|
|
Um mig:
Ég fæddist á landspítalanum 18. janúar 2002 kl 18.57. Ég var 16 merkur og 53cm og ég var með dökkt mikið hár. Mamma mín heitir Helga og pabbi minn heitir Helgi. Ég á einn lítinn bróðir og hann heitir Bergvin Fannar og hann er fjögra ára og hann á líka heimasíðu hér
Róbert Nafn þetta er tökunafn úr þýsku þar sem það er sett saman af nafnorðinu "hröth" sem merkir hróður, - frægð og lýsingarorðinu "beraht" sem merkir bjartur, - skínandi ur hér. Örn Fuglsheitið örn. STEINGEITIN 22. desember - 19. janúar Steingeitin er alvarlegasta stjörnumerkið og oft er sagt að hún fæðist gömul og verði yngri eftir því sem árin færist yfir. Steingeitin er vel skipulögð og er ung að árum farin að taka þátt í rekstri heimilisins. Hún á stundum erfitt með að hafa gaman af lífinu og ekki er ólíklegt að barnið þitt velji frekar að raða fötunum sínum í skápinn en að fara út að leika. Mikilvægt er að foreldrar kenni börnum sínum að það er í lagi að slaka á og leika sér og að fullkomnun er ekki einungis ómöguleg heldur einnig mjög ópraktísk. Steingeitin er haldin fullkomnunaráráttu og óttast fátt meira en að missa sjálfsstjórn og þar með tök á tilverunni. Hún verður mjög óörugg ef hún hefur ekki gamalgrónar reglur og hefðir til að styðjast við og ef þær eru ekki til staðar er hún fljót að búa til reglur sjálf. Börn í steingeitinni eru mjög athugul, skynsöm og metnaðargjörn og dæmigerðar geitur vita allra merkja fyrst hvað þær ætla sér í lífinu. Mikilvægt er að kenna steingeitinni að tjá tilfinningar sínar, slaka á og sjá bjartari hliðar tilverunnar og ekki síst að ýta undir skopskyn hennar. RÓBERT ÖRN! Elsku yndislegi Róbert Örn minn. Ég veit að ég á ekki alltaf auðvelt með að tjá tilfinningar mínar En nú langar mig til að segja þér hvað ég elska þig mikið. Mig langar til að segja þér hug minn. Ég veit ekki hvar ég væri ef ég hefði ekki fengið þig inn í líf mitt. Þú ert mér allt. Þú ert súrefnið mitt,andadrátturinn minn og löngun mín til að lifa. Hamingjan mín hófst með komu þinni í þennan heim. Í dag horfi ég á þig og er hissa á því hvað þú ert raunveruleg. Ég er svo ótrúlega heppin að hafa fengið þig inn í líf mitt,og að fá að hafa þig mér við hlið í gegnum lífið. Þú ert gullið mitt,fjársjóðurinn minn. Ég hef reynt að læra sem mest af þér í gegnum tíðina. Ég reyni að meta þig að verðleikum. Þú hefur kennt mér svo margt um lífið,sem ég annars hefði farið á mis við. Hvar væri ég án þín. Ég elska þig elsku sonur minn,nú og að eilífu. Þín mamma. Þakka þér fyrir mömmu og pabba. Sem eru svo góð við mig og líta eftir mér. Hjálpaðu mér til að vera þeim hlýðin og gott barn. AMEN Af hverju vinir ? Það eru margar ástæður fyrir því að við þurfum á vinum að halda Við þurfum á öðrum að halda því við erum í eðli okkar félagsverur Við þurfum vini til að gleðjast með á góðum stundum og til að þiggja góð ráð af Við þurfum vini til að geta stólað á Við þurfum vini til að finna hlýju og kærleik Við þurfum vini til að hugga okkur á erfiðum stundum Við þurfum á öðrum að halda því oft þurfum við hjálp við að finna lausnir á málum sem við erum að takast á við En fyrst og fremst þurfum við vini til að deila lífinu með Þess vegna þarf ég á þér að halda. Lífsreglur 1. Mundu að þú ert einstök 2. Mundu að þú ert mikilvæg manneskja 3. Mundu að þú fékkst hæfileika þína til að nota þá 4. Mundu að þú getur gefið eitthvað sem aðrir geta ekki gefið 5. Mundu að þú hefur reynslu og innsæji sem aðrir hafa ekki 6. Mundu að þú getur verið stolt af mörgum hæfileika þinna 7. Mundu að þú ert fær um ótal hluti 8. Mundu að umbera fólk sem er ólíkt þér 9. Mundu að einhver mun ætíð elska þig 10. Mundu að þú kannt eitthvað sem þú getur kennt öðrum 11. Taktu með opnum huga á móti því sem annað fólk gefur þér ELSKU MAMMA.... Ég er með svo litlar hendur,ég ætlaði ekki að hella niður mjólkinni. Fæturnir á mér eru svo stuttir,farðu hægar svo ég geti fylgt þér. Ekki slá á hendurnar mínar þegar ég snerti eitthvað fallegt,ég skil það ekki. Horfðu á mig þegar ég er að tala við þig,þá veit ég að þú ert að hlusta. Ég hef viðkvæmar tilfinningar,ekki vera alltaf að skamma mig. Leyfðu mér að gera eitthvað vitlaust án þess að þér finnist ég vitlaus. Ekki búast við því að myndin sem ég teikna eða rúmið sem ég bý um sé fullkomið. Elskaðu mig bara fyrir að reyna |
|
|
|
Annað:
Til þín
Áður en þú varst til þráðum við þig. Áður en þú komst í heiminn elskuðum við þig. Áður en þú hafðir lifað eina stund hefðum við fúslega dáið fyrir þig. Þú ert kraftaverk lífsins Takk fyrir að vera til Elsku mamma Ég elska þig svo mikið og mig langar svo til að segja þér af hverju Það eru margar ástæður fyrir því að ég elska þig Þú ert besta mamman í öllum heiminum Ég á þér svo margt að þakka Ég er svo stoltur yfir því að vera sonur þín Þú hefur alltaf verið til staðar fyrir mig þegar ég hef þurft á þér að halda Þú lýsir upp líf mitt Frá þér streymir kærleikur og hlýja Þú ert skilningsrík og viskubrunnur þinn er óþrjótandi Það er svo margt sem þú hefur kennt mér um lífið og tilveruna Ég veit að ég væri ekki sú manneskja sem ég er í dag ef ég hefði ekki átt þig að Þú veist alltaf á hverju ég þarf að halda og hvenær ég þarf uppörvun Þú þekkir mig svo vel Ég veit að til þín get ég alltaf leitað Mig langaði bara svo mikið til að segja þér hve mikils ég met þig Ég hef allt of oft tekið þig sem sjálfsögðum hlut En það sem máli skiptir er að þú vitir að ég elska þig ÞÚ ERT BEST TAKK FYRIR KOMUNA!!! RÓBERT ÖRN Heimasíða Bergvins Fannars bróðir míns Heimasíða Guðrún Erla frænka mín |
| Þú ert gestur nr. 5591 |