Lói er svo spurull þessa dagana að ég hef ekki við að leysa hinar ýmsu fræðiþrautir sem hann leggur fyrir mig. Sumar spurngingar eru mjög venjulegar eins og afhverju er sjórinn djúpur og svoleiðis en stundum fær hann mig bara til að hlægja. En sumt hreinlega veit ég bara alls ekki.
Til dæmis spurði hann í dag...afhverju deyja flugurnar alltaf með fæturnar upp í loftið?
Nú er komið sumar og bráðum koma pabbi og mamma til Hólmavíkur því þau eru bæði búin að fá vinnu hér...jibbí! Vorið er komið og við erum búin að vera dugleg að taka til í garðinum og gróðursetja laukum.
Ég (Lói) er farin að hjóla án hjálpardekkja og strax búin að læra að skransa og stökkva. Mamma segir að ég sé glanni og bíður bara eftir því að ég slasi mig. Bríanna er ekki farin að hjóla á alvöru hjóli, en hún fær kannski hjól í vor. Það verður gaman.
Við erum að passa hund sem heitir Dísa og hún er voðalega loðin og mömmusjúk. Það er gaman að leika við hana en hún vill mest vera hjá mömmu og eltir hana á röndunum, líka inn á klósett. Kisurnar voru nú ekkert hrifnar af henni og fóru bara í felur.
Nú er margt búið að gerast.
Mamma klessukeyrði bílinn okkar þegar hún lenti í árekstri við Landróver jeppa og slapp sem betur nokkuð vel út úr því. Bíllinn okkar var ónýtur og við erum enn ekki komin með nýjan bíl en erum að leita.
Svo fóru mamma og pabbi til London.....við vorum í pössun hjá ömmu og afa á meðan. Svo fengum við fullt af gjöfum þegar þau komu heim, mest föt.
Mamma er líka komin með vinnu á Hólmavík sem byrjar 1. júní, en hún hættir í Reykjavík þann 30. apríl og okkur hlakkar svo að fá hana heim til okkar.
Okkur líður vel og bráðum fer vorið að koma og þá verður sko fjör! :-)
Við erum búin að koma okkur vel fyrir í sveitinni og erum alsæl með frelsið. Mamma og pabbi eru í mesta basli með að koma okkur inn á kvöldin, því við erum svo dugleg að leika úti. Við búum hjá stórri brekku, þannig að allir krakkarnir eru úti að renna beint fyrir utan hjá okkur. Við erum líka byrjuð í leikskólanum á Hólmavík og erum mjög sátt.
Þeir sem eru síst sáttir við flutninginn til Hólmavíkur eru kisurnar okkar, Blettur og Bleikur. Þeir eru lagðir í einelti af hundi sem gengur laus og líka af öðrum stórum kisu hlunki sem er algjör slagsmálafíkill. Á tímabili hætti Blettur að þora út og fór að pissa í baðkarið sem mamma var nú ekki parhrifin af, en vonandi lagast þetta. Annars halda þeir sig mest til uppi á húsþaki þessa dagana
Pabba líður vel í bakinu og núna er mamma að leita að nýrri vinnu á Hólmavík, því hún saknar okkar svo mikið. Okkur finnst líka hundleiðnlegt þegar hún er ekki hjá okkur. Biðjum að heilsa í bili og ekki gleyma að kvitta í gestabókina.
Jólin komu og svo voru þau bara strax búinn. Húsið okkar er að verða fínt, komið borð og stólar í veislusalinn (venjuleg borðstofa) þar sem ég ætla að halda afmælið mitt næst og bjóða öllum sem ég þekki. Herbergin okkar eru samt öll í rusli, en næst þegar mamma kemur heim þá er hún búin að lofa að hjálpa mér að raða dótinu í hillurnar og gera fínt. Bríanna er líka búin að fá hillur en það á eftir að setja þær saman. Pabbi var skorin í bakinu og gatið á honum sést í gegnum plásturinn. Samt er hann ennþá slasaður í því og við megum ekki hoppa á rúminu hans. Hann má heldur ekki sitja eða beygja sig neitt. Samt gerir hann það pínu, því mamma er í Reykjavík og getur ekki hjálpað.
Við Bríanna byrjuðum á leikskólanum á Hólmavík og erum saman á deild. Brekkan hér er miklu stærri en í leikskólanum í Reykjavík. Maður rennir sér alveg á milljón hraða og klessir alla niður. Rosa kúl. Hér er alveg tonn af snjó og hann bráðnar aldrei heldur kemur bara meira og meira. Girðingin í garðinum okkar er alveg komin á kaf.
Ég fæ að gefa Krummunum matarafganga úti í garði og þeir verða þá voðalega kátir og mér finnst gaman að horfa á þá.
Kisa veiddi fugl, kom með hann inn og allt húsið okkar var þakið í fjöðrum og blóði. Pabbi varð alveg brjálaður og sagðist ætla að drepa köttinn. Ég vona að hann geri það ekki.
Pabbi er búin að gefast upp á að reyna að fá mömmu til að leyfa okkur að fá hvolp. Við reyndum að galdra hana til að segja já, en hún gerði það samt ekki. Við fórum aftur að heimsækja þá og þeir voru stynjandi saddir og sprell kátir. Algjörar bumbur. Mamma sagði að það væri pissufýla af þeim og vildi ekki eiga neinn. Sagði bara að ég mætti fá fiska.
Bless í bili, Lói 5 ára
Ps. Það er farið að sjást í nýju fullorðins tönnina mína.
Japp, þá er Bríanna búinn með allt súkkulaði dagatalið sem átti að duga til jóla. Lói heldur áfram að taka eitt í einu og Bríanna er frekar ?pissed? yfir því að fá ekki neitt hjá honum. Á maður ekki alltaf að deila öllu sem maður á?
Nú erum við að yfirgefa Reykjavík til að flytja til Hólmavíkur. Pabbi og mamma eru orðin þreytt á Reykjavík og vilja komast út á land til að geta notið betri tíma og rólegheit með okkur. Við erum pínu kvíðin á köflum en okkur hlakkar líka til að eignast nýtt og stórt hús á Vikturtúni 16. Kisurnar okkar koma með og allt dótið okkar líka, svo þetta verur nú örugglega í lagi. Svo er stór garður með palli og meiri að segja leynikofa á bakvið. Þið verðið bara að koma að heimsækja okkur! :-)
We are leaving Reykjavik and moving to the North West of Iceland to a little village called Holmavik. Dad and mom got tired of the city and wanted to spend more quality time with us in the country side. We are a little nervous but also very excited as we will get a big house with our own bedrooms. Our cats will move with us and all our toys too, so it will probably be ok. Then there is a big garden with a nice deck and a garden house for kids at the back. You will just have to come for visit and take a look! :-)
20. nóv - Lói festi tunguna sína á frosnu yfirborði og reif slatta af bragðlaukum af. Þetta gerðist í leikskólanum og blóðið fossaði úr tungunni, en hann fór ekkert að gráta því hann er orðin svo stór. Hann hlakkar líka rosalega til að fá egið herbergi í nýja húsinu okkar, en hann ætlar að setja keðjulás á hurðina svo Bríanna komist ekki inn. :-)
Lói got his tounge stuck on a frozen surface a t playschool and ripped half of his tastebuds off. It bled a lot, but he didn't shed a tear as he has grown so big now. He is also looking forward to having his own room at our new house. He plans to put a chainlock on the door so that Brianna Jewel can not get in. :-)
04. sept
Lói er með lausa tönn í neðri góm....vúhúú. Fyrst þegar hann uppgvötaði að hannværi með lausa tönn þá var hann alveg miður sín...enda nýbúin að slátra í sig öllu halloween-hrekkjavöku sælgætinu. Þegar hann komst svo að því að hann væri að fá fullorðinstönn, þá varð hann ægilega rogginn með þetta. Afskaplega fullorðinn. :Þ
Í dag var farið í Húsdýragarðin og við fengum að fara á hestbak sem var hápunktur dagsins. Lói klappaði geitunum, en þá stal ein geitin sleikjóinum hennar Bríönnu sem var mikil sorg. Svo fórum við og vigtuðum okkur hjá Guttormi. Lói var 21,5 kg og Bríanna 16 kg. Bríanna hljóp svo á ruslatunnu og fékk RISA kúlu á ennið. Því miður var myndavélin ekki með í förinni í þetta sinn. Við tókum hinsvegar myndir af Súperman sem mamma málaði á vegginn inn í svefnherberginu okkar. sem er rosalega kúl, kíkyu í albúmið okkar.
Today we visited the public animal-farm here in Reykjavik. Both Loi and Brianna went horseback-riding which was today's highlight. Brianna looooves horses, she'd sleep with him if it was up to her. Then we visited the goats and one of them stole Brianna's candy causing very much grief. We weight us on the animal-scales. Loi was 44 pounds and Brianna 32. At the end of the day we all pretty tired and Brianna ran into a garbishcan and got a huge knot above her eyelid. When we got home, mom painted Superman on our bedroom-wall, which is super cool. Look at the pictures, it is really big.
Stefanía, 9 ára vinkona Lóa, var að smygla sleikjó til Lóa sem var í leikskólanum. Fóstran sá þetta og bað beðið mig um að tala við Lóa og segja honum að þetta mætti alls ekki. Um kvöldið segi ég Lóa að það sé alveg bannað að stelast til að vera með sleikjó í leikskólanum, en hann svaraði "...að það væri í lagi því hann faldi þetta svo vel fyrir hinum krökkunum." Ég sagði honum að fóstran hefði samt séð þetta og að hún hefði skammað mig ponsu því öllum hinum krökkunum langaði líka í nammi. Þá spyr Lói, "Sendi hún þér þá reikning?"
Stefania (9) smuggled a lollypopp through the playschool-fence to Lói (Little Jamison) today. The teacher made a comment to me about it and asked me to have a talk with Lói. This evening I told Lói that it was strictly forbidden to smuggle sweets in, but he said it was ok because he hid it so carefully. I said that his teacher noticed and complained to me, since all the other kids had wanted sweets too. Lói's reply was: "Will she invoice you for it?"
Bítur neglur
Í gærkvöldi sátum við Lói saman á sófanum og vorum að spjalla. Mér verður litið á neglurnar hans sem eru étnar langt upp í kviku og ég segi við Lóa: "Lói minn þú verður að hætta að naga neglurnar þínar svona svakalega, afhverju gerir þú þetta? Lói svarar: "Mamma, ég fæddist bara svona illa"
Króatía-Ítalía-Svanshóll
Fullorðna fólkið skellti sér til Króatíu í viku þar sem frúin vildi liggja í sólinni en herran vildi þeytast um á milli svæða á mótórhjóli. Þar sem frúin var svo leiðinleg þá endaði það með því að við þeyttumst víða í Fíat bílaleigubíl. Hey, svo fórum við í fallhlíf 100 metra tengda við bát...je dúdda mía það sem maður lætur sig hafa útí. Svo var borðað og borðað enda kostar maturinn ekkert þarna úti. Veðrið var líka geggjað.
Það var gott að koma heim, en við brunuðum beint á Svanshól í og vöknuðum beint í 3 ára afmælið hennar Bríönnu, sem var heldur betur kát að sjá okkur. Lói sagði: "Ég hélt ég myndi aldrei sjá ykkur framar." Við skelltum okkur svo í réttir á Skarði, það var nú mikið húllum hæ eins og sjá má af myndunum.
Croatia - Italy - Svansholl
The grown-ups had a nice get-away week in Croatia and Italy. We stayed at a luxury apartment we we felt like royalties. We pampered ourselves to the greatest food and the best wine since the prices there are increadebly low. We spent one day in the famous city built on the water - Venice in Italy. What an amazing city. We sailed on a romantic trip on a gondola, which was very memorable.
After our trip we travelled straigt from 27°C to 7°C and blowing gale...brrrr. We picked up the kids up north and took part in a sheep gathering festival and had lots of fun. Brianna also turned 3 years old, she is getting quite big now and very strong minded. She had a lovely birthday, but the actual party will be held later at home in Reykjavik.
Þá eru komnar nýjar myndir í albúmið. Lói og Bríanna fara í sveitina til Höllu ömmu á meðan við foreldrarnir skellum okkur til Króatíu í 7 nætur. Síðan er planið að fara beint í réttir í Bjarnafirði þegar við komum heim og heimta börnin okkar af fjöllum. Við biðjum vel að heilsa öllum á meðan. Knús og klemm frá Viktoríu og Jamison
Here you have some new photos. Jamsion and Viktoria are off to Italy and Croatia. The kids will stay at Halla-grandma while we are away. Lots of love in the meantime. Hugs from us all!
Við Lói vorum að horða á Ólympuleikana og þá spyr Lói: "Mamma! Ísland heitir Ísland af því að hér er svo mikill ís ekki satt?" Mamman svarar: "jú jú, alveg rétt". Lói hugsar sig mikið um og spyr næst: "Er þá allt í rúst í Rússlandi?"