Halló og velkomin á heimasíðuna mína:)
Ég heiti Natalía Nótt.


Um mig: Ég fæddist 8.október 2003 á Akureyri. Ég var 14 merkur (3585gr.) og 53 cm, það er ekki nema 102 cm minna en mamma mín er:). Mamma mín heitir Þórunn Ágústa Garðarsdóttir og pabbi minn heitir Helgi Gunnlaugsson. Ég var með alveg ljóst hár en það datt svo af, það er nú komið aftur. Ég var með blá augu alveg eins og amma Gunna:) Það þurfti að snúa mér við í mallanum þremur vikum áður en ég fæddist af því að ég var svo mikill kjáni og sat alltaf.
LYKILORÐIÐ er nafnið á leikskólanum mínum með stórum staf fremst;)




Annað:

Vogin
23. september - 23. október

Börn í vogarmerkinu eru oft glaðleg og broshýr og eru oftar en ekki börnin sem fá bros frá hinum sem bíða á biðstofu læknisins. Þau eru sjarmerandi og heilla aðra upp úr skónum. Félagslyndi einkennir vogina frá fyrstu tíð og litla vogin elskar að hafa margt fólk í kringum sig. Vogarbarn sem þarf að búa við einangrun getur orðið geðstirt, innhverft og óöruggt en þegar allt leikur í lyndi er það opið og hresst. Vogin á mjög erfitt með að gera upp hug sinn og virðist oft hafa lítinn viljastyrk. Þess vegna er mikilvægt að foreldrar hjálpi voginni að rækta með sér sjálfstæði og ákveðni meðal annars með því að fela henni ákveðin verkefni sem reyna á ákvarðanatöku. Líklegt er að Vogin spyrji álits og því er hægt að svara með því að spyrja: "Hvað finnst þér?" Síðan þarf að gefa henni næði til að vega og meta hlutina áður en hún tekur ákvörðun. Vogin er listræn í eðli sínu og mikilvægt að hlúa að þeim eiginleikum og skapa henni aðstöðu til að þroska listræna hæfileika sína.




Þú ert gestur nr. 60563