandra

0 | 12.8.2007 23:02:58 #