Velkomin á heimasíðuna okkar
Við erum Brynjar Ari og Kolbeinn Nói. Flottustu bræðurnir í öllum heiminum


Um mig:
Brynjar Ari fæddist þann 3. febrúar 2004 á fæðingardeild landspítalans. Mig langaði svolítið að lúlla lengur í bumbunni hennar mömmu en læknirinn potaði í mig og ákvað ég þá að fara að láta sjá mig. Ég og mamma vorum rosalega dugleg og kom ég í heiminn kl. 5:59. Ég var 14,4 merkur og 53 cm. Ég var með mikið svart hár og stór blá augu og leit út alveg eins og pabbi.

Litli bróðir kom í heimin 26. október 2007 á fæðingardeild lansans. Allt gekk rosalega vel. Mamma fór uppá fæðingardeild kl. 9:30 og litli bróðir var kominn fjórum tímum seinna eða kl. 1:30. Hann var 14,5 mörk og 54 cm. Og leit út alveg eins og pabbi...eða eins og ég...híhí...

Mamma segir að við séum lang sætustu strákarnir öllum heiminum og erum við líka alltaf að knúsast svo mikið og kyssast.
Mamma okkar heitir Margrét Jónsdóttir og Pabbi heitir Magnús B. Þórðarson.




Vatnsberi
Þú getur búist við að barn fætt í vatnsbera sé ávallt svolítið úr takt við lífið og tilveruna, en það er stór hluti af sjarma þess. Þú getur reiknað með að þessi einstaklingur taki upp á öllu og komi oft á óvart. Vatnsberinn er frjáls í hugsun og mjög sjálftæður. Að fljúga flugdreka um hávetur er eitthvað sem vatnsberanum gæti dottið í hug og fundist það fullkomlega eðlilegt. Barn fætt í vatnsbera er mjög hugmyndaríkt og skapandi og er sífellt að vinna með tæki og tól og mun sennilega vera nettengt frá unga aldri. Tækninýjungar heilla barn í vatnsbera og þú getur bókað að það getur tengt fyrir þig nýja myndbandstækið. Þessi litli vísindamaður gæti sennilega meira að segja búið til eigið myndbandstæki. Vegna þess hve fróðleiksfús vatnsberinn er ættir þú að ávallt að hafa nægar bækur í kringum hann. Vatnsberanum gengur vel í skóla þó svo námsaðferðir virðist stundum vera óvenjulegar. Ritgerðir skrifaðar í hálfleik í handboltanum er eitthvað sem ekki er óvanalegt að sjá. Sumum finnst barn í vatnsbera vera fáskiptið og utan við sig en það er vegna þess að það hefur sinn háttinn á að gera hlutina. Sannleikurinn er sá að vatnsberanum finnst gaman að vera í kringum önnur börn.

Sporðdreki.
Þegar barn í sporðdrekamerkinu lítur dagsins ljós beinast öll augu að því. Og barnið heldur þeirri athygli í langan tíma því það þarf mikla athygli. Foreldrar mega búast við því að heyja valdabaráttu við litla sporðdrekann því hann ætlast oftar en ekki til þess að pabbi og mamma séu boðin og búin þegar hann þarfnast einhvers (ekki 5 mínútum síðar). Þetta er kraftmikið barn og foreldrar þurfa að vera á verði því þau eru snillingar í að fá fólk til að snúast í kringum sig og nota til þess alls kyns kænskubrögð. Uppeldi sporðdrekans getur skipst í tvö horn því þó hann sé ráðríkur, skapstór og þrjóskur getur hann einnig verið blíður og elskulegur. Það borgar sig ekki að skipa honum fyrir eða ætla að ráðskast með hann. Þó slíkar uppeldisaðferðir séu óhentugar fyrir öll börn geta afleiðingarnar orðið sérstaklega slæmar þegar sporðdrekinn á í hlut. Hann getur lokað á umhverfið, dregið sig inn í skel og orðið stífur og jafnvel árásargjarn. Foreldrar þurfa að fylgjast með tilhneigingu litla drekans til að byrgja inni reiði. Best er að fá hann til að opna sig með því að tala við hann í ró og næði. Sporðdrekar eru mjög næmir á umhverfi sitt og því er mikilvægt að umgangast þá með varúð og hreinskilni. Sporðdrekanum er illa við yfirborðsmennsku og fals og missir auðveldlega álit á þeim sem ekki koma heiðarlega fram við hann.




Endilega skrifið í gestabókina mína. Mér finnst svo rosalega gaman að sjá hver heimsækir mig.
Þú ert gestur nr. 10171