| Velkomin á síðuna okkar Við erum flutt til Íslands NÝJAR MYNDIR 13.júlí :) |
| Við erum bræðurnir Emil Aron og Ásgeir Elí |
|
|
Smá um mig:
Emil Aron fæddist á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja þann 19.október 2004, klukkan 21:49. Hann var 17 merkur og 54 cm. Emil er rosalega líkur pabba sínum. Hann er voðalega stoltur stóri bróðir og alveg einstaklega góður við litla bróðir sinn.
Hvað merkir nafnið mitt? EMIL Nafn þetta er hingað komið úr dönsku og er þangað komið af latneska ættarheitinu "Aemilius" sem merkir vingjarnlegur. ARON Nafn úr biblíunni. Aron var bróðir Móse og talsmaður hans. Nafnið líklega af hebreskum uppruna "has-on" sem merkir hinn sterki. ÁSGEIR Nafn þetta er myndað af forliðnum "Ás" sem merkir goð úr norrænni goðafræði og viðliðnum "geir" sem merkir spjót. Ásgeir gæti því verið vopn guðanna. ELÍ Nafn þetta kemur úr biblíunni og merkir hinn æðsti, - guð minn. Myndaalbúmið mitt |
|
|
Annað:
Gestabók
PRINSINN MINN?? Elsku yndislegi sonur minn. Ég veit að ég á ekki alltaf auðvelt með að tjá tilfinningar mínar. En nú langar mig til að segja þér hvað ég elska þig mikið. Mig langar til að segja þér hug minn. Ég veit ekki hvar ég væri ef ég hefði ekki fengið þig í líf mitt. Þú ert mér allt. Þú ert súrefni mitt,andadráttur minn og löngun mín til að lifa. Hamingja mín hófst með komu þinni í þennan heim. Í dag horfi ég á þig og er hissa á því hvað þú ert raunverulegur. Ég er svo ótrúlega heppin að hafa fengið þig inní mitt líf, og að fá að hafa þig mér við hlið í framtíðinni. Ég reyni að meta þig að verðleika. Þú hefur kennt mér svo margt um lífið, sem ég annars hefði farið á mis við. Hvar væri ég án þín? Ég elska þig elsku prinsinn minn, nú og að eilífu. ~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~ TIL ÞÍN! Áður en þú varst til þráðum við þig. Áður en þú komst í heiminn elskuðum við þig. Áður en þú hafðir lifað í eina stund hefðum við fúslega dáið fyrir þig. Þú ert kraftaverk lífsins. Takk fyrir að vera til. VOGIN (Emil Aron) Börn í vogarmerkinu eru oft glaðleg og broshýr og eru oftar en ekki börnin sem fá bros frá hinum sem bíða á biðstofu læknisins. Þau eru sjarmerandi og heilla aðra upp úr skónum. Félagslyndi einkennir vogina frá fyrstu tíð og litla vogin elskar að hafa margt fólk í kringum sig. Vogarbarn sem þarf að búa við einangrun getur orðið geðstirt, innhverft og óöruggt en þegar allt leikur í lyndi er það opið og hresst. Vogin á mjög erfitt með að gera upp hug sinn og virðist oft hafa lítinn viljastyrk. Þess vegna er mikilvægt að foreldrar hjálpi voginni að rækta með sér sjálfstæði og ákveðni meðal annars með því að fela henni ákveðin verkefni sem reyna á ákvarðanatöku. Líklegt er að Vogin spyrji álits og því er hægt að svara með því að spyrja: ?Hvað finnst þér?? Síðan þarf að gefa henni næði til að vega og meta hlutina áður en hún tekur ákvörðun. Vogin er listræn í eðli sínu og mikilvægt að hlúa að þeim eiginleikum og skapa henni aðstöðu til að þroska listræna hæfileika sína. KRABBINN (Ásgeir Elí) Börn í krabbamerkinu eru oft mjög viðkvæm og foreldrar mega búast við að mörg tár muni falla í bernsku. Þau hafa því ríka þörf fyrir hlýju og snertingu auk þess sem öryggi skiptir þau gríðarlega miklu máli. Líf þeirra þarf að vera í föstum skorðum og umhverfið gott. Foreldrar barna í krabbamerkinu ættu ekki að rífast mikið í þeirra návist því þau taka allt mjög nærri sér og eru oft lengi að ná sér á strik eftir áföll. Krabbar byrgja oft tilfinningarnar inni og því er mikilvægt að tala við þau um tilfinningar. Dæmigert krabbabarn man alla tíð eftir því þegar það týndist í Hagkaup í tvær mínútur og tekur því sem höfnun. Krabbinn er oft mislyndur og misjafn í skapi, ýmist hress og jákvæður eða þungur og dregur sig inn í skel. Hann er oft rólegur og hlédrægur en getur gosið upp annað slagið vegna þess hve viðkvæmur hann er. Það þarf að umgangast hann af nærgætni og það er ekki sama hvað sagt er við hann og hvernig. Hann tekur margt nærri sér og er móðgunargjarn. Hann er gjarn á að geyma gremjuna innra með sér og láta á engu bera á yfirborðinu. Foreldrar þurfa því að hvetja litla krabbann til að segja frá því sem honum mislíkar. Mestu skiptir að skapa krabbanum öruggt heimilislíf, veita honum hlýju og gefa honum kost á að tjá tilfinningar sínar, t.d. með því að leyfa honum að eiga gæludýr. BARNALANDSVINIR MÍNIR Dagný Lind og Andri Fannar Andreas Snær töffari
Andrea Anna Dagný Líf Daniel Bæring litli frændi Særún Lilja Eysteinsdóttir Almar Máni Hjálparsíða Ísabellu
|
| Þú ert gestur nr. 52877 |