Við búum saman fjölskyldan á Hvanneyri.
Foreldrar okkar eru Atli Arnþórsson og Berglind Sigurðardóttir.
Við systkinin eigum eina hálfsystir sem heitir Hjördís Inga,
hún býr í Hafnarfirði hjá mömmu sinni.
Ekki vera feimin að biðja mömmu um leyniorðið á síðuna;)
OG MUNA AÐ SKRIFA Í GESTABÓKINA
Ísold Freyja fæddist á Sjúkrahúsi Suðurlands 4 september 2004.Fæðingin gekk mjög vel hjá mömmu, Vatnið fór kl 03:00 um nóttina og hún var fædd kl 03:23. Hún vóg 12 merkur og 51 cm.
Flosi Þór fæddist á Sjúkrahúsinu Akranesi 5 nóvember 2006. Fæðingin gekk eins og í sögu. Mamma missti vatnið kl 03:10 og hann var fæddur kl 03:41.Hann vóg 3820 grömm og 53 cm.
Pabbi er maðurinn!
Sem verður svo montinn þegar maður fæðist að það mætti halda það hafi ekki fæðst barn áður en það tekur hann bara nokkra daga að komast niður á jörðina aftur.
Honum finnst skrítið að lítið barn skuli ekki getað sofið alla nóttina og kúkað í klósett eins og annað fólk.
Samt veit hann allt !!
Svo þegar maður verður aðeins eldri og þá er hægt að fara að leika við mann og kenna manni ýmislegt þá finnst honum rosa gaman.
Pabbi er alltaf til staðar með styrka hönd þegar á þarf að halda.
Pabbi er besti maður í heimi.
Mamma er konan!
Sem kemur manni í heiminn með mikilli fyrirhöfn fæðir mann og klæðir og veitir alla þá hlýju og ástúð sem lítið barn þarf á að halda.
Mamma er alltaf til staðar með útrétta hjálparhönd þegar á þarf að halda.
Þerrar tárin þegar það er leiðinlegt og gleðst með manni þegar það er gaman að vera til.
Mamma er besta kona í heimi.
Ísold Freyja er Meyja:
Hér er kominn einstaklingur sem vill hafa hlutina í röð og reglu og er mjög íhaldssamur. Litla meyjan er að öllu jöfnu auðveld í umgengni, samviskusöm, dugleg og hlýðin en oft á tíðum alvörugefin. Skynsemi meyjarinnar kemur yfirleitt fljótt í ljós og ef kæruleysi er ríkjandi í kringum hana er ekki ólíklegt að hún fari að siða fólk til í kringum sig og hafa vit fyrir því. Hún byrjar snemma að hjálpa til á heimilinu og er oft mjög handlagin. Hún er yfirleitt ekki mikið gefin fyrir að draga athyglina að sér og lítil meyjubörn geta oft haft ofan af fyrir sér sjálf í langan tíma. Foreldrar þurfa að draga fram hið jákvæða því litlar meyjur hafa oft áhyggjur af því að hlutirnir séu ekki nægilega vel gerðir. Því þarf að hjálpa þeim að sjá bjartari hliðar tilverunnar og læra að trúa á eigin getu. Ekki er verra að ýta undir skopskyn þeirra.
Flosi Þór er spordreki:
Þegar barn í sporðdrekamerkinu lítur dagsins ljós beinast öll augu að því. Og barnið heldur þeirri athygli í langan tíma því það þarf mikla athygli. Foreldrar mega búast við því að heyja valdabaráttu við litla sporðdrekann því hann ætlast oftar en ekki til þess að pabbi og mamma séu boðin og búin þegar hann þarfnast einhvers (ekki 5 mínútum síðar). Þetta er kraftmikið barn og foreldrar þurfa að vera á verði því þau eru snillingar í að fá fólk til að snúast í kringum sig og nota til þess alls kyns kænskubrögð. Uppeldi sporðdrekans getur skipst í tvö horn því þó hann sé ráðríkur, skapstór og þrjóskur getur hann einnig verið blíður og elskulegur. Það borgar sig ekki að skipa honum fyrir eða ætla að ráðskast með hann. Þó slíkar uppeldisaðferðir séu óhentugar fyrir öll börn geta afleiðingarnar orðið sérstaklega slæmar þegar sporðdrekinn á í hlut. Hann getur lokað á umhverfið, dregið sig inn í skel og orðið stífur og jafnvel árásargjarn. Foreldrar þurfa að fylgjast með tilhneigingu litla drekans til að byrgja inni reiði. Best er að fá hann til að opna sig með því að tala við hann í ró og næði. Sporðdrekar eru mjög næmir á umhverfi sitt og því er mikilvægt að umgangast þá með varúð og hreinskilni. Sporðdrekanum er illa við yfirborðsmennsku og fals og missir auðveldlega álit á þeim sem ekki koma heiðarlega fram við hann.
Ísold
Nafn þetta er erlent að uppruna og er myndað af forliðnum "Ís" sem merkir klaki,
- ís og viðliðnum "vald" sem merkir að ráða, - að stjórna.
Freyja
Nafn þetta er skylt gotneska orðinu "frauja" sem merkir herra,
- drottinn og þýðir í þessu tilviki frú.
Flosi
Nafn þetta er líklega tekið af nafnorðinu "flosi"
sem merkir galgopi, - kvennabósi.
Þór
Að baki þessu nafni er þrumuguðinn Þór
úr norrænni goðafræði.
 
 
 
 
|