Velkomin á heimasíðuna okkar (Lykilorðið á síðuna er millinafn pabba með litlum stöfum)
Við heitum Almar Ingi og Rakel Erla


Um okkur:
Almar Ingi kom í heiminn á sumardaginn fyrsta eða þann 22. apríl 2004. Er fæddur 51 cm og 14,5 merkur eða 3605 gr. Þegar Almar fæddist var hann með nokkra ljósa lokka og blá augu.

Rakel Erla kom í heiminn föstudaginn 10. september 2010. Er fædd 50 cm og tæpar 14 merkur eða 3445 gr. Rakel Erla er fædd með blá augu og brúnt hár eins og mamma sín

Mamma okkar heitir Agnes Ýr Sigurjónsdóttir (´83) og pabbi okkar heitir Gísli Gylfason (´80). Við búum fjögur saman í Ólafsfirði.

mamma og pabbi hafa ákveðið að læsa síðunni og leyniorðið er millinafnið pabba með litlum stöfum.




Annað:
Almar Ingi:
Daginn áður mamma var skráð með mig var hún ekki farin að fá neina verki og var alveg viss um að ég myndi láta hana bíða aðeins lengur eftir mér, en ég ákvað rétt fyrir hádegi að það væri kominn tími til að fara að hitta mömmu og pabba minn.
vatnið byrjaði að leka um 11 og verkirnir byrjuðu um 2 og mamma og pabbi fóru til Akureyrar með ömmu Siggu sem fékk að vera viðstödd. Allt gekk bara rosalega vel og ég kom í heiminn klukkan 01:50 á skráningardeginum eins og ég ætlaði mér.



Aðfara nótt 10. september vaknaði mamma eftir örstuttann svefn eða klukkan 2:30 við verki. Svo um 6 leytið þá fannst mömmu vera kominn tími á að vekja pabba. Amma Sigga kom brunandi til að vera hjá stóra bróðir. Allt gekk eins og best var á kosið og klukkan 18:32 11 dögum fyrir settan dag kom ég í heiminn gullfalleg lítil stúllka.