Vefdagbók
Myndaalbúm
Kveðjur frá gestum
Gullkorn
Dagbók barnsins
Pétur Orri,, Tómas Atli og Stefán Darri
Pétur Orri,, Tómas Atli og Stefán Darri

Velkomin á heimasíðuna okkar !

Við erum Pétur Orri, Tómas Atli og Stefán Darri


Pétur Orri fæddist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 2. desember 2003. Hann var 52 cm og 4040 gr. Þegar hann fæddist var hann með skollitað hár og falleg blá augu.


Tómas Atli fæddist á Skejby sjúkrahúsinu í Århus 23. maí 2005. Hann var 53 cm og 4000 gr. Hann fæddist með mikið dökkt hár

Stefán Darri fæddist á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 2. oktober 2007. Hann var 4400 gr. og 52 cm Hann fæddist með mikið dökkt hár og dökk augu.


Við erum búinn að setja lás á dagbæknurnar og albúmið, endilega sendið mömmu eða pabba póst ef þið viljið fá að skoða og fylgjast með okkur ;) daniah@simnet.is eða gudnih07@ru.is

Lilypie Baby Ticker
Lilypie Baby Ticker












Pétur
Nafn þetta er fengið úr biblíunni, er komið af gríska nafninu "Pétros" sem merkir klettur.
(Sjá Jóhannesarguðspjall 1:42)

Orri
Nafn þetta er komið af fuglsheitinu orri.

Tómas
Nafn þetta er fengið úr biblíunni, frá Tómasi sem var einn af lærisveinum Jesú. Þaðan kom nafnið úr grísku þar sem það merkir tvíburi.

Atli
Atli er breyting á germönsku orðunum "Atta" sem merkir faðir/pabbi og "la" sem merkir lítill. Orðið "Attala" gæti því útlagst sem litli faðir/pabbi.
Önnur skoðun er sú að orð þetta sé komið úr norrænu og þá dregið af orðinu "atall" sem merkir grimmur/harður.

Stefán er komið úr grísku og þýðir kóróna.

Darri er talið að sé komið af nafnorðinu darr sem þýðir spjót.





Lítill fjörkálfur hefur litið dagsins ljós. Bogmannsbarnið er að öllu jöfnu glaðlegt og jákvætt og þægilegt í návist. Það þarf mikla hreyfingu og líklegt er að það fari snemma að ganga og skoða heiminn því bogmaðurinn er merki ferðalaga og strax í bernsku birtist þörfin fyrir ævintýraferðir af ýmsu tagi. Litlu bogmannskrílin þurfa að hafa gott pláss til að hreyfa sig en ef þau fá ekki útrás fyrir orku sína verða þau eirðarlaus og uppstökk. Bogmenn hafa yfirleitt yndi af íþróttum og hið dæmigerða bogmannsbarn er iðulega á kafi í alls konar íþróttaiðkunum. Listin að ala upp bogmann er fólgin í því að finna jafnvægi á milli frelsisþarfar annars vegar og ábyrgðarkennar og aga hins vegar. Foreldrar ættu að veita honum aðhald og venja hann á að ljúka því sem hann er að fást við áður en hann byrjar á nýju verki. Hann á það til að vera mjög fljótfær og nokkuð kærulaus og því þarf að hjálpa honum að þroska með sér dómgreind og skynsemi. Bogmannsbarnið verður mikið á ferðinni og um leið og það fer að komast sjálft ferða sinna leggur það í ferðalag um nágrennið og síðan lengra þannig að það getur verið erfitt að hafa stöðugt augun á þessu barni. Góða ferð.







Óþolinmótt eftir að hefja leikinn er líklegt að tvíburabarnið hafi sparkað duglega í móðurkviði. Tvíburabörn eru líkleg til að byrja snemma að tala og þau segja sína skoðun frá byrjun. Þau eru mjög forvitin í eðli sínu og þurfa því alltaf að hafa eitthvað fyrir stafni. Þau eiga mjög erfitt með að sitja kyrr og eiga mjög erfitt með að þegja. Athyglin beinist stöðugt að nýjum viðfangsefnum en áhuginn hverfur oft mjög fljótt. Tvíburarnir þurfa mikla örvun og hyggilegt er að leikföng þeirra séu margvísleg og vitsmunalega þroskandi, svo sem púsluspil og þrautir af ýmsu tagi. Því fyrr sem tvíburabarnið kemst í hóp annarra barna því betra því tvíburarnir elska félagslíf enda hafa þeir mikla samskiptahæfileika. Líf og fjör er tvíburum að skapi. Yfirleitt er tvíburinn bráðþroska vitsmunalega og því nauðsynlegt að sinna þessum þætti í uppeldinu með því að reyna að svara t.d. spurningum hans (þær eru reyndar oft ansi margar) og ræða við hann. Litlir tvíburar eru oft stríðnir og hrekkjóttir en það ber ekki að taka of alvarlega því yfirleitt er meiningin ekki slæm. Hann grípur oft til prakkarastrika til að hrista upp í umhverfinu því hann hefur ríka þörf fyrir tilbreytingu.


Barn í voginni er fæddur málamiðlari sem elskar friðinn og vill að öllum komi vel saman. Sáttasemjari leikvallarins er mættur! Með þessum eiginleika fylgir ákveðin nákvæmni og glæsileiki sem hjálpar barni í þessu merki við að komast áfram og fá það sem það vill. Mjög erfitt er að mótmæla og rífast við vogina vegna þess hve sveigjanleg hún er. Þar sem þetta barn er samvinnufúst og í góðu jafnvægi þá á barnið mikið af vinum og allir leika sér saman í sátt og samlyndi. Vogin elskar að eyða tíma sínum með félögunum, því barn í vog er mikil félagsvera sem vill miklu frekar leika sér í hóp en að vera eitt að leika. Vogin er námsfús og fær góðar einkunnir út úr prófum. Þetta barn kemur ávallt vel fyrir og vandar sína framkomu. Vogin getur átt það til að vera hverflynd og óákveðin og þú skalt ekki hika við að taka ákvörðun fyrir barnið þegar það sýnir þessi einkenni. Það er nú bara þannig að barn í voginni hefur tilhneigingu til að setja sig í spor allra sem að málinu koma og því getur verið erfitt að taka “réttu” ákvörðunina. Svo sannarlega fæddur sáttasemjari. Að lokum, barn í voginni á það til að eiga erfitt með einbeitingu, svo hafðu auga með því til að halda því á réttri braut, sérstaklega þegar það er að lesa.



0 | 12.3.2010 01:58:31 #

inga

0 | 0 | 27.6.2009 15:48:48 #
Elsku Tómas til hamingju með daginn :* ég heimta myndri af afmælinu! :)
Inga frænka:) | 0 | 23.5.2009 22:48:29 #
hæ hæ já það væri nú gaman að fá hér nýjar myndir kossar og knús :*
Anna amma | 0 | 13.2.2009 21:33:52 #
  • sko! síðasta vefdagbókarfærsla var 20 mai! ég samþyggi þetta ekki! og hvað þá að það eru ekki komnar myndir í háa herrans tíð! ég er sakna ykkar eginlega of mikið til þess að þið getið feilað á þessu.... annars vona ég að ég sjái ykkur sem fyrst! í það minnsta myndir :) Elsk ;*
    Inga
    |
    14.12.2008 23:34:18
  • Innilega til hamingju með daginn stóri kall! Knús og kossar að norðan :)
    Sigga og Gunna
    |
    2.12.2008 11:49:37
  • hæhæ... hvenig lýst ykkur á að ég komi í heimsókn nærstu helgi :)
    inga frænka
    |
    6.10.2008 13:26:44
  • til hamingju með daginn litli kall! segðu svo mömmu þinni að skella inn myndum af þér.. langt síðan maður hefur séð þig :)
    Gunna
    |
    2.10.2008 16:43:59
  • Hæ hæ sætu strákar :) Stefán Darri til hamingju með 1 árs afmælið :) Verðið að fá mömmu til að setja inn nýjar myndir af ykkur! Knús Thelma, Patrekur & Viktor sem eru alveg að verða 1 árs ;)
    Thelma og tvíbbarnir
    |
    2.10.2008 14:22:43
  • hææ ég var að skoða myndirnar og þið eruð nú algjörir töffarar og ekkert smá líkir mömmu ykkar:)) byð að heilsa mömmu kv.halldóra
    halldora
    |
    8.9.2008 12:30:04
  • hæhæ það væri nú voða gaman ef hér væru nýjar myndir :) kveðja Anna amma
    Anna amma
    |
    3.9.2008 18:36:22
  • sætu bræður.. finnst nú samt alveg kominn ´timi á að mamma ykkar hendi inn nýjum myndum ;) alltaf svo gaman að skoða nýjar myndir af sætum strákum ;)
    Gunna
    |
    8.7.2008 22:05:35
  • Hæhæ elsku Dania.. það var rosalega gaman að sjá þig á Akureyri um daginn. geggjað langt síðan ég hef séð þig :) var að kíkka á strákana ykkar, náði nú ekki að skoða allt, kíki aftur seinna, þetta eru mörg ár sem ég þarf að skoða;) en svakalega fallegir strákarnir og tveir yngstu bera rosalegan svip frá þér og þinni fjölskyldu :) En vonandi hittumst við einhverntíma fljótlega aftur, það væri gaman að hittast í eitthvað smá spjall :O) og hittast með börnin.. En gangi ykkur sem allra best í Kebblaík . koss á kinn;) Kv frá Akureyri, Sandra og Rebekka
    Sandra Mjöll og Rebekka Nótt
    |
    7.7.2008 23:18:43
Hæ Hæ....Takk fyrir síðast...
Sibba amma og Helgi afi | 0 | 3.6.2008 13:00:29 #
  • Elsku Tómas Atli! Til hamingju með daginn þinn í dag stóri strákur :) Finnst svo skrítið hvað tíminn flýgur frá manni... Hlökkum alveg ofboðslega til að sjá ykkur á Akureyri þegar við komum heim. Afmælisknúskveðja frá okkur öllum ;* ;* ;*
    Sigga, Jesse & Ísafold
    |
    23.5.2008 17:38:28
  • Hamingjuóskir til Tómasar Atla sem orðinn er 3ja ára... Fúff svo stutt síðan þú fæddist stóri gaur... Hlökkum til að hitta ykkur um helgina:) Kveðjur Vilborg og Skírnir Daði...
    Vilborg og Skírnir Daði frændi....
    |
    23.5.2008 00:39:43
  • ég vill nýjar myndiiiir :) hvenar komiði til akureyrar?? ást:*
    Inga frænka
    |
    16.5.2008 08:54:52
  • flottar myndirnar.. :) vildi bara kvitta fyrir innlitið :)
    Gunna
    |
    12.5.2008 19:33:22
  • Hæ snúðar, ætlaði bara að kasta á ykkur kveðju :) megið alveg setja nýjar myndir :D saknaðarkveðja Inga ;*
    Inga frænka
    |
    2.5.2008 08:49:53
hæ hæ kæra fjölskylda, svaka fallegir drengir hér á ferð!!! ;) algjörir sjarmörar;) gaman að sjá nýjar myndir líka... já og til hamingju með skínina. kannski sjáumst við e-ð meira þegar við verðum flutt á klakann;) kærar kveðjur frá okkur í dk
Kata, Ævar Freyr og Anton Logi | 0 | 30.4.2008 17:26:17 #