| Elsku fjölskylda og vinir. Verið velkominn á heimasíðu | |
|
|
| Rannveigar Eyju, Ríkarðs Eybergs og Rebekku Eydísar | |
|
Um mig:
Ég, Rannveig Eyja fæddist 5. apríl árið 2000 á Landspítalanum í Reykjavík. Ég var dálítið öfugsnúin og ákvað að sitja í bumbunni hennar mömmu þannig að ákveðið var að taka mömmu í keisara.
Þegar ég fæddist var ég 3640 gr. eða 14. merkur og 50 cm. Ég var með dálítið mikið dökkt hár og blá augu. Ég hef alltaf verið með mikið hár, mömmu minni stundum til mikillar ama. Þann 19. mars 2004 varð Rannveig Eyja stóra systir og er ekkert smá montin af því. |
|
|
|
|
Annað:
Ríkarður Eyberg kom í heiminn þann 19. mars kl. 03.32. Hann lét hafa dálítið fyrir sér og mamma hans var allan 18. mars í fæðingu. En þvílíkur gleðigjafi, það voru stór verðlaunin sem mamma fékk eftir allt puðið og hann er svooo vel þess virði.
Ríkarður Eyberg var 16. merkur og 56 cm við fæðingu. Rebekka Eydís fæddist í Orange County 22. ágúst 2008 kl. 12.44. Hún var 14 merkur og 51 cm og svaka hárprúð lítil dama. Í september 2004 fluttum við litla fjölskyldan til Kirkland sem er rétt fyrir utan Seattle í Ameríku. Pabbi fór að vinna hjá fyrirtæki sem heitir Generation II og mamma var til að byrja með heima og hugsa um krílin sín en fór svo að læra og taka hjúkrunarprófið í USA. Í byrjun mars 2006 fluttum við til Orange County i litið sætt hverfi sem heitir Ladera Ranch. Rannveig Eyja byrjaði i nýjum skóla, Rikarður i nýjum leikskóla og mamma byrjaði ad vinna a Mission Hospital. Okkur liður barasta mjög vel i hitanum og sólinni. Það er ekkert ákveðið hvað við verðum lengi í Ameríkunni, við höfum aldrei haft hugmynd um það!! Við hvetjum vini og vandamenn til þess að heimsækja okkur, það er alltaf gaman að taka á móti gestum. Verið velkomin elsku fjölskylda og vinir. |
|
| Þú ert gestur nr. 25153 |