Velkomin á síðuna okkar!
Björgvin Franz, Pétur Steinn og fjölskylda eiga þessa síðu


Björgvin Franz
Fæddist í Reykjavík á bóndadaginn, 23. janúar 2004 kl. 20.28, 13 dögum eftir áætlaðan tíma. Hann var 16 merkur (3.955 g) og 53 cm við fæðingu. Hann er með ljóst hár og brún augu.

Pétur Steinn
Fæddist í Horsens í Danmörku 5. október 2005 kl. 11.28, 14 dögum eftir áætlaðan tíma. Hann var 18 merkur (4.530 g) og 56 cm við fæðingu. Hann er með ljóst hár og blá augu.

Pabbi okkar heitir Hlynur Örn Björgvinsson og er úr Breiðholtinu og mamma heitir Lísa Björg Ingvarsdóttir frá Selfossi.




Við eigum æðislegan bróðir sem heitir Ívar, hann fæddist á Selfossi 2. mars 1988 kl. 12.30. Hann var 16 og 1/2 mörk (4.100 g) og 53 cm þegar hann fæddist. Pabbi hans heitir Ævar Österby.




Björgvin Franz Vatnsberi
Vatnsberabarnið fer fljótt sínar eigin leiðir hvort sem það er í fataburði, hugsun eða hegðun. Það er uppfinningasamt, frumlegt og fullorðinslegt og lærir snemma að tjá sig og skila heim fullorðinna. Litli vatnsberinn vill sjá um sig sjálfur og fara sínu fram og er oft á tíðum mjög dramatískur. Ef honum leiðist gæti hann átt það til að stofna til vandræða bara til að fá spennu og drama inn í líf sitt. Besta uppeldisaðferðin er fólgin í umræðu og skynsamlegum fortölum. Vatnsberinn er þrjóskur og lítið þýðir að skipa honum fyrir eða beygja hann til hlýðni með skömmum. Best er að koma fram við barnið sem vitsmunalegan jafningja því vatnsberinn er hugarorkumerki og því skipa umræður og skynsamlegar fortölur fyrsta sæti. Vatnsberabörnin geta sýnt ást og væntumþykju á frekar ópersónulegan hátt. Þau eru yfirleitt vingjarnleg og yfirveguð en ekki mjög tilfinningasöm og oft illa við mikið kjass.


Pétur Steinn Vog
Börn í vogarmerkinu eru oft glaðleg og broshýr og eru oftar en ekki börnin sem fá bros frá hinum sem bíða á biðstofu læknisins. Þau eru sjarmerandi og heilla aðra upp úr skónum. Félagslyndi einkennir vogina frá fyrstu tíð og litla vogin elskar að hafa margt fólk í kringum sig. Vogarbarn sem þarf að búa við einangrun getur orðið geðstirt, innhverft og óöruggt en þegar allt leikur í lyndi er það opið og hresst. Vogin á mjög erfitt með að gera upp hug sinn og virðist oft hafa lítinn viljastyrk. Þess vegna er mikilvægt að foreldrar hjálpi voginni að rækta með sér sjálfstæði og ákveðni meðal annars með því að fela henni ákveðin verkefni sem reyna á ákvarðanatöku. Líklegt er að Vogin spyrji álits og því er hægt að svara með því að spyrja: ?Hvað finnst þér?? Síðan þarf að gefa henni næði til að vega og meta hlutina áður en hún tekur ákvörðun. Vogin er listræn í eðli sínu og mikilvægt að hlúa að þeim eiginleikum og skapa henni aðstöðu til að þroska listræna hæfileika sína.



Ívar fiskur
Hið dæmigerða fiskabarn er yfirleitt hæfileikaríkt og vel gefið en viðkvæmt og ekki ólíklegt að það missi stjórn á tilfinningum sínum og bresti í grát af engri sjáanlegri ástæðu. Fiskar eru gjarnir á að fórna sér fyrir aðra. Mikilvægt er að fara varlega að fiskunum og varast að særa tilfinningar þeirra með vanhugsuðum orðum. Fiskar eru mjög skapandi og þeir geta skapað sinn eigin heim þar sem þeir finna til öryggis þegar hinn harði heimur reynist þeim ofviða þá flýja þeir inn í sinn eigin. Því er mikilvægt að hvetja litla fiskinn til að koma út úr skel sinni og takast á við lífið, hvetja hann til að segja skoðun sína hreint út. Foreldrar ættu einnig að hlúa að listrænum hæfileikum barnsins ef þeir koma fram. Fiskurinn er í eðli sínu vingjarnlegur og skilningsríkur en jafnframt umburðarlyndur. Hann á t.d. erfitt með að trúa nokkru misjöfnu um aðra og er því alltaf jákvæður í fyrstu gagnvart ókunnugum.



Börnin læra af uppeldinu
Barn sem elst upp við gagnrýni lærir að dæma aðra
Barn sem elst upp við óvild lærir að berjast
Barn sem elst upp við háð lærir feimni
Barn sem elst upp við skömm lærir sektarkennd
Barn sem elst upp við hvatningu lærir sjálfstraust
Barn sem elst upp við hrós lærir þakklæti
Barn sem elst upp við sanngirni lærir réttlæti
Barn sem elst upp við öryggi lærir trúnað
Barn sem elst upp við virðingu lærir að meta sjálft sig rétt
Barn sem elst upp við viðurkenningu lærir að leita kærleikans í heiminum


Þú ert gestur nr. 137404