Arndís Klara Hrannarsdóttir
Heimasætunni lá á


Isn't she lovely
Isn't she wonderfull
Isn't she precious
Less than one minute old
I never thought through love we'd be
Making one as lovely as she
But isn't she lovely made from love

Isn't she pretty
Truly the angel's best
Boy, I'm so happy
We have been heaven blessed
I can't believe what God has done
through us he's given life to one
But isn't she lovely made from love




Litlu ponsunni lá á í þennan heim. Hún átti að koma 21-26 ágúst og vera þá ljón eða meyja en henni fannst betra að vera krabbi svo hún mætti á svæðið 16. júlí 2008.
Mamman missti vatnið aðfaranótt 16. júlí og var svo sett af stað um daginn eftir að verkirnir létu ekki á sér kræla. Frá því að verkirnir loksins komu og þar til daman fæddist liðu rúmur 2 og hálfur tími. Hún fæddist klukkan 17:54 á yndislegum sumardegi, glampandi sól og heitt. Hún var 2700gr og 49cm. Hún grét með tárum og var lögð í fangið á mömmu á meðan pabbi klippti á milli, svo tók barnalæknir hana og hljóp með hana yfir á vökudeild. Þar eyddi hún fyrstu 2 vikum ævinnar en kom svo heim í kotið á afmælisdegi mömmu sinnar 28. júlí 2008.

Tumi fæddist á landspítalanum þann 22. apríl 1994. Hann kom aðeins of snemma í heiminn, en það munaði svo sem ekki miklu. Mamman missti vatnið aðfaranótt 21. apríl en var algerlega verkjalaus í rúman sólahring, en þá var ákveðið að setja hana af stað og frá því að mamman fékk fyrsta smá sting og þar til ég var fæddur liðu aðeins 2 og hálfur tími! Hann fæddist klukkan 10:32 og var 3554gr og 52og1/2 cm. Gargaði hátt og snjallt og fór svo að sofa, er búinn að vera svoleiðis síðan, alveg svakalega rólegur.


Sigurjón Hrafn fæddist líka á landspítalanum, þann 26. janúar 1997. Mamman þurfti að bíða eftir honum, í heila 8 laaaanga daga, loksins fór hún út með bumbuna sína að moka snjó og um nóttina fór loksins allt af stað. Reyndar var fólk ráðlagt að vera ekki á ferð að óþörfu þessa nótt, en hann tók nú lítið mark á því. Fæðingin gekk hratt fyrir sig, sem betur fer því að annars hefði hann verið tekinn með keisara, því að hjartslátturinn hans datt niður því að hann var með tvívafinn naflastreng um hálsinn, svo að þegar mamman var með 9 í útvíkkun var hann bara sóttur með sogklukku! Mamman var reyndar búin að segja lækninum að hann hliti að vera með vafinn naflastreng því að hann fór í kollhnísa þarna inni. Hann var á fullu þá og er það enn!! Hann fæddist 13:36 og var 4120gr og 54cm.

Mamma okkar heitir Margrét Sigurjónsdóttir fædd 71 og pabbi heitir Hrannar Örn Hrannarsson fæddur 67.

ENDILEGA SKRIFIÐ Í GESTABÓKINA OKKAR

Please sign our gestbook (Gestabók), and in our diary (vefdagbók) we will have something in english. Pictures are in "Albúm".





Annað:
HVAÐ ER DRENGUR?



Drengir eru breytilegir að stærð, þyngd og lit. Þeir eru allsstaðar, -uppi á öllu og niðri í öllu, klifrandi, hlaupandi, stökkvandi. Mæður elska þá, eldri systur og bræður þola þá, fullorðnir virða þá ekki viðlits og drottinn verndar þá. Drengur er sannleikur með óhreinindi í andlitinu, viska með tyggigúmmí í hárinu og von framtíðarinnar með ánamaðk í vasanum. Drengur hefur matarlyst eins og hestur, meltingu eins og sverðagleypir, orku eins og vasa-atomssprengja og rödd eins og einræðisherra. Hann er gæddur forvitni kattarins, ímyndunarafli skáldsins, feimni fjólunnar, viðbragðsflýti veiðibogans, funa flugeldisins og þegar hann býr til eitthvað hefur hann fimm þumalfingur á hvorri hendi. Hann kann vel að meta rjómaís, hnífa, sagir, myndabækur, skóga, vatn í sínu náttúrulega umhverfi, stór dýr, pabba, bíla, laugardagsmorgna og brunabíla. Hann er lítið fyrir sunnudagaskóla, barnaskóla, myndalausar bækur, spilatíma, hálsbindi, rakara, stelpur, frakka, fullorðna eða háttatíma. Enginn er eins árrisull og enginn eins síðbúinn til matar og hann. Enginn nema hann getur troðið í einn vasa ryðguðum hníf, hálfétnu epli, þriggja feta snærisspotta, eldspýtustokki, 25 eyringi, vatnsbyssu og dularfullu áhaldi, sem enginn veit hvað er nema hann. Drengur er sannkölluð töfravera, þú getur lokað hann út úr vinnustofunni þinni en þú getur ekki lokað hann út úr hjarta þínu. Þú getur fengið hann burt úr skrifstofunni þinni en þú getur ekki fengið hann burt úr huga þér. Það er eins gott að gefast upp strax -hann er fangavörður þinn, húsbóndi og herra -freknóttur ólátabelgur. En þegar þú kemur heim á kvöldin með allar borgir vona og drauma hrundar, getur hann reist þær aftur með tveimur töfraorðum: "Halló pabbi".


Þú ert gestur nr. 22846