Fæðingarsaga Ásgeirs

Ég var svo stundvís að mæta á réttum degi og með alveg þvílíku hraði, mamma og pabbi náðu varla upp á fæðingardeild. Cool

Mamma missti vatnið kl.04:00 um nóttina 13.júlí, eftir að hún og amma höfðu farið í svaka mörgæsagöngu um hverfið eftir þunga grill máltíð um kvöldið. Mamma vakti pabba og hringdi upp á fæðingardeild en ljósan sagði mömmu bara að leggja sig aftur og koma 10 hálf 11, fyrst það voru engir verkir. Leið og mamma leggst svo upp í rúm kemur fyrsti verkurinn og annar eftir 7 minútur, mamma vissi að maður ætti að fara upp á fæðingardeild þegar 5 minútur eru á milli og þriðji verkur kom eftir 5 mínútur, þá hringdi mamma aftur upp á fæðingardeild og ljósan sagði henni bara að taka sig til og koma í rólegheitunum og mamma sagði henni að hún ætlaði í bað og koma svo. Mamma sendir pabba upp til ömmu Kollu þar sem Emil svaf og hryngja í Ara sem ætlaði að vera með Emil á meðan, amma kemur niður til að hjálpa mömmu í baðið. Þegar mamma er svo komin ofan í baðið eru verkirnir strax orðnir vel sterkir og bara 5 mín á milli þannig að mamma drífur sig bara upp úr baðinu og græjar sig til að fara. Þegar allt var orðið tilbúið er svo farið að huga að pabba sem er þá bara sofnaður hjá Emil Wink og Ari ekkert komin, pabbi hélt bara að mamma ætlaði að dúllast í baði og ekkert lægi á. Mamma fór með ömmu út í bíl til að bíða eftir pabba og nú voru bara 3 mínútur á milli og amma og mamma alveg hissa á hvað pabbi væri lengi. (hann hélt bara að þetta væri eins og fæðingin hans Emils þar sem maður er með svona verki í marga klukkutíma áður en barnið kemur!!).Embarassed

En við komumst upp á sjúkrahús og enn alltaf 3 mín á milli og ljósan tekur á móti okkur og er mamma komin með 7 í útvíkkun og verkirnir ansi sterkir.Yell Ljósan drífur sig að undirbúa fyrir fæðinguna og mamma byður um nálastungur sem hún fær, en þær fengu lítið að virka því mjög fljótlega kom fyrsti hríðarverkurinn og svo hver á fætur öðrum og á ótrúlega stuttum tíma er ég bara kominn í fangið á mömmu minni kl. 06:15, sem sagt 2 tímum og korteri eftir að mamma missti vatnið.Smile Ljósan sem tók á móti mér heitir Berit og er voðalega indæl. Ég mældist 4446 gr og 53 cm. Við vorum svo öll komin heim til okkar fyrir 11 um morguninn.