CHIHUAHUA eru taldir að uppruna frá Mexico enda heitið Chihuahua eftir borg þar í landi. Við erum minnsta hundategund í heimi, erum bæði snögghærðir og síðhærðir.
Amor fæddist í Hveragerði þann 25 júní 2002, var þá rétt um 100 gr en er núna fullvaxinn u.þ.b 2,2 kg. Mamma Amors heitir Birta og býr í Hveragerði hjá Sillu sinni og pabbi hans heitir Mio og hann á heima uppi í Mosfellsdal hjá Ástu Dóru í hundaskólanum Gallery voff.
Ugla Dís fæddist í Reykjavík þann 12 september 2004. Hún var við fæðingu 120 gr. Mamma Uglu Dísar heitir Jasmin og hún býr í Rvk. En pabbi hennar er Misha og er hann rússneskur og finnskur meistari, svakalega flottur. Misha býr í Keflavík.
Þið getið séð myndir af foreldrum okkar í myndaalbuminu undir aðrir hundar (-:
Við eigum núna heima í Keflavík hjá fjölskyldunni okkar sem þykir óendanlega vænt um okkur og við elskum þau líka.
|