KÆRU FORELDRAR.
EKKI TELJA EFTIR ÞESSA FÁU MÁNUÐI SEM ÉG ÞARFNAST ÓSKIPTRAR ATHYGLI YKKAR.
ÉG HEF MEIRA AÐ GERA EN NOKKRU SINNI VIÐ AÐ VAXA OG BÚA MIG UNDIR FRAMTÍÐINA.
EN ÉG SÝNI YKKUR ÞAKKLÆTI MITT.
Á HVERJUM DEGI FÆRI ÉG YKKUR EITTHVAÐ NÝTT, EINHVERJA DÁSEMD, EINHVER MERKI UM FRAMFÖR.
ÉG ER SMÁBARN SVO SKAMMAN TÍMA.
NÝTIÐ HANN EINS VEL OG ÉG.
ÉG STÆKKA OG HVERF Á BRAUT ÁÐUR EN ÞIÐ VITIÐ AF.
Ég brosi af því að ég er mamma þín, ég hlæ vegna þess að það er ekkert sem þú getur gert við því.
ÞÚ ERT LÍKLEGA MÓÐIR
...ef þú felur þig inni á baðherbergi til að geta verið ein smástund.
...ef þú hefur verið í trimmgalla alla helgina.
...ef fæturnir á þér festast í klístrinu á eldhúsgólfinu
...og þér er alveg sama.
...ef það er líklegra að þú verðir fyrir eldingu en að þú fáir ótruflaðan 8 tíma svefn.
...ef þú hefur aðeins tíma til að raka annan fótlegginn í einu.
...ef þín skilgreining á góðum degi er að halda fötunum frá sulli og óhreinindum.
...ef þú þværð barninu í framan með munnvatnsbleyttum þumalfingrinum.
...ef þú gerir ósjálfrátt tvöfaldan hnút á allt sem þú hnýtir.
...ef þér finnst góð lyktin af soðnum gulrótum með eplamauki.
...ef þú ert farin að kaupa morgunkorn með sykurpúðum.
...ef þér tekst að setja ólíkar tegundir matvæla á disk, án þess að nokkrar þeirra snertist.
...ef þú vonar að tómatsósa sé grænmeti, af því að það er það eina sem barnið borðar.
...ef þú byrjar alltaf á að skera matinn þinn í litla bita og leyfir öðrum að borða af disknum þínum.
...ef þú segir setningar eins og:
"ekki setja pastað í nefið á þér...!""
...ef þú telur skrautsykursmolana á hverjum kökubita svo allir fái jafnt.
...ef þú velur veitingastaði eftir gæðum barnamatseðilsins og dótinu sem fylgir með.
...ef þú ferð á fætur kl 5:30 á hverjum degi, hefur ekki tíma til að borða (hvað þá að drekka eða fara á klósettið) og samt tekst þér að þyngjast um 5 kíló!
...ef símtölin þín eru sífellt slitin í sundur af setningum eins og:
"Ekki skrifa á vegginn!"
"Ekki nota köttinn fyrir fjall!"
"Nei, skrifborðið á ekki að vera í sófanum!"
"Hættu að toga í hárið á systur þinni"
"Bíddu aðeins á meðan ég næ í þráðlausa símann, ég þarf að skipta á barninu/gefa barninu að borða/ finna barnið!!"
...ef þú nærð að hlaupa í gegnum alla íbúðina (og um leið setja barnið í stólinn sinn, hoppa yfir tvö öryggishlið, velta þremur taukörfum, hrasa um leikfang, hundinn og bolta á ganginum) og svara símanum áður en kviknar á símsvaranum. Um leið hefur þú öðlast réttindi til þáttöku í fjölþraut og átt góða möguleika á að vinna gullið!
..ef þú hefur litlar áhyggjur af bauki og bramli, en fyllist skelfingu ef allt er hljótt.
...ef þú heyrir rödd móður þinnar þegar þú segir: "Nei, ekki þegar þú ert í sparifötunum!"
...ef þú ert hætt að gagnrýna uppeldi móður þinnar á þér og syskinum þínum.
...ef þú ert farin að raula Disney-lög yfir uppvaskinu.
...ef þú færð barnapíu til að komast loksins út með manninum þínum og eyðir svo hálfu kvöldinu í að athuga hvernig gengur heima.
...ef þú segir á hverjum degi: "Ég er ekki rétta manneskjan í þetta starf" en myndir samt ekki vilja skipta um hlutverk við nokkurn annan!
Gömul Þjóðsaga
Gömul þjóðsaga segir frá barni sem var við það að fæðast.
Barnið snýr sér að Guði og segir:
Mér var sagt að ég verði sendur niður á jörðina á morgun, en hvernig get ég lifað eins lítill og ósjálfbjarga og ég er.
Ég hef valið engil fyrir þig úr hópi engla og hann bíður eftir þér. Hann mun sjá um þig.
En segðu mér, hérna á himninum geri ég ekkert annað en að syngja og brosa og það er nóg til að vera hamingjusamur.
Þessi engill kemur til með að syngja fyrir þig, hann brosir til þín alla daga og þú verður umlukinn ást hans og hamingju.
En hvernig get ég skilið þegar fólkið talar við mig þar sem ég þekki ekki tungumálið sem mennirnir tala.
Engillinn þinn segir falleg orð við þig, fallegustu orð sem þú hefur nokkurn tímann heyrt og með mikilli þolinmæði kennir hann þér að tala.
En hvað geri ég ef ég vil tala við þig?
Þá setur engillinn þinn hendurnar þínar saman og kennir þér að biðja.
En ég hef heyrt að á jörðinni séu til vondir menn. Hver getur varið mig?
Engillinn þinn mun verja þig, þó það kosti hann lífið.
En ég verð alltaf sorgmæddur því ég sé þig ekki oftar. Engillinn þinn á eftir að segja þér frá mér og vísa þér veginn í áttina til mín, en þó mun ég alltaf vera við hlið þín.
Á þessu andartaki færist ró yfir himininn og guðdómlegar raddir heyrðust og barnið sagði:
En kæri herra, þar sem ég er að fara segðu mér, hvað heitir engillinn minn. Nafn hans skiptir ekki máli, þú kallar hann bara mömmu. Og ef þú ert heppinn þá áttu annan engil og hann kallaru pabba.
Það sem börnin kenna okkur...
Það er skemmtilegra að lita út fyrir línurnar...
Ef þú ætlar að lita á vegginn í stofunni,
þá er betra að gera það bak við sófann...
Það er ekki satt að Súpermann hafi alltaf
borðað grænmeti þegar hann var lítill...
Ef hundinum þínum líkar ekki við fólk,
þá ætti þér ekki að líka það heldur...
Jafnvel þó þú hafir dorgað á bryggjunni í 3 tíma
og ekki fengið neitt nema þara og sólbruna á nefið,
þá hefur þú það a.m.k. betra en ormurinn á hinum endanum...
Stundum þarftu að taka prófið
áður en þú lýkur við að læra...
Ef þig langar í kettling,
þá skaltu byrja á að biðja um hest...
Það er engin skynsamleg ástæða
fyrir því að föt þurfi að passa saman...
Ef hesturinn sem þú ert að teikna líkist meira hundi,
þá skaltu breyta honum í hund...
Taktu frá pláss í röðinni handa vinum þínum...
Bankaðu bara áfram...og áfram...
þar til einhver kemur til dyra...
Að búa um rúmið sitt er mikil tímasóun...
Búðu reglurnar til jafnóðum...
Það skiptir engu máli hver byrjaði...
Haltu fast í það sem þú vilt...
Spurðu "af hverju?" alveg þangað
til þú færð svar sem þú skilur...
EINKARÉTTUR SMÁBARNA
Ef mér finnst það flott, þá á ég það
Ef ég held á því, þá á ég það
Ef ég næ því frá þér, þá á ég það
Ef ég var með það rétt áðan, þá á ég það
Ef ég á það, má það á engan hátt líta út fyrir að vera þitt
Ef ég er að byggja eitthvað, þá á ég alla kubbana
EF það líkist dótinu mínu, þá á ég það
Elsku mamma og pabbi!
Ég er með svo litlar hendur,
ég ætlaði ekki að hella niður mjólkinni.
Fæturnir á mér eru svo stuttir,
farðu hægar,svo að ég geti fylgt þér eftir.
Ekki slá á hendurnar á mér þegar ég snerti eitthvað fallegt,
ég skil það ekki.
Horfu á mig þegar ég tala við þig,
þá veit ég að þú ert að hlusta.
Ég hef viðkvæmar tilfinningar.
Ekki vera alltaf að skamma mig,leyfðu mér að gera mistök án þess að mér finnist ég vera vitlaus.
Ekki búast við því að myndin sem ég er að teikna eða
rúmið sem að ég bý um verði fullkomið.
Elskaðu mig bara fyrir að reyna.
Munda að ég er bara barn,en ekki fullorðin vera.
Stundum skil ég ekki það sem þú segir.
Ég elska þig svo mikið.
Elskaðu mig bara fyrir að vera ég,
ekki fyrir það sem ég geri.!
Barn í krabbamerki
Barn í krabbamerkinu er feimið og viðkvæmtað eðlisfari og vill frekar leika inni í sínu herbergi heldur en að fara út og takast á við hina ?ógnvænlegu? veröld. Þessi börn eru einnig tilfinninganæm og bresta auðveldlega í grát ef hlutirnir ganga ekki eins og þau vilja eða ef gengur á einhverju í fjölskyldunni. Þessi börn vilja ró og næði í kringum sig. Þar sem barn í krabbanum heldur sig nálægt heimili sínu má búast við að það hangi svolítið í pilsfaldinum hjá mömmu fram eftir aldri. Það getur þó verið kostur þar sem krabbinn elskar að hjálpa til. Móðureðli er ríkt í krabbabörnum og þau hugsa vel um yngri systkini sín ef þau eiga yngri systkini. Þetta barn er fædd barnapía og er vanalega með öll börnin í hverfinu í eftirdragi og hefur ofan fyrir þeim með allskyns leikjum. Þetta barn býr yfir frábæru minni og því er nám og próf leikur einn. Krabbinn getur stundum verið erfiður í skapinu og þá er best að leyfa honum að vera í friði. Stundum vorkennir barn í krabbanum sér rosalega og verður jafnvel svolítið latt en það varir yfirleitt stutt. Oftast er voðalega gaman í kringum krabbann. Barn í krabbamerkinu er yfirleitt heimakært og er mikið fyrir fjölskyldulífið og er sá einstaklingur í fjölskyldunni sem finnst skemmtilegast í fjölskylduboðum.