Velkomin á heimasíðuna hjá okkur systrum Sunnu Líf og Söndru Dís


Um Okkur:

Sunna Líf fæddist 25 júní árið 1999 kl 06:03. Hún var pínulítil tæpar 12 merkur og 48 cm.
Sandra Dís fæddist 21 apríl árið 2003 kl 22:20 hún var ekki heldur neitt voða stór eða 13 merkur og 50 cm.
Við systurnar fluttum aftur til Íslands í haust og erum rosa glaðar með nýja skólann og leikskólann okkar :-) .




Annað:











Dóttir mín

Elsku yndislega dóttir mín.

Ég veit að ég á ekki alltaf auðvelt með að tjá tilfinningar mínar.

En nú langar mig til að segja þér hvað ég elska þig mikið.

Mig langar til að segja þér hug minn.

Ég veit ekki hvar ég væri ef ég hefði ekki fengið þig inn í líf mitt.

Þú ert mér allt.

Þú ert súrefnið mitt, andardrátturinn minn og löngun mín til að lifa.

Hamingjan mín hófst með komu þinni í þennan heim.

Í dag horfi ég á þig og er hissa á því hvað þú ert raunveruleg.

Ég er svo ótrúlega heppin að hafa fengið þig inn í líf mitt, og að fá að hafa þig mér við hlið í gegnum lífið.

Þú ert gullið mitt, fjársjóðurinn minn.

Ég hef reynt að læra sem mest af þér í gegnum tíðina.

Ég reyni að meta þig að verðleikum.

Þú hefur kennt mér svo margt um lífið, sem ég annars hefði farið á mis við.

Hvar væri ég án þín?

Ég elska þig elsku dóttir mín, nú og að eilífu.












Krabbar eru oft búlduleitir og fölir, eins og plánetan þeirra, Tunglið. Þeir reyna að klæða sig eins og tíðkast í umhverfi þeirra, en fylgjast samt illa með tískunni og velja oft saman óheppilegar flíkur eða föt sem komin eru úr tísku. Krabbinn er trygglyndur, tilfinninganæmur og viðkvæmur og vill vernda aðra og hlú að þeim. Krabbar eru miklir fjölskyldumenn og líður yfirleitt best heima, innan um ættingja og nána vini. Þeir eru fúsir að hlusta á vandamál annarra, gefa góð ráð og miðla af reynslu sinni, en þeir eru líka auðsærðir og spéhræddir og gleyma aldrei því sem gert er á hluta þeirra. Krabbinn býr yfir miklu innsæi og djúpum tilfinningum en honum hættir til tortryggni og drottnunargirni og öðrum finnst oft að hann sé að kæfa þá með tilfinningum. Viðskipti eiga vel við Krabbann, einkum lítil fyrirtæki og þá gjarnan fjölskyldufyrirtæki, en Krabbinn er líka hrifinn af góðum mat og matargerð, svo honum lætur ágætlega að reka veitingahús. Kröbbum hættir til að hafa óþarfa áhyggjur af öllu milli himins og jarðar, og þeir þurfa að læra að gera greinarmun á því og eðlilegri varkárni, svo lífið verði þeim ekki of þungbært














Foreldrar barns í nautsmerkinu þurfa að vera næm á mikla þörf þess fyrir snertingu. Þetta eru bestu knúsarar í heimi. Besta aðferðin til að ná til lítilla nauta er að höfða til skynsemi þeirra og tilfinninga. ?Elsku litla stelpan mín, viltu gera þetta fyrir mömmu?? Fá naut standast nefnilega blíðu. Þægindi er eitthvað sem nautið vill. Notalegt herbergi þar sem hvorki er of heitt eða kalt, bragðgóður matur, falleg leikföng er eitthvað sem fellur nautinu í geð. Börn í nautsmerkinu eru frekar róleg og friðsöm og yfirleitt fer kannski lítið fyrir þeim. Það borgar sig ekki að reka á eftir þeim með hluti því þau vinna á sínum eigin hraða, sem er annar en gengur og gerist. Nautið er með báða fætur á jörðinni og vill vera öruggt um að hvert skref sem stigið er sé rétta skrefið. Ef rekið er á eftir því verður það óöruggt. Það borgar sig ekki til að fá litla bolann til að hlýða með skipunum eða skömmum því nautin eru þrjósk með eindæmum og sá eiginleiki sýnir sig vel þegar slíkt er reynt. Það getur verið erfitt að eiga við nautsbarnið þegar það hefur bitið eitthvað í sig og heimtar eitthvað sem gengur þvert á vilja foreldranna. Best er þá að setjast niður með bola litla og reyna að útskýra af hverju betra sé að gera þetta eða hitt, þ.e. höfða til skynseminnar. Rökin þurfa að vera skynsamleg og nautið þarf að fá tíma til að hugsa málið. Ef nautið er af rólegu gerðinni er vissara að ræða reglulega við það og fá það til að tjá sig og vinna þannig hægt og sígandi gegn feimni þess og hlédrægni. Naut þarfnast þess að vera í öruggu umhverfi og vita við hverju er að búast þannig að mikilvægt er að foreldrar séu sjálfum sér samkvæmir gagnvart því.










ELSKU MAMMA OG PABBI


Ég er með svo litlar hendur, ég ætlaði ekki að hellaniður
mjólkinni

Fæturnir á mér eru svo stuttir, farðu hægar svo að ég geti
fylgt þér eftir

Ekki slá á hendurnar á mér þegar ég snerti eitthvað
fallegt, ég skil það ekki

Horfðu á mig þegar ég tala við þig, þá veit ég að þú ert að
hlusta

Ég hef viðkvæmar tilfinningar. Ekki vera alltaf að skamma
mig, leyfðu mér að gera mistök án þess að mér finnist ég
vera vitlaus

Ekki búast við að myndin sem ég teikna eða rúmið sem ég
bý um verði fullkomið. Elskaðu mig bara fyrir að reyna

Mundu að ég er bara barn, en ekki fullorðin vera. Stundum
skil ég ekki það sem þú segir

Ég elska þig svo mikið. Elskaðu mig bara fyrir að vera ég,
ekki fyrir það sem ég geri.




















MAMMA ER KONAN:

...Sem kemur manni í heiminn með mikilli fyrirhöfn
fæðir mann og klæðir og veitir manni alla þá hlýju og
ástúð sem lítið barn þarf á að halda.

Þegar maður eldist og ætti kannski að geta hugsað
meira um sig sjálfur, eins og td. að vera í hreinum
fötum og laga til í herberginu sínu leyfir mamma
manni það ekki því hún er vön að hugsa
svo vel um barnið sitt.

Mamma er alltaf til staðar með
útrétta hjálparhönd þegar á þarf að halda,
þerrar tárin þegar það er leiðinlegt og
gleðst með manni þegar það er gaman að vera til.

MAMMMA ER BESTA KONA Í HEIMI!








PABBI ER MAÐURINN:

...Sem verður svo montin þegar maður fæðist að
það mætti halda að það hafi ekki fæðst barn áður

En það tekur hann bara nokkra daga
að komast niður á jörðina aftur

Honum finnst skrítið að lítið barn skuli ekki getað
sofið alla nóttina og kúkað í klósett
eins og annað fólk.

Samt veit hann allt! Svo þegar maður verður
aðeins eldri og það er hægt að fara að leika
við mann og kenna manni ýmislegt
finnst honum rosa gaman.

Pabbi er alltaf til staðar með styrka hönd
þegar á þarf að halda.

PABBI ER BESTI MAÐUR Í HEIMI!






Til þín
Áður en þú varst til þráðum við þig.
Áður en þú komst í heiminn elskuðum við þig.
Áður en þú hafðir lifað eina stund hefðum við fúslega dáið
fyrir þig.
Þú ert kraftaverk lífsins
Takk fyrir að vera til










Ungbarn er yfirlýsing
Guðs um að honum
finnst að lífið eigi
að halda áfram















Hjördís Jenný

Jasmín Sara

Gulli Rafn

Gylfi Þór

Bjarki Freyr

Ágústa, Íris og Adam

Atli Fannar, Styrmir og Ragnar

Ólafur Þór og Una Rós

Andri Dagur og Katrín Sara

Sunneva

Andri Franz og Lena Mizt

Logi Freyr og Jana Lind

Nóel Atli































Þú ert gestur nr. 14681