Verið velkomin á heimasíðuna okkar! Nýjar myndir af litla prinsinum ....
Við heitum Elva Rún, Íris Björk og Jón Ingi Davíðsbörn.




Um mig:





Elva Rún fæddist þann 11. desember 2002 kl 01:35.Hún var ekkert að láta bíða eftir sér því hún kom tveim vikum á undan áætlun. Hún vó 3265 gr (13 merkur) og 49 cm. Hún fæddist með mikið dökkt hár og dökk grá augu.Hún kom ekkert voða hljóðlega í heiminn því hún grét í dágóðan tíma, eða þangað til að ljósmóðirin kom og leyfði henni að liggja undir hitaljósinu. En fæðingin sjáf gekk mjög vel.


Íris Björk fæddist þann 13. júní 2007 kl 05:05. Hún var heldur ekkert að láta bíða eftir sér því hún kom viku fyrir áætlaða dagsetningu. Hún vó 3545 gr (14 merkur) og 49 cm. Hún fæddist líka með mikið dökkt hár en ekki alveg eins mikið og systir sín og dökk grá augu. Íris Björk fæddist í baði og gekk fæðingin alveg rosa vel.


Jón Ingi fæddist þann 12. janúar 2011 kl 12:51. Hann var svaka tímanlegur í þessu öllu saman og kom á settum degi. Hann vó 3800 gr (15 merkur) og 51 cm. Hann fæddist líka með mikið dökkt hár og dökk grá augu og í fyrstu er hann mjög líkur ef ekki bara alveg eins og Íris stóra systir :) Fæðingin gekk alveg svaka fljótt og vel fyrir sig, vorum komin uppá HSS um kl 10:30, mamma fór svo ofaní baðið um kl 11:30.



Mamma okkar heitir Jóna Björg (1980) og pabbi okkar heitir Davíð Ingi (1979)








Annað:







Ásgeir Orri frændi

Eva Lind frænka

Hafrún Júlía frænka

Kamilla Rós og Kjartan Smári

Arnór Breki og Oddgeir Bent

Sædís Lind, Laufey Lind og Björn Ólafur

Emilía Sara

Sindri Dagur

Alexandra Mist

Aríel Gauti

Róbert Salvar

Bríet Ósk

Aron, Aldís og Börkur

Jón Garðar

Stefán Dagur
Máni Bergmann

Róbert Andri frændi










BOGAMAÐURINN

22. nóvember - 21. desember


Lítill fjörkálfur hefur litið dagsins ljós. Bogmannsbarnið er að öllu jöfnu glaðlegt og jákvætt og þægilegt í návist. Það þarf mikla hreyfingu og líklegt er að það fari snemma að ganga og skoða heiminn því bogmaðurinn er merki ferðalaga og strax í bernsku birtist þörfin fyrir ævintýraferðir af ýmsu tagi. Litlu bogmannskrílin þurfa að hafa gott pláss til að hreyfa sig en ef þau fá ekki útrás fyrir orku sína verða þau eirðarlaus og uppstökk. Bogmenn hafa yfirleitt yndi af íþróttum og hið dæmigerða bogmannsbarn er iðulega á kafi í alls konar íþróttaiðkunum. Listin að ala upp bogmann er fólgin í því að finna jafnvægi á milli frelsisþarfar annars vegar og ábyrgðarkennar og aga hins vegar. Foreldrar ættu að veita honum aðhald og venja hann á að ljúka því sem hann er að fást við áður en hann byrjar á nýju verki. Hann á það til að vera mjög fljótfær og nokkuð kærulaus og því þarf að hjálpa honum að þroska með sér dómgreind og skynsemi. Bogmannsbarnið verður mikið á ferðinni og um leið og það fer að komast sjálft ferða sinna leggur það í ferðalag um nágrennið og síðan lengra þannig að það getur verið erfitt að hafa stöðugt augun á þessu barni. Góða ferð.





TVÍBURARNIR

21. maí - 21. júní

Óþolinmótt eftir að hefja leikinn er líklegt að tvíburabarnið hafi sparkað duglega í móðurkviði. Tvíburabörn eru líkleg til að byrja snemma að tala og þau segja sína skoðun frá byrjun. Þau eru mjög forvitin í eðli sínu og þurfa því alltaf að hafa eitthvað fyrir stafni. Þau eiga mjög erfitt með að sitja kyrr og eiga mjög erfitt með að þegja. Athyglin beinist stöðugt að nýjum viðfangsefnum en áhuginn hverfur oft mjög fljótt. Tvíburarnir þurfa mikla örvun og hyggilegt er að leikföng þeirra séu margvísleg og vitsmunalega þroskandi, svo sem púsluspil og þrautir af ýmsu tagi. Því fyrr sem tvíburabarnið kemst í hóp annarra barna því betra því tvíburarnir elska félagslíf enda hafa þeir mikla samskiptahæfileika. Líf og fjör er tvíburum að skapi. Yfirleitt er tvíburinn bráðþroska vitsmunalega og því nauðsynlegt að sinna þessum þætti í uppeldinu með því að reyna að svara t.d. spurningum hans (þær eru reyndar oft ansi margar) og ræða við hann. Litlir tvíburar eru oft stríðnir og hrekkjóttir en það ber ekki að taka of alvarlega því yfirleitt er meiningin ekki slæm. Hann grípur oft til prakkarastrika til að hrista upp í umhverfinu því hann hefur ríka þörf fyrir tilbreytingu
















Viljiði vera svo væn að skrifa í Gestabókina okkar.




Gestir síðan 1.4.2004

Þú ert gestur nr. 26700