Við erum systkinin Þorkell Valur, Guðrún Filippía, tvíburi A og tvíburi B Gíslabörn.

Mamma okkar heitir Hanna Lilja Valsdóttir.
Pabbi okkar heitir Gísli Kr. Björnsson.

Takk fyrir að skoða heimasíðuna okkar og ekki gleyma að kvitta í gestabókina áður en þú ferð!!!



ÞORKELL VALUR:
Ég fæddist inni á skurðstofu á fæðingardeild Lsp- Háskólasjúkrahúsi þann 15. ágúst 2003 klukkan 02:57. Ég var voða lítill, bara 2910 gr og 49,5 cm eða rúmlega 11 merkur. Ég var með voða mikið ljóst hár og blá augu þegar ég kom í heiminn og sjarmeraði alla upp úr skónum. Af því að ég fæddist með keisaraskurði var ég fyrstu klukkutímana uppi á vökudeild til að læknarnir gætu fylgst vel með mér...mamma þurfti líka að jafna sig smá. Svo fékk pabbi að sækja mig og fara með mig til mömmu og við mæðginin vorum í 6 daga á spítalanum áður en við fengum að fara heim í hreiðrið okkar.
Í dag er ég orðin stór og flottur strákur. Ég hef alveg svakalega gaman af því að syngja og spila á gítarinn minn, spila fótbolta, dunda mér í playmo, leika við vini mína og svo finnst mér alveg hámark gleðinnar að fara upp í sveit til Afa og Ömmu.



Þór merkir Þór og Kell = Ketill merkir Cattle á ensku eða naut.

Valur merkir fuglinn Valur.



LJÓNIÐ
23. júlí - 22. ágúst

Konungurinn í frumskóginum er mættur og vill einmitt vera meðhöndlaður í samræmi við tign sína. Litla ljónið þarfnast athygli (við erum að tala um að vera alltaf miðdepill athyglinnar!) og vill láta taka eftir sér og láta dást að sér. Það getur verið mikil vinna að eiga börn í ljónsmerkinu. Börnin eru oft hávaðasöm og mjög opin í tjáningu. Ef barnið er ánægt er það yndislegasta og fallegasta barn í heimi en ef það er óánægt öskrar það og lætur öllum illum látum. Heimilislífið kemur til með að snúast mikið í kringum kraftmikinn ljónsungann sem getur verið mjög stjórnsamur og frekur. Það þýðir ekki að segja ljóninu að læðast meðfram veggjum því slíkt er andstætt eðli þess og er ekki til annars en að brjóta það niður. Vingjarnleg ákveðni er það sem dugar best. Ljónið er merki stjórnunar og foreldrar þurfa að virða þörf þess fyrir persónulegt sjálfstæði og því er gott að fela því snemma ábyrgð. Mikilvægt er að kenna því að taka tillit til annarra. Það þarf að taka tillit til þess í uppeldi að ljónið er einstakt og veita því athygli, hvatningu og ekki síst að hrósa því þegar það hefur gert eitthvað jákvætt.




GUÐRÚN FILIPPÍA:
Ég fæddist inni á skurðstofu á fæðingardeild Lsp- Háskólasjúkrahúsi þann 18. apríl 2007 kl. 11:20. Ég var 4170 gr og 55 cm eða 16,5 merkur. Ég fæddist með mikið liðað og ljóst (grænmarínerað) hár og er auðvitað eitt af fjórum fallegustu börnum sem hafa litið dagsins ljós í heiminum. Pabbi fékk mig strax í hendurnar og svo fórum við öll saman á vöknun meðan að mamma var að jafna sig. Við mamma og pabbi vorum í tvær nætur á spítalanum í góðu yfirlæti en þar sem okkur leið svo vel þá fengum við að fara extra snemma heim í rólegheitin. Ég er mikill fjörkálfur með sterkar skoðanir á flestu. Mér finnst skemmtilegast að dansa, syngja, lita, lesa bækur, dúkkó með vinkonum og prinsessuleikur.



Guðrún merkir = rún goðanna.

Filippía merkir = tekið af karlmannsnafninu Filip



HRÚTURINN

21. mars – 19. apríl

Rambó leikfélaganna er mættur á svæðið. Með barn í hrútsmerkinu mega foreldrar búast við miklu fjöri á heimilinu því það ríkir engin lognmolla í kringum hrútinn. Ekki ætlast til þess að barnið sitji kyrrt með hringlu. Þetta er barnið sem veifar þér ofan af hæsta tré, alls óhrætt við að taka áhættu. Hrútsbarnið er allt annað en hljóðlátt og lætur oft vel í sér heyra. Sem eldsmerki er hrúturinn orkumikill og hefur ávallt eitthvað fyrir stafni. Verður erfitt að ráða við litla hrúta? Það er líklegra en ekki. Foreldrar ættu eins fljótt og hægt er að kenna þessu barni að vinna með öðrum börnum. Að deila einhverju með öðrum er eitthvað sem kemur ekki af sjálfu sér – það þarf að kenna litlum hrútum. Þeir eru einnig ákaflega tapsárir. Þeir þrá athygli og eiga mjög auðvelt með að verða sér úti um hana með ýmsum aðferðum. Hrútar eru fæddir leiðtogar og ef þú ætlar að hafa eitthvað að segja er betra að láta þá vita með afgerandi hætti hver er við stjórnvölinn því annars er eins líklegt að stjórnin verði tekin úr þínum höndum. Lítill hrútur er oft eins og ótemja, lítið gefinn fyrir að hlýða reglum og vera þægur nema þegar honum hentar. Vegna þess hve hann er orkumikill er nauðsynlegt að hann fái mikla hreyfingu. Hann verður að fá að hlaupa um og róta til heima hjá sér. Ef hann fær ekki útrás fyrir orkuna verður hann pirraður og ergilegur. Honum líður best í lifandi og fjörugu umhverfi. Þar sem fljótfærni og óþolinmæði eru meðal veikleika hans þarf að kenna honum að hægja á sér og telja upp að tíu áður en hann rýkur af stað. Einnig þarf að venja hann á að ljúka því sem hann byrjar á.

Endilega hafið samband ef að þið viljið fá aðgang að síðunni okkar.
PLEASE CONTACT US IF YOU WANT THE PASSWORD FOR THIS WEBSITE AT: hannalilja@internet.is







Þú ert gestur nr. 25338