Bríanna: Mamma! Ertu að skrifa Svenju bréf á útlensku?
Mamma: Já
Aldís: Talar hún ensku?
Bríanna: Nei, hún talar þýskumál.
Aldís: HA! Talar hún fiskamál????
Svið í matinn
Það voru svið í kvöldmatinn og Bríanna segir: "Mamma!!! Ætlaru að láta mig borða nef og tönn????? Ég fæ hristing þegar ég borða þetta."
Bríanna: Í hvaða stjörnumerki ertu Aldís?
Aldís: Veit ekki.
Bríanna: Sko ég er meyja, sem á eftir að giftast. Og Hlynur og Lói eru tvíburar.
Aldís: OK, en hvað er mamma Viktoría?
Bríanna: Hmm...ég er ekki alveg viss sko, en ég held að hún sé gardína.
Bríanna í spjalli við vinkonu sína: " Langamma mín er sko alveg ógeðslega gömul, alveg sko 23 ára."
Bríanna 5 ára: "Mamma, af hverju ertu með svona LÖNG brjóst?"
Mamman hefur nú alltaf talið sig vera með voðalega fín brjóst og sárnaði frekar.
Bríanna: "Langamma afhverju ertu svona krumpuð hérna?" (Bendir á andlitið og undirhökuna)
Bríanna: "Þegar ég verð stór þá ætla ég að hafa svona langar klær eins og þú."
Lói: Vinur Lóa mætti ekki í skólan því hann fór suður. Það var nefnilega verið að "gróðursetja" frænda hans. (jarða hann)
Bríanna: "Ef ég væri með lengri klær þá gæti ég kroppað límmiðan af blaðinu."
Bríanna: ?Mamma ég elska þig, en ég get ekki elskað þig á morgun.?
Lói veiddi 5 fiska og vildi endilega fara gera að þeim og flaka þá og segir: ?Hvenær eigum við að flysja fiskinn??
Lói spekúlant spurði um daginn: "Mamma, afhverju deyja flugurnar alltaf með fæturna upp í lofið?"
Lói: Hvar eigum við að grafa langömmu þegar hún deyr?
Mamma: Í grafreitinum hjá langafa.
Lói: Já, það verður gaman. Gröfum við þá kisurnar okkar þar þá líka?
Mamma: Nei, það held ég nú ekki.
Lói: Nei ekki ég heldur. Langömmu finnst kisurnar vondar. Við gröfum þær þá bara í garðinum okkar.
Þegar Bríanna fer að sofa þá gleymir hún aldrei að "tanssa" (tannbursta).
Þegar Bríanna klæðir sig í skónna spyr hún: "Er þetta trummahótu" (krummafótur)
Lói var í gögngutúr með hund í bandi sem hann var að passa og hundur var nokkuð sjálfstæður og ákveðinn hvert hann vildi fara og Lói réð ekkert við hann. Lói spyr: "Afhverju er hún svona stýrð"
Lói horfði út um gluggan og sagði: "Krummarnir eru alltaf að ríðast um brauðið"
Lói : "Mamma mamma kondu og sjáðu það er hæna í garðinum okkar. NEI, það er hvít dúfa!" (Lói þegar hann sá rjúpu um miðjan vetur)
Lói: "Ég veit hvað ég eignast mörg börn, þau verða 2." Mamma: "Nú hvernig veistu það?" Lói:´"Ég er með tvö fræ í punginum."
Orðabók Bríönnu:
Tásu tóta = Tómatsósa,
Píkurnar mínar = Peningarnir mínir,
Api = Afi
Lói var að rífast við mömmu sína um peningana hans sem hann vildi eyða að eigin vild.
Lói: Mamma þetta eru mínir peningar og ég ræð þeims sjálfur.
Mamma: Nei Lói, þú ert ekki orðinn fjárráða.
Lói: Jú VÍST! Ég er meiri að segja orðinn fimm ára. (Fjárráða = Fjögur ára)
Í húsdýragarðinum spyr Bríanna um hreindýrin: "Afhverju eru þau með tré á hausnum?"
í húsdýragarðinum
Lói spyr: "Mamma, afhverju heita rebbar rebbar?" Mamma svarar: "Hef ekki hugmynd". Lói segir þá : "Borða þeir kannski svona mikið rebbabara?
Stutt reynslusaga af Lóa 5 ára.
Fyrir nokkrum vikum fórum við Lói að skoða Náttúrugripasafnið, þar sem ég þurfti að útskýra fyrir Lóa að dýrin væri alvöru dáin dýr sem hefðu verið uppstoppuð svona næstum því eins og stytta. Málið afgreitt.
Á 17. júní skoðuðum við Lói styttuna af Jóni Sigurðarsyni á Austurvelli. Lói vildi vita afhverju það hefði verið gerð stytta af Jóni. Ég sagði honum ranglega að hann hefði verið fyrsti forseti Íslands og því verið mjög merkilegur maður og því var gerð stytta. Málið afgreitt.
Á kosningardaginn dróg ég Lóa með mér til að kjósa forseta. Hann skildi ekki afhverju við þyrftum að kjósa forseta þegar við ættum núþegar einn slíkan sem heitir Ólafur Ragnar. Ég útskýrði fyrir honum að það væru tveir aðrir menn sem vildu líka verða forsetar, þannig að nú yrðu þeir að keppa til að vita hver ynni og yrði þar með forseti. Málið talið afgreitt.
Þá spyr Lói: "Ef Ólafur Ragnar vinnur hina mennina, verður hann þá líka uppstoppaður?" :-)