![]() |
| Ég heiti Vala Marie Unnarsdóttir |
|
|
Um mig:
Hæ hæ, ég heiti Vala Marie og foreldrar mínir eru Unnar Örn og Sunna Elín. Ég kom í heiminn þann 31.des 2003 klukkan 14:48. Ég var tæpar 14 merkur og 51cm. Eitt af því fyrsta sem mamma og pabbi tóku eftir var að ég er með mikið og fallegt dökkt hár. Í dag er ég 7 ára prakkari, ég bý hjá mömmu minni, Gumma og Ester Gyðu litlu systur í Hafnarfirði og við eigum kött sem heitir Breki. Ég bý líka hjá pabba mínum, Eyrúnu og hundinum mínum honum Ringó í Breiðholtinu. |
|
|
Yndisleg og öllum kær Vala Marie Komin eins og vorsins blær Vala Marie að hugga,gleðja og hressa lund Vala Marie heillastjarna á óskastund Vala Marie Gunnar Guðjónsson, langafi
Vinnan bíður á meðan þú sýnir barninu regbogann, en regnboginn mun ekki bíða eftir að þú ert búin að vinna. Systurnar Vala Marie og Ester Gyða Aþena Ósk og Aron Ingi Einar Aron María Draumey Kjærnested Kjartan Freyr og Baltasar Þór Gabríella Kamí og Anika Rós Bríet Ósk og Helgi Sigurjón Yrja Gló og Ylfa Rán
STEINGEITIN 22. Desember-19. Janúar Steingeitin er alvarlegasta stjörnumerkið og oft er sagt að hún fæðist gömul og verði yngri eftir því sem árin færist yfir. Steingeitin er vel skipulögð og er ung að árum farin að taka þátt í rekstri heimilisins. Hún á stundum erfitt með að hafa gaman af lífinu og ekki er ólíklegt að barnið þitt velji frekar að raða fötunum sínum í skápinn en að fara út að leika. Mikilvægt er að foreldrar kenni börnum sínum að það er í lagi að slaka á og leika sér og að fullkomnun er ekki einungis ómöguleg heldur einnig mjög ópraktísk. Steingeitin er haldin fullkomnunaráráttu og óttast fátt meira en að missa sjálfstjórn og þar með tök á tilverunni. Hún verður mjög óörugg ef hún hefur ekki gamalgrónar reglur og hefðir til að styðjast við og ef þær eru ekki til staðar er hún fljót að búa til reglur sjálf. Börn í steingeitinni eru mjög athugul, skynsöm og metnaðargjörn og dæmigerðar geitur vita allra merkja fyrst hvað þær ætla sér í lífinu. Mikilvægt er að kenna steingeitinni að tjá tilfinningar sínar, slaka á og sjá bjartari hliðar tilverunnar og ekki síst að ýta undir skopskyn hennar. Vala er upphaflega stytting nafna sem byrja á "Val-", þýðir einnig lítill steinn, (sbr. steinvala) og gæti verið tengt spákonum(?)sbr. völuspá. Marie er komið úr biblíunni og hefur verið talið merkja hin fagra.
Kærleikur er að lifa sáttur við sjálfan sig og aðra |
| Þú ert gestur nr. 65697 |