Hæ mamman verður að skrifa fréttir seinna, Ásgeir Elí er svo erfiður út af magakveisu að það gefst bara engin tími í annað en að sinna barninu. Njótið myndanna
kveðja úr danmörku
Nú er Ásgeir Elí orðin 7 vikna og stækkar bara og stækkar. Ég er enn að reyna að toga hann í 3 tímana og fær hann bara vatn ef hann er eitthvað órólegur á milli gjafa. Hann er með miklar ólgur í mallanum sínum litla greyið og sefur voða lítið og þá helst í fanginu á manni og ef ég legg hann niður er hann yfirleitt vaknaður eftir korter og sofnar svo aftur ef ég tek hann í fangið. Þetta er voða erfitt og mikil vinna og maður getur bara ekkert gert hérna heima við, en vonandi fer þetta að lagast. Læknirinn minn sendi mig með hann í Zone therapi (svæðanudd) til að athuga hvort það hjálpi eitthvað og fórum við í fyrst tímann í gær. Konan er frönsk og talaði við Ásgeir á frönsku og söng fyrir hann meðan hún nuddaði einhverja punkta í iljunum, honum fannst þetta voða gott í byrjun en var svo orðin pirraður á þessu í lokin. Eftir tíman svaf hann lengi og vel í vagninum úti. Konan lofaði því að þetta myndi hjálpa en sagði að hann þyrfti svona 4-5 tíma og kostar tíminn alveg 210 kr danskar, þannig að það er eins gott að þetta virki, en annars er ég alveg til í að prufa allt svo að drengurinn fari að sofa betur.
Svo er nú reyndar varla svefnfriður hérna á kollegiiunu en það er búið að vera svaka framkvæmdir við skólann hérna beint fyrir utan svefnherbergisgluggann hjá okkar alveg síðan í byrjun júlí og eru þeir mættir með vélarnar kl 6 á morgnana og þvílíku lætin, maður er alveg að gefast upp, ekki á bætandi á svefnleysið hjá okkur. Nú eru þeir búinir að setja einhverjar járnplötur á vegin fyrir utan þannig að það eru geggjuð læti þegar bílarnir keyra yfir þær.
Emil Aron er bara á leikskólanum sínum, fóstran var að tala um að hún sæi mikla breytingu á honum eftir að hann varð stóri bróðir, væri farin að vera óþekkur og svona, reyndar finnst mér það bara fínt því hann var allt of mikil veimiltíta áður og alltaf vælandi undan hrekkjusvínunum, nú tekur hann bara á móti. Svo er hann reyndar farin að læra að segja mörg blótsyrði og er þá bara hótað sápunni og snarhættir hann þá. Hann er enn voða góður við litla bróðir, tek samt eftir því að hann verður smá abbó þegar ég eða Gunni erum að spjalla eða leika við Ásgeir.
Ég og Ásgeir erum bara tvö heima á daginn og erum bara að dúlla okkur og vonandi fer hann að sofa eitthvað lengur á daginn svo ég geti farið að gera eitthvað hérna heima við.
Mamma og pabbi hans Gunna eru að stefna á að koma í heimsókn í september en Ásgeir er ekki enn farin að sjá nafna sinn, mamma og kannski Fanney frænka ætla svo að koma í Október þegar Emil á afmæli og svo er ég að fara að pannta ferð heim 1.des fyrir mig og strákana. Við erum að stefna á að skíra 21.Desember og langar okkur voða mikið til að geta haldið stóra veislu til að geta hitt sem flesta ættingja, en þar sem við erum fátækir námsmenn veit ég ekki hvort það verður en það kemur bara í ljós.
Jæja er búin að vera skrifa þetta í köflum síðan snemma í morgun á milli þess sem Ásgeir sefur, þarf að hætta núna og kveð í bili
Gunna
var að henda inn myndum en þetta er eitthvað að myndum frá júlí.
Annars gengur svona upp og ofan með Ásgeir Elí, hann virðist bara vera stöðugt svangur og erum við að rembast við að draga hann í þrjá tímana en hann var á tímabili stundum á brjósti á tveggja tíma fresti en eftir vigtunina sem hann fór í á eins mánaðar afmælisdeginum og við sáum að hann var að þyngjast um 400 gr á viku
en eðlilegt þykir 150-200 gr og sagði ljósmóðirin mér að reyna að teygja hann í 3 tíma á milli. Hann er búin að fara í nokkrar vigtanir:
fæddur var hann 4446 gr og 53cm
3 daga var hann 4300 og 53 cm (eðlilegt að léttast fyrstu vikuna)
11 daga var hann 4450 ( búin að ná fæðingarþyngd aftur)
17 daga var hann 4600 og 57 cm
1 mánaða var hann 5400 og 57 cm (búin að þyngjast 800 gr á 2 vikum)
var svo hjá lækni á mánudaginn s.s 5 vikna og er 5550 gr og 58 cm.
Hann er sem sagt alveg að springa út strákurinn okkar, sá að hann er orðin jafn þungur og Emil var þegar hann var 2ja mánaða og mér fannst hann frekar stórt barn......Ásgeir virðist bara ætla að feta í fótspor Gunnars Hólms frænda síns.
Ég er orðin voða þreytt og svefnlaus, en Gunni léttir nú mikið undir og tekur Ásgeir stundum fram og leyfir mér að sofa því það er bara alveg ótrúlegt hvað barnið vakir mikið, skil ekki orkuna í svona litlu barni. í gær vakti hann frá klukkan 4 um daginn til 10 um kvöldið og var samt vaknaður aftur eftir 3 tíma til að drekka. Við höfum prufað að gefa honum þurmjólk fyrir nóttina til að athuga hvort hann sofi lengur en hann er upp eftir 3 tíma, við erum að tala um að það hefur bara 2x liðið 5 tímar á milli gjafa. Svo þegar hann drekkur er hann ekkert sofnaður strax á eftir heldur vakir í svona 1-1og hálfan tíma á eftir (reyndar ekki á nóttunni) og þá er svo sofið restina af þremur tímum. Ég vona allavega svo innilega að þetta fari að lagst því maður getur eginlega ekkert gert neitt annað en að sinna honum.
Emil er byrjaður aftur á leikskólanum og er voðalega glaður með það, ég var svona fyrstu dagana að sækja hann snemma þar til hann bað mig vinsamlegast að hætta því, greynilega svona gaman á leikskólanum. Hann er á svo skemmtilegum aldri litla skinnið, það sem kemur upp úr honum og þvílíkar vangaveltur í gangi, verð eginlega að fara að skrifa þetta niður, hann er bara algjör brandari.
Ég var um daginn að leiðbeina pabba eitthvað í umferðinni og sagði óvart beygðu til vinstri þegar ég var að meina hægri og sagði pabba að ég ruglaðist stundum á hægri og vinstri og emil alveg: Þetta er hægri hendin þín (og tók í hægri hendina mína) og þetta er vinstri hendin þín ( og tók í hina) BANANAHEILINN ÞINN !!!! ég náttúrulega sprakk bara úr hlátri og gat ekkert farið að skamma hann fyrir að segja svona við mömmu sína.
Pabbi var með hann í göngutúr og Emil var á hjólinu sínu og svo segir Emil við pabba: afi haltu í mig, amma sagði að ég ætti að passa þig, því amma er kærastan þín....er það ekki? Afi sagði að það væri rétt. EMIL: já afþví að þið kyssist og svona....(alveg með hlutina á hreinu) man ekki meir í augnablikinu en ætla að reyna að muna að skrifa þetta niður fyrir næstu fréttir.
vonandi hafið þið gaman af því að skoða myndir af prinsunum okkar, okkur finnst við svo heppinn að eiga þessa gullmola og reynum að vera dugleg að setja inn myndir fyrir ömmu og afa á Íslandi og auðvita ættingja og vini líka svo þið getið fylgst með okkur þar sem við búum svo langt í burtu.
Kær kveðja
Gunna
Kveðja frá okkur
Já nei það tók nú ekki svona langan tíma að koma drengnum í háttinn.... mamman náttútulega bara ekki að standa við orðin sín. ;) Það eru búin að vera svaka veikindi á þessu heimili ég var veikur frá miðvikudeginum síðasta og til mánudags og pabbi frá föstudeginum og er enn og svo varð mamma veik í fyrradag og er enn hálf slöpp.
Var nú samt ekki gaman að fá allar þessar myndir inn.....nú þarf mamma bara að fara að dusta rykið af myndavélinni okkar og fara að taka myndir til að setja inn. Fórum reyndar í tívolí um daginn og tókum náttútulega myndavélina með og þegar það átti að taka fyrstu myndina varð hún rafmagnslaus.
En allavega við mamma fórum til Íslands um páskana og var pabbi bara heima að lærast. Þetta var alveg æðislegir páskar og þökkum við bara kærlega fyrir okkur. Mamma tvöfaldaðist á þessu tímabili því hún gerði ekkert annað en að éta, enda er bara svo góður matur á íslandi annað en hér. Við burðuðums síðan með okkur 20 kg af mat til baka.
Við hittum marga á þessum tíma, buðum Ellu ömmu og afa Ásgeiri, langömmum og öfum í pabba ætt í mat til okkar og það var rosalega gaman. Fórum síðan á Lækjamót til þeirra og gistum eina nótt og fékk ég að grafast með afa og var ég alveg að rifna úr stollti eins og þið sjáið á myndunum. Þegar ég verð stór ætla ég að vera gröfukall og að veiða fisk.
Við vorum síðan á páskadag í sumarbústaðnum hjá Grétari langafa og Eygló og voru amma Kolla, afi Nonni, Fannar og Ingunn líka þar. Ingunn er með litla prinsessu í mallanum þannig að í sumar er von á fullt af litlum frændsystkinum og svo fæ ég auðvita lítinn bróðir. Ég er alltaf að segjast geta hitt og þetta því nú sé ég ,,STÓRI'' bróðir og svo sníki ég stöðugt pening hja mömmu og pabba til að setja í baukinn því ég er að safna fyrir dóti handa litla bróðir því hann á ekki neitt og ekki viljum við að hann leiki með MITT dót....
Á annan í páskum buðum við síðan ættingjum hennar mömmu til veislu hjá ömmu Kollu og húsið gjörsamlega fylltist.... það var voða gaman að geta hitt svona marga. Við hittum líka Halldóru og co. og skemmtilegast er að þær mæðgur Halldóra og Dagný Lind ætla að koma til okkar núna 25.apríl.... það verður sko æði... mikið og marg búið að plana... Legoland og dýragarð o.fl. Hlökkum mikið til.
jæja er þetta ekki orðið fínt
Emil Aron gröfustrákur
vorum að setja inn myndir frá ömmu Kollu, setjum inn fleiri myndir þegar mamma er búin að koma mér í háttinn og skrifum nokkrara línur.
Kveðja
Emil Aron
Jæja loksins er mamma búin að setja inn nokkrar nýjar myndir en við vorum búin að týna hleðslutækinu fyrir myndavélina en það er núna komið í leitirnar. Mamma og pabbi eru búin með þessa önn og náðu bæði með stæl og fengum við svo vikufrí og fórum í nokkra daga í æðislega bústað rétt fyirir utan Horsens, við tókum nokkrar myndir á síman hans pabba og þarf mamma hjálp við að ná þeim úr, vonandi sem fyrst.
Amma Ella kom síðan hingað með Benna frænda sem býr núna hjá okkur og er að prufa að spreyta sig í nýju landi, hann er komin með vinnu og byrjar á morgun. Það var voða gott að fá ömmu til mín og fékk ég aðeins að vera í fríi á leikskólanum sem var eignilega ekki nógu gott því nú er ég orðin svo erfiður að fara, en það lagast vonandi.
Við mamma erum búin að panta okkur far heim til íslands um páskana og verðum alveg lengi, lengi. Komum 13.mars og förum aftur 26.mars. Oh okkur hlakkar mikið til að koma og vera í ömmu og afa faðmi allan tíman. Þar sem ég eignast systkini í sumar er þetta eini sjensinn fyrir okkur að koma til íslands fyrr en bara næstu jól.
Endilega kíkið á síðuna hjá litla systkini mínu en mamma ætlar að setja inn nokkrar bumumyndir og svo fáum við að vita kynið þann 25.feb
bæbæ
Emil Aron
Já nú ætti amma Kolla að verða glöð, loksins komnar myndir, en hun er búin að suða í okkur svo lengi um að setja inn myndir. Málið er eginlega að við höfum eginlega ekkert tekið neinar myndir í langan tíma, það eru bara búið að vera stöðug veikindi á mér síðan ég byrjaði á leikskólanum, mæti liggur við bara aðra hverja viku og er veikur hina. Núna er mamma búin að vera veik og er búin að vera voða þreytt, en hún er komin að pensilín þannig að vonandi fer þetta heilsuástand okkar að lagast.
Ég kann orðið að skrifa stafinn minn eins og þið sjáið á myndunum og svo kann ég líka að skrifa hina stafinu í nafninu mínu en finnst skemmtilegast að skrifa bara E. Kann líka að skrifa F sem er stafurinn hans Fannars frænda og svo erum við að æfa okkur með alla hina stafina.
Ég fékk sjóræningjadagatal og er voða gaman að fá að opna einn glugga á hverjum degi og fá smá súkkulaði og svo bíð ég bara spenntur eftir að jólasveinarnir komi að heimsækja mig með eitthvað gott í skóinn, en Íslensku jólasveinarnir munu koma alla leið frá íslandi til mín.
Við erum svona aðeins byrjuð að kaupa jólagjafir, ekkert byrjuð að skreita enþá. Það eru seld jólatré liggur við á hverju horni hérna, ætlum að kaupa tré og byrja að skreita þegar mamma og pabbi fara í jólafrí þann 15.des.
Látum þetta gott í bili
Heyrumst seinna
Emil Aron
Hæhæ
allt gott að frétta af okkur hérna í danmörkinni. Ég er byrjaður á leikskóla sem heitir Friheden og er ég á deild sem heitir ,,De små hurtige'' og gengur alveg svakalega vel hjá mér. Ég er eina íslenska barnið á öllum leikskólanum. konurnar segja að ég sé svakalega opinn og duglegur og á marga vini á leikskólanum, danski orðaforðinn minn er alltaf að aukast meira og meir og er ég meir að segja stundum að gleyma og tala dönsku heima. Leikskólinn minn er svona íþróttaleikskóli og fer ég í íþróttahúsið (Hallen) 2 sinnum í viku þar sem ég þarf að hafa með mér íþróttaföt og gerum við allskonar æfingar og förum í leiki. Ég er alltaf svo kátur þegar mamma og pabbi sækja mig á leikskólann.
Eftir leikskólann minn fer ég stundum með mömmu og pabba í ræktina og fer í barnapössunina þar og get ég séð mömmu í gengum glerið þegar hún er að hlaupa á hlaupabrettinu,
Annars eru flestir dagar bara voðalega svipaðir hjá okkur, ég er á leikskólanum á meðan mamma og pabbi eru í skólanum og svo leik ég mér aðeins eða horfi á barnaefni og borða svo kvöldmat og fer svo í háttinn um 8 leytið, þá hafa mamma og pabbi tíma til að læra. Ég er stundum voðalega latur að vakna á morgnanna (ekki langt að sækja það (Pabbi)) en svo um helgar er ég risinn upp fyrir allar aldir.
Það er byrjað að koma jólaskreytingar í allar búðir og finnst mér voðalega gaman að heyra jólalög í útvarpinu. Mig hlakkar svo til jólanna, því þá ætla amma Kolla og afi Nonni, Daníel Bæring frændi minn, Grétar Páll og Hildur að koma til okkar. Jólasveinarnir koma líka og gefa í skóinn ef ég er þægur strákur, annars fæ ég kartöflu. Er voðalega spenntur yfir þessu öllu saman.
Vona að séu nú ekki allir bara hættir að kíkja á síðuna mína, en mamma og pabbi hafa bara svo mikið að gera í skólanum og svona, en við vorum að tala við ömmu Kollu áðan á skypinu með véfmyndavel og hún bað svo fallega hvort mamma gæti reynt að gefa sér tíma til að setja inn myndir af mér að mamma hafði nú bara ekki samvisku í annað.
Auðvita sakna ömmur mínar og afa að fá ekki að sjá mig daglega og er þetta örugglega alveg mjög erfitt fyrir þau, þannig að við skulum reyna að fara að standa okkur betur með heimasíðuna.
Mamma er að fara að koma mér í háttinn því ég er að fara á leikskólann á morgun.
Farvel og har det godt.
Emil Aron ömmulingur afastrákur
Jæja þá erum við aftur komin til Danmerkur og er allt farið í sínar föstu rútínur, mamma og pabbi byrjuð í skólanum og ég farin til Hanne minnar. Amma Ella og Benni frændi komu með okkur til Danmerkur og voru hjá okkur í tvær vikur og var það rosalega gaman. Palli vinur okkar er líka fluttur hingað og byrjaður í skólanum líka og býr rétt hjá okkur.
Ég er bara alveg að verða 3ja ára þann 19. október, en amma Kolla hélt nú upp á smá afmæli fyrir mig áður en við fórum og var það bara æði, fékk fullt af fallegum gjöfum og var dagurinn bara skemmtilegur. við ætlum nú samt að halda upp á smá afmæli hérna úti. Ég er svo að fara að byrja á leikskóla 1.október og er það svona íþróttaleikskóli og er hann bara í göngufæri frá okkur sem er bara frábært. Ég var búin að missa Dönskunna svolítið niður þegar ég kom aftur til Hanne og var hún ekki glöð með það, því ég væri nú líka að fara að byrja á leikskóla, en hún bað mömmu og pabba að vera dugleg að tala við mig líka á dönsku og erum við búin að vera dugleg að æfa okkur og árangurinn ekki staðið á sér. Nú tala ég bara fullt á dönsku, kalla mömmu stundum MOR og segist vilja horfa á TEGNEFILM og svona ;)
Við fórum í IKEA um daginn og fékk ég nýtt rúm og náttborð og sjónvarpsborð og hillur og mottu o.fl og er herbergið mitt núna orðið svakalega fínt. Amma Kolla og afi Nonni gáfu mér rúmið í afmælisgjöf. Mamma og pabbi keyptu líka nýja skápa og hillur inn á bað og hillur inn í stofu. Svo erum við að fá nýtt borðstofuborð og skenk í antik stíl inni í stofu og alvöru kúaskinn á gólfið. Setjum inn myndir þegar þetta er komið, tekur náttúrlega allt 2 ikur hérna í DK.
Nonni afi minn er að verða 50 ára þann 5.október og ætlar hann og amma að vera hjá Grétari og Hildi í Gautaborg þá helgi og ætlum við fjölskildan að fara með ferju frá Frederikshavn til Gautaborgar til að vera líka með þeim öllum og hlakkar okkur rosalega til.
Látum ykkur vita hvernig gengur þegar ég byrja í Børnehavn, verið dugleg að kvitta ;)
Farvel
Emil Aron
mamma var að setja inn nýjar myndir, var að fá helling af myndum frá ömmu Kollu og setti fleiri myndir í apríl albúmið. Er núna á Íslandi hjá ömmu Ellu í góðu yfirlæti. mamma og pabbi eru enn í danmörku að einbeyta sér að náminu og koma til mín þegar prófin eru yfirstaðin í lok júní byrjun júlí. Ég fer til ömmu Kollu 15.júní og ætlum við í útileigur og svona. Mamma og pabbi sakna mín mikið og tölum við saman í síma svona þegar ég er í símastuði sem er nu ekki oft.
Skrifum meira seinna
Hæ hæ allt gott af frétta hérna hjá okkur í danaveldi,
Mér finnst rosa gaman að hafa Sigrúnu frænku hérna hjá mér og Ara minn líka. Þau voru í heimsókn hérna áðan og heimtaði ég að fá að fara heim með þeim og fékk það náttúrulega....... frænka er rosa dugleg að dekra mig svona víst að ömmur mínar eru svo langt í burtu verður einhver að sjá um þetta.
Amma Ella og afi Ásgeir voru hjá okkur um daginn og var rosalega gaman að hafa þau hjá okkur. Freyja frænka kom svo í viku og gisti hjá Sigrúnu frænku og var rosa gaman að hafa hana hérna... hún er svo skemmtileg, hlakka til að hitta hana aftur í sumar. Við fórum öll til Árhúsa að skauta og fannst mér það mjög gaman fyrst en svo varð ég mjög hræddur við þetta allt saman en samt langaði mig að skauta áfram þannig að ég grenjaði á svellinu og vildi hætta og svo grenjaði ég í stúkunni og vildi fara á svellið. Við grilluðum svo um kvöldið í góðra vina hóp og horfðum á Idolið og svo fóru mamma og pabbi út á lífið og Freyja var svo elskuleg að passa mig á meðan.
Selma vinkona mín er núna farin til pabba síns á Íslandi og verður þar framm á sumar og þar sem ég fer til íslands í byrjum sumars munum við væntanlega ekkert hittast fyrr en í lok ágúst þegar við komum aftur til Horsens. Ég á nú eftir að sakna hennar mikið og vona bara að hún gleymi mér ekki.
Þetta stam hjá mér sem var um daginn er nú sem betur fer hætt. Ég er orðin rosalega duglegur að tala og farin að nota rosa stór og fullorðinsleg orð og fynnst mömmu rosalega fyndið hvað ég nota sömu setningar og hún eins og þegar ég er að skamma bangsana mína eða jafnvel pabba : ,,jæji, hættu með þetta vesen'' og ,,Skammastu þín bara''og svo set ég bansana mína í skammakrók og svona. Ég er á einhverju rosa mótþróa skeiði núna og þarf alveg ótrúlega mikið að vera að vesenast og fikta gersamlega í öllu og ef mamma segir mér að hætta einhverju eða ganga frá dótinu mínu eða eitthvað segji eg bara NEI, finnst voða gaman að egna mömmu minni og gera hana rosa reiða. Svo er nýjasta nýtt hjá mér að ef mamma er kannski búin að vera að skamma mig eitthvað og ég búin að gráta yfir því þá fer ég til hennar :,,Þú verða að segja fyrigefðu við mig'' og er mamma að reyna að fá mig til að skilja að þegar ég er óþekkur þá á ég að segja fyrigefðu og ef mamma er óþekk við Emil þá á mamma að segja fyrirgefðu.
Ég sagði við mömmu í gær þegar hún var eitthvað fyrir mér: ,,færðu þig þarna PRIKIÐ þitt'' (s.s Kjánaprik) mamma kallar mig svo oft kjánaprikið sitt. Svo er ég alltaf að tala um lögguna, er alltaf Löggan kemur bara og skammar þig. Ég vildi nefnilega ekki vera í bílstólnum mínum um daginn og mamma sagði að ég yrði alltaf að vera í bílstól og mamma og pabbi alltaf með belti því annars kæmi löggan bara og skammaði okkur.
Ég er eginlega hættur að tala um sjálfan mig í 3ju persónu eins og Emil langar í þetta og hitt, svo er svo skonndið að heyra mig reyna að fallbeygja orðin rétt. Ég er líka orðin rosalega duglegur í dönskunni og er alltaf að segja nýtt og nýtt orð. Var að horfa á spólu í dag og þegar hún var búin sagði ég: Hun er slut.
Mamma er að fara í lestina á eftir til kastrup að taka á móti ömmu Kollu svo hún þurfi svo ekki að sitja alein í lestinni í 3 tíma til horsens, ég verð örugglega sofnaður þegar þær koma. Amma ætlar að vera hjá okkur í viku og ætlum við að gera eitthvað skemmtilegt saman. Amma er búin að kaupa handa okkur páskaegg, namm, namm og svo auðvita helling af íslenskum mat.
Jæja endilega verið dugleg að kvitta, mamma var að setja inn fleiri nýjar myndir
Gleðilega páska og hafið það rosa gott
Emil Aron
Jæja þá ......við erum á lífi .....bara þetta sama tölvu-og netvesen en nú eru mamma og pabbi bæði búin að kaupa sér fartölvur og heimilistalvan kemur úr viðgerð um mánaðarmótin þannig að héreftir verða engar afsakanir. Mamma og pabbi eru reyndar búin að vera rosalega löt að taka myndir af okkur en ætla að reyna að taka sig á í því.
Við höfum það öll mjög gott núna en erum samt öll búin að fá allar pestir sem eru búnar að vera að ganga...en vonandi er þetta búið því mamma og pabbi eru núna bæði byrjuð í skólanum og mjög erfitt að þurfa að taka sér frí. Annars gengur bæði mömmu og pabba rosa vel í skólanum og danskan alltaf að verða betri og betri. Pabbi fílar sig bara vel í þessu námi og fær góða aðstoð frá mömmu, því hún er önn á undan honum.
Sigrún bestasta frænka og Ari minn eru flutt hingað til Horsens því Ari er byrjaður í byggingarfræði líka og búa þau hérna rétt hjá okkur. Rosalega er gott að hafa þau hérna hjá okkur.
Amma Ella og afi Ásgeir ætla svo að koma með flugvélinni til okkar 8.mars og ætla að vera í 10 daga. Það verður vonandi gert margt og mikið skemmtilegt. Okkur hlakkar mikið til.
Amma Kolla kemur svo til okkar um páskana þannig að það er alltaf eitthvað til að hlakka til. Svo komum við til Íslands og verðum þar í sumar. Við verðum á Selfossi hjá ömmu og afa því mamma og pabbi verða að vinna þar, svo ætlum við að vera dugleg að fara í útileigur og í Fanneyjarlund. Þetta er nú ekki langur tími, frá fyrstu vikunni í júli til síðustu vikunar í ágúst.
Ef einhverjum langar til að koma til Horsens á þessum tíma þá verður íbúðin okkar laus og bíllinn fyrir sanngjarnann pening. Fullt skemmtilegt hægt að gera hérna...strandir...Legoland...skemmtigarðar...dýragarðar og fleira. Endilega hafa samband við mömmu og pabba.
Það er reyndar eitt leiðinlegt búið að gerast en ég er farin að stama alveg svakalega og vaknaði bara svoleiðis einn daginn....rosalega skrítið. Mamma og pabbi eru að vonast að þetta sé nú bara eitthvað tímabundið ástand, en það er svakalegt að heyra i mer og stundum er ég svo lengi að segja eitthvað að ég er stundum búin að gleyma hvað ég ætlaði að segja. Mamma og pabbi reyna að láta sem minnst bera á þessu og tala ekki um þetta í kring um mig og passa sig á að ljúka ekki setningum fyrir mig og láta mig rembast við þetta sjálfur.
Það er náttúrulega rosalega mikið að gerast í mínu litla lífi. Ég þarf að svissa daglega frá íslensku yfir í dönsku og öfugt. ömmur og afar koma og hverfa svo aftur. Ég fer til Íslands og er miðpunkturinn alstaðar sem ég fer og svo hendist ég bara aftur til danmerkur í hversdagsleikann. Frænka mín kemur og býr hjá mér og svo allt í einu er hún farin í einhverja aðra íbúð.
Dagmamman var að tala við mömmu að henni fyndist mér leiðast svo hjá sér alveg sama hvað hún reyndi að fá mig til að gera...perla...kubba..lita eða hvað sem var ég entist bara smá sund í því. langar helst bara að lesa bækur og syngja allan daginn. Svo er ég elstur hjá henni og vantar einhverja meiri aktion, einhverja eldri krakka til að örva mig. Dagmamman var að benda mömmu á að drífa sig að panta leikskólapláss og fá undanþágu því aldurinn á leikskóla er 3ja ára en með undanþágu get ég fengið að fara 3 mánuðum fyrr. Mamma og pabbi ætla líka að fara að reyna að vera duglegri að fá mig til að leika mér við dótið mitt og fara út að leika í staðin fyrir að horfa endalaust á barnaefni.
Jæja þá eru þið búin að fá fréttir af því helsta hjá okkur, hentum líka inn nokkrum myndum. Endilega kvitta svo við sjáum hverjir eru að fylgjast með
Kveðja frá Horsens
Emil Aron og co.
jæja þa það er nu orðið ansi langt siðan við skrifðum siðast en malið er að nettengingin herna a kollegiinu er alveg hræðileg en það a nu eitthvað að fara að bæta ur þvi a næstunni.
En allavega þa erum við familian a leið til islands i jolafri og komum 14.des og er ekkert sma sem okkur hlakkar til. Mamma er a fullu i skolanum og pabbi er að vinna hja svona vikar fyrirtæki og fær bara vinnu svona dag og dag og er það bara fint. Eg er natturulega bara hja henni Hanne minni sem er alveg rosa skemmtileg og er dugleg að kenna mer dönskuna. Þegar mamma sotti mig um daginn þa sagði eg: Emil har støre muskler ( Emil er með stora vöðva) og svo segji eg oft Takk for mig med þvilikum dönskum hreim þegar eg er buin að borða.
Orðaforðinn minn i islensku hefur lika farið svakalega framm, fekk svo mikið að skemmtilegu islensku barnaefni i afmælisgjöf og læri mörg flott orð ur þeim. eg sagði um daginn: Hvar er pabbi minn EIGINLEGA? mömmu fannst það svo sætt. Svo er eg lika algjör söngfugl og við syngjum mikið ur söngbokinni sem Daniel Bæring gaf mer og kann eg orðið mörg lög utanaf, er rosa hrifin af öllum jölalögum.
Mamma skilur ekki hvað er að gerast með mig siðustu daga eg er farin að vera svo oþekkur, Emil i Kattholti er reyndar uppahaldsmyndin min undanfarið kannski er eg að smitast af einhverri oþekkt. I dag komu mamma og pabbi að mer þar sem eg var að gera listaverk með trelitum a stofuvegginn og komust þa lika af þvi að það var ekki bara stofuveggurinn, heldur lika a ganginum og inni i svefnherbergi. Þau urðu alveg svakalega reið og letu mig setjast i skammakrök og varð eg alveg mjög reiður og öskraði og æpti en þau gafu sig ekki og þegar eg var buin að roa mig þa varð eg að byðjast afsökunar og hjalpa svo pabba að þryfa veggina.
Asta, Geiri og Selma voru svo frabær að gefa mer fiskana sina og er eg buin að skira þa alla þrja NEMO
og af þvi að þetta eru minir fiskar a eg alltaf að gefa þem ð borða a morgnanna og hjalpa mamma og pabbi til. I gær komst eg svo i matarboxið þeirra og sturtaði næstum öllu boxinu ofani sem betur fer tok mamma strax eftir þvi og við naðum þvi að bjarga fiskunum fra ofati, það ma nefnilega bara gefa þeim pinkulitið.
Eg er alltaf eitthvað að vesenast og spa og spekulera i hlutunum með ymsum skrautlegum afleiðingum og þurfa mamma og pabbi nuna að vera a þvilikum varðbergi með mig.
Eg er buin að akveða að skilja snuddurnar minar eftir hja ömmu Ellu þegar eg fer aftur til Danmerkur þvi tannlæknirinn minn sagði að eg mætti alveg fara að hætta með þessa duddu ut af tönnslunum minum. Eg er alveg hættur með bleyju a daginn en lulla nu alltaf með bleyju en ef eg pissa aður en eg sofna þa er bleyjan yfirleitt þurr a morgnanna þannig að það er bara stutt i að eg hætti þessu bara alveg.
Asta klippti mig þvilikt gæjo i gær, en eg fekk hanakambs klippingu og er eg allgjör töffari, þetta fer mer alveg ötrulega vel.....veit nu ekki hvað ömmum minum finnst um að eg verði með hanakamb a jolumum....
jæja mamma ætlar að reyna að skjella inn myndum en lofar engu...gafst upp siðast eins og þið sauð en við skulum vona að það gangi betur nuna....
Sjaumst annars a landinu goða eftir nokkra daga
Emil Aron töffari
Hæ
mamma var að setja inn nokkrar myndi netið okkar lætur eitthvað ill og það tekur sv rosalega langan tíma að hlaða inn myndum, mamma heldur að það sé bara svona mikið álag á köldin....ætlar að prufa að hlaða fleirum inn í hádegishléinu sínu.....PROMISE og skifar þá líka fréttir