![]() |
| Ég heiti Ágústa Arís Aradóttir. |
|
Um mig
Hæ hæ ég er komin !! Ég kom í heiminn 4. Júlí kl. 02:50
Ég er fallegasta stelpa í heimi, það segir allavega mamma. Ég var 6 merkur og 40 cm, algjör ponsa. Mamma mín heitir Sísí og pabbi minn heitir Ari og svo á ég besta stóra bróðir í heimi sem heitir Ketil. Þeir pabbi og Ketil búa í Noregi en ég er nýflutt til Íslands og bý þar með mömmu og Hilmari kærastanum hennar.
Nafnið Ágústa er myndað af karlmannsnafninu Ágúst sem er stytting á latneska orðinu "augustus" sem merkir mikill/stórfenglegur Nafnið Aris er dregið af nafninu Ares sem kemur úr grískri goðafræði. Ares (Aris á nútíma grísku) var stríðsguð sonur Zeus og Heru og bróðir Athenu. Móðuramma mín og afi heita Ágústa Hafsteinsdóttir og Ástþór Jónsson og þau búa í Vestmannaeyjum, ég er fyrsta barnabarn þeirra. Mamma á 3 systur þær heita Ásta Steinunn, Hafdís og Arna Hlín. Hafdís er svo með litla frænda minn í maganum og við bíður spennt eftir að hann komi í heiminn :) Svo er ég svo hepping að eiga 2 langafa og eina langömmu. Foreldrar Ömmu heita Íris Sigurðadóttir og Hafsteinn Ágústson (Happi í Varmahlíð). Pabbi afa heitir Jón Ólafur Kjartanson og mamma hans afa hér Sigríður Angantýrsdóttir. Föðuramma mín og afi heita Karlý Fríða Zóphaníasardóttir og Guðmundur Sverrir Jósefson og þau búa í Reykavík. Systur hans pabba heita Margrét Ýrr, hún á börnin Elvu Karlý, Sverrir Freyr og Guðjón Dag og Þorgerður Eyr og hún á börnin Ask Þór, Mána Snæ og Emblu Sól. Þannig að ég á helling af frænkum og frændum og ömmum og öfum :) Ást Sólin brennir nóttina og nóttin slökkvir dag þú ert athvarf mitt fyrir og eftir sólarlag þú ert yndi mitt áður og eftir að dagur rís svölun í sumarsins eldi og sólbragð af vetrarins ís svali á sumardögum og sólskin um vetrarnótt þögn í seiðandi salli og söngur ef allt er hljótt söngur í þöglum skógum og þögn í borganna dyn þú gafst mér jörðina og grasið og Guð á himnum að vild. Þú gafst mér skýin og fjöllin og Guð, til að styrkja mig Ég fann ei hvað lífið var fagurt fyrr en ég elskaði þig. Ég fæddist til ljóssins og lífsins, er lærði ég að unna þér. Ást mín fær ekki fölnað, fyrr en með sjálfri mér. Aldir og andartök hrynja með undursamlegum nið það er ekkert í heiminum öllum nema eilífðin, Guð og við. Þú gafst mér skýin og fjöllin og Guð, til að styrkja mig Ég fann ei hvað lífið var fagurt fyrr en ég elskaði þig. Ég fæddist til ljóssins og lífsins, er lærði ég að unna þér. Ást mín fær ekki fölnað, fyrr en með sjálfri mér. Þú gafst mér skýin og fjöllin og Guð, til að styrkja mig Ég fann ei hvað lífið var fagurt fyrr en ég elskaði þig. Ég fæddist til ljóssins og lífsins, er lærði ég að unna þér. Ást mín fær ekki fölnað, fyrr en með sjálfri mér. |
|
|
|
i carry your heart with me i carry your heart with me(i carry it in my heart)i am never without it(anywhere i go you go,my dear; and whatever is done by only me is your doing,my darling) i fear no fate(for you are my fate,my sweet)i want no world(for beautiful you are my world,my true) and it's you are whatever a moon has always meant and whatever a sun will always sing is you here is the deepest secret nobody knows (here is the root of the root and the bud of the bud and the sky of the sky of a tree called life;which grows higher than the soul can hope or mind can hide) and this is the wonder that's keeping the stars apart i carry your heart(i carry it in my heart) e.e. cummings
Krabbinn 22 júní - 22 júlí Börn í krabbamerkinu eru oft mjög viðkvæm og foreldrar mega búast við að mörg tár muni falla í bernsku. Þau hafa því ríka þörf fyrir hlýju og snertingu auk þess sem öryggi skiptir þau gríðarlega miklu máli. Líf þeirra þarf að vera í föstum skorðum og umhverfið gott. Foreldrar barna í krabbamerkinu ættu ekki að rífast mikið í þeirra návist því þau taka allt mjög nærri sér og eru oft lengi að ná sér á strik eftir áföll. Krabbar byrgja oft tilfinningarnar inni og því er mikilvægt að tala við þau um tilfinningar. Dæmigert krabbabarn man alla tíð eftir því þegar það týndist í Hagkaup í tvær mínútur og tekur því sem höfnun. Krabbinn er oft mislyndur og misjafn í skapi, ýmist hress og jákvæður eða þungur og dregur sig inn í skel. Hann er oft rólegur og hlédrægur en getur gosið upp annað slagið vegna þess hve viðkvæmur hann er. Það þarf að umgangast hann af nærgætni og það er ekki sama hvað er sagt við hann og hvernig. Hann tekur margt nærri sér og er móðgunargjarn. Hann er gjarn á að geyma gremjuna innra með sér og láta á engu bera á yfirborðinu. Foreldrar þurfa því að hvetja litla krabbann til að segja frá því sem honum mislíkar. Mestu skiptir að skapa krabbanum öruggt heimilislíf, veita honum hlýju og gefa honum kost á að tjá tilfinningar sínar,t.d með því að leyfa honum að eiga gæludýr.
Ég er með svo litlar hendur,ég ætlaði ekki að hella niður mjólkinni. Fæturnir á mér eru svo stuttir,farðu hægar svo ég geti fylgt þér. Ekki slá á hendurnar mínar þegar ég snerti eitthvað fallegt,ég skil það ekki. Horfðu á mig þegar ég er að tala við þig,þá veit ég að þú ert að hlusta. Ég hef viðkvæmar tilfinningar,ekki vera alltaf að skamma mig. Leyfðu mér að gera eitthvað vitlaust án þess að þér finnist ég vitlaus. Ekki búast við því að myndin sem ég teikna eða rúmið sem ég bý um sé fullkomið. Elskaðu mig bara fyrir að reyna.
|
| Þú ert gestur nr. 35712 |