Nýjar myndir 28.desember.
Júlía Björk fæddist 24.október og er fullkomin eins og yndislegu systkini hennar!


Um mig:
Viktoría Ósk kom í heiminn þ. 23.febr.2004 klukkan 9:12 á dönskum staðartíma. Ég var 52cm löng og vó 3190gr. Ég er með svolítið krullað hár, og það er sko rosalega flott. Ég er með dökkblá augu eins og flest börn eru með þegar þau fæðast, sagði ljósmóðirin allavega.Foreldrar mínir eru Víóletta Ósk og Sverrir Örn við búum í Danmörku.

Kristófer Örn fæddist 20.maí 2008 klukkan 12:45 á Skejby, alveg eins og stóra systir. Ég var 56 cm og 4400 gr. Ég er með alveg svart hár og mikið. Ég er með dökkblá augu.

Júlía Björk fæddist 24.október 2010 klukkan 00:40 á Skejby, alveg eins og Viktoría og Kristófer. Ég var 53 cm og 3610 gr. Ég er með alveg svart hár og mikið af því, alger Lafði Lokkaprúð.

Foreldrar okkar eru svo stolt og ánægð með okkur systkinin, enda erum við bara yndisleg!





Annað:
MAMMA ER KONAN



Sem kemur manni i heiminn með mikilli fyrirhöfn

fæðir mann og klæðir og veitir alla þá hlýju og

ástúð sem lítið barn þarf á að halda.



þegar maður eldist og ætti kannski að geta hugsað

meira um sig sjálfur, til dæmis að vera í hreinum

fötum, og laga til í herberginu sínu leyfir mamma

manni það ekki því hún er vön að hugsa svo vel

um barnið sitt.



Mamma er alltaf til staðar með útrétta hjálparhönd

þegar á þarf að halda, þerrar tárin þegar það er leiðinlegt

og gleðst með manni þegar það er gaman að vera til.



MAMMA ER BESTA KONA Í HEIMI











PABBI ER MAÐURINN



Sem verður svo montinn þegar maður fæðist að

það mætti halda það hafi ekki fæðst barn áður.



En það tekur hann bara nokkra daga að komast

niður á jörðina aftur.



Honum finnst skrítið að lítið barn skuli ekki getað

sofið alla nóttina og kúkað í klósettt eins og

annað fólk.



Samt veit hann allt!! svo þegar maður verður

aðeins eldri og það er hægt að fara að leika

við mann og kenna manni ýmislegt finnst

honum rosa gaman.



Pabbi er alltaf til staðar með styrka hönd þegar

á þarf að halda.



PABBI ER BESTI MAÐUR Í HEIMI

Þú ert gestur nr. 43306