Fæðingasaga Emils
Fæðingin mín var svolítið erfið, en það þarf auðvita að hafa fyrir því að fá svona yndislegan pakka.
Mamma var 17 tíma að koma mér í heimin frá fyrsta verk. En hún vaknaði klukkan fimm um morgunin með verki en þá voru 7-10 mín á milli þeirra.
Klukkan 10 ákváðu hún og Kolla amma að drífa sig upp á spítala en pabbi og Ella amma voru á leiðinni frá Selfossi. Verkirnir mældust þá ekki nógu sterkir og fékk mamma að fara heim. Þá fór hún í bað og leið stax betur.
Þegar 4-5 mín voru á milli verkja og verkirnir orðnir svolítið stífari fóru við öll upp á spítala en þá var klukkan um eitt. Mamma fór í mónitorin og fékk síðan að fara í baðið, eftir um 2 tíma í baðinu var mömmu orðið svo heitt að hún varð að fara upp úr.
Eftir það var bara gengið um gólf og voru verkirnir mis stífir og 3-4 min á milli. Pabbi og Kolla amma voru dugleg að aðstoða mömmu með nuddi og svoleiðis, sem sló verulega á verkina. Klukkan hálf átta var belgurinn sprengdur og þá byrjuðu hríðarnar á fullu en útvíkkunin var víst ekki alveg búin og einhver brún var fyrir þannig að mamma þurfti að rembast ansi lengi til að yfirstíga hana. Rembingurin stóð yfir frá hálf átta og þar til ég kom í heiminn klukkan 21:49, 17 merkur og 54cm, alveg ótrúlega myndalegur strákur.
Mamma fékk engin verkjalyf óg gleymdist að bjóða henni glaðloftið, en hún fékk nálastungur sem virkuðu alveg rosalega vel.
Pabbi varð alveg stjarfur og táraðist, því hann var svo stoltur og ánægður, hann stóð sig alveg eins og hetja allan tímann og klippti að sjálfsögðu á naflastrenginn.
Mamma var svakalega ánægð að fá mig loksins í fangið svona mjúkann og heitann og ég sprændi aðeins á hana. allt erfiðið var sko alveg þess virði og það gleymdist eginlega allt um leið og hún sá mig.
Ég grét svo mikið þegar ég kom í heiminn, en þá byrjaði mamma að syngja leikskólalögin sem hún var vön að syngja fyrir mig þegar ég var í bumbunni og ég snarþagði og horfði furðu lostinn á mömmu mína, en þá var ég tekinn og sprautaður og skoðaður bak og fyrir og var ég ekki sáttur við það. Enn það var gott að komast aftur í mömmu og pabba fang. Ég var svo uppgefin eftir þetta allt saman að ég sofnaði síðan og svaf alla nóttina.